Tímarit hjúkrunarfræðinga


Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.2003, Blaðsíða 11

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.2003, Blaðsíða 11
GREIN Plejemedre og íslenskar hjúkrunarkonur Sigríður Eiríksdóttir hjúkrunarkona hafði tekið ^ við formennsku Félags íslenskra hjúkrunar- kvenna árið 1924, fyrst íslenskra hjúkrunar- kvenna en embætti formanns félagsins hafði ver- ið í höndum danskra hjúkrunarkvenna frá stofn- | un þess (Erla Dóris Halldórsdóttir, 1996). Ásta Sigriöur Eiriksdóttir (1894-1986) ásamt börnum sinum, Vigdisi fyrrverandi forseta íslands og Þorvaldi (1931-1952). Sigríöur giftist Finnboga Rúti Þorvaldssyni (1891-1973) prófessor i verkfræöi við Háskóla íslands árið 1926. Myndin var tekin árið 1934. Myndin erieigu VigdísarFinnbogadóttur. Foreldrar Sigríðar Eiríksdóttur voru Eiríkur Guð- mundsson, bóndi og trésmiður, og Vilborg Guðnadóttir. Eftir nám í skóla Sankti Jósepssysta í Landakoti hóf hún nám við Verslunarskóla fs- lands og stundaði eftir það verslunar- og skrif- stofustörf (Fíjúkrunarkvennatal, 1969). í bók Sigríðar Th. Erlendsdóttur sagnfræðings, Veröld sem ég vil. Saga Kvenréttindafélags íslands 1907-1992, kemur fram að flótti úr vinnukonu- starfi hafi verið ein mesta breyting á launavinnu kvenna á íslandi á fyrstu áratugum 20. aldar. Konum fjölgaði mest í handverki og iðnaðarstörf- um og þær hófu einnig að starfa í verslunum og á skrifstofum (Sigríður Th. Erlendsdóttir, 1993). Sigríður lét þó ekki staðar numið við skrifstofu- störf og ákvað að halda áfram að mennta sig. Arið 1918 hélt hún til Kaupmannahafnar og hóf hjúkrunarnám við borgarspítalann, Kommunehospitalet, þar í borg og lauk þaðan þriggja ára hjúkrunarnámi árið 1921. Flún tók framhaldsnám í geðhjúkrun við sjúkrahús í Hró- arskeldu og hélt þaðan til Vínar og starfaði þar á fæðingar- og handlækningardeild Rauðakross- sjúkrahússins. Arið 1922 hélt hún til íslands og starfaði sem hjúkrunarkona við Hjúkrunarfélagið Líkn þar til hún gifti sig árið 1926. Þá hætti hún hjúkrunarstörfum því það þótti ekki við hæfi að giftar konur ynnu út. Arið 1924 hafði hún tekið við embætti formanns Félags íslenskra hjúkrun- arkvenna þegar Christophine Bjarnhéðinsson lét af því emb- ætti og flutti síðar til Kaupmannahafnar ásamt eiginmanni sín- um, Sæmundi Bjarnhéðinssyni (María Pétursdóttir, 1969). Allar þessar fjórar konur eiga það sameiginlegt að vera braut- ryðjendur í hjúkrun og miklar heimskonur. Hjúkrunarmennt- un öðluðust þær í Danmörku en segja má að hjúkrunarskólar þarlendis hafi verið vagga menntunar hjúkrunarkvenna á Is- Iandi en þar hafði þróun hjúkrunarstarfsins hafist allnokkru áður en þær hófu hjúkrunarnám. Tvær giftu sig að hjúkrunar- námi loknu en hættu ekki afskiptum af málefnum hjúkrunar- stéttarinnar. Christophine og Sigríður störfuðu í samtökum um mannúðar- og líknarmál og einnig sinntu þær félagsmál- um hjúkrunarkvenna og Sigríður lengst af sem formaður Fé- lags íslenskra hjúkrunarkvenna, ein 36 ár. Hún vakti alla tíð yfir velferð stéttarinnar auk þess að vera húsmóðir og móðir tveggja barna. Eftir Sigríði liggur gríðarlega mikið af bréfum skrifuðum í þágu félagsins og einnig var hún mjög afkastamik- il í að upplýsa stétt sína með greinaskrifum í Tímariti hjúkr- unarkvenna um það nýjasta í hjúkrunarfræði. Þá birtust einnig greinar eftir hana í dagblöðum. Harriet Kjær og Kristín Thoroddsen giftust ekki heldur störf- uðu innan veggja sjúkrahúsa sem stjórnendur hjúkrunar- kvenna og annars starfsfólks. Allar voru þessar konur áhrifakonur í samtíð sinni og sæmdar riddarakrossi fálkaorðunnar á Islandi fyrir störf sína á sviði heilbrigðismála og í þágu sjúkra. Þetta er í stuttu máli sagt saga fjögurra vel menntaðra hjúkr- unarkvenna sem mörkuðu þáttaskil í sögu hjúkrunar á Islandi, voru sannkallaðir frumherjar í sögu íslenskra hjúkrunar- kvenna. Grein þessi er að hluta til erindi sem flutt var hinn 2. október árið 2003 á degi hjúkrunarfræðideildar: 30 ár frá stofnun námsbrautar í hjúkrunarfræði við Háskóla Island. Erla Dóris Halldórsdóttir er hjúkrunarfræðingur og doktors- nemi í sagnfræði við Háskóla Islands. Heimildir Erla Dóris Halldórsdóttir (2001). Holdsveikiá islandi. Mál og mynd, Reykjavik. Erla Dóris Halldórsdóttir (2000). islenskhjúkrunarstétt frá árinu 1930 til 1960. M.A. rit- gerð: Háskóli íslands, heimspekideild. Erla Dóris Halldórsdóttir (1996). Upphaf hjúkrunarstéttar á islandi. B.A-ritgerð: Háskóli Íslands, heimspekideild. Kristín Björnsdóttir (1999). „Feminismi og hjúkrun." Timarit hjúkrunarfrœðinga 2. Hjúkrunarkvennata! (1969). Hjúkrunarfélag islands, Reykjavik. Maria Pétursdóttir (1969). Hjúkrunarsaga. Gefin út af höfundi, Reykjavik. Min. Dómkirkjan i Reykjavík 1899-1909. Rigsarkivet. Ebeltoft kirkebog 1867-91, fol. 107 nr. 22, C334-7, 4/12. Rigsarkivet. Holmen sogns kirkebog 1863-69, fol. 170 nr. 97, 3-32-65b. Sigríður Th. Erlendsdóttir (1993). Veröld sem ég vil. Saga Kvenréttindafétags islands 1907- 1992. Kvennréttindafélag islands, Reykjavik. Þjóðskjalasafn islands. Skjöl frá Suðuramtinu. SAD II nr. 151. Holdsveikraspitalinn ÍLaug- arnesi. Landshöfðingi yfirislandi 15. april 1903. Timarit íslenskra hjúkrunarfræöinga 5. tbl. 79. árg. 2003 9
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.