Tímarit hjúkrunarfræðinga


Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.2003, Blaðsíða 46

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.2003, Blaðsíða 46
Hólmfríður Garðarsdóttir AF ERLENDUM VETTVANGI Jól í Afganistan Dag einn í nóvember 1994 haföi Rauði kross íslands sam- band viö mig þegar ég var á vökudeild Landspítalans og bauö mér starf í Afganistan. Ég tók boðinu strax eftir aö hafa fengið leyfi frá yfirmönnum sjúkrahússins. Tíu dögum síöar var ég komin til Afganistan. Sumum í fjölskyldunni fannst tímasetningin ekki góð þar sem ég yröi „úti á jólun- um". Þannig voru mér afhentar aö minnsta kosti tvær jóla- gjafir fyrir brottför meö þeim oröum að þá fengi ég aö minnsta kosti eitthvað á jólunum! Jólin voru mér hins veg- ar ekki sérlega ofarlega í huga enda ný og spennandi verk- efni aö takast á viö í gjörólíku menningarsamfélagi. Sjúkrahúsiö, sem ég vann á, var í Jalalabad nálægt landa- mærum Pakistans. Mitt hlutverk var aö vinna meö af- gönskum starfsfélögum mínum, aöallega á gjörgæslu og bráðamóttöku. A þessum tíma haföi stríðið geisaö í árarað- ir í Afganistan og sjúkrahúsið tók á móti stríösslösuöum af stóru svæöi auk annarra sjúklinga þar sem langt var í næstu heilsugæslu. Einnig voru slys vegna jarösprengna mjög tíö enda urmull af þeim í Afganistan. í Afganistan er íslömsk trú og gætti áhrifa þess til dæmis í klæðnaði okk- ar vestrænna kvenna. Viö gættum þess aö klæðast víðum, ermalöngum sloppum í vinnunni og höföum sjal til aö hylja hnakkann. Til að byrja með fannst mér erfitt að venjast þessum klæðn- aði, slæðan átti til að þvælast fyrir mér enda fremur óvön að ganga með slæðu og svo var heitt í veðri, en fljótlega varð slæðan hluti af mínu daglega lífi og síðar átti ég slæður í ýms- um litum og stærðum fyrir mismunandi tilefni. Það þótti ekki við hæfi að vestræn kona væri ein á gangi á götum borgarinn- ar og við fengum heldur ekki leyfi til að aka bíl. Starfsfólkið á sjúkrahúsinu fór til bæna í moskunni sem var ekki langt frá sjúkrahúsinu. Furðu fljótt vandist þessi ólíki lífsmáti og fyrr en varði var komið að jólum sem ekki eru haldin hátíðleg með- al almennings í Afganistan. Við vorum fimm sendifulltrúar sem unnum hjá Rauða krossinum og ákv'áðum að halda jólin saman. Eg og norskur starfsfélagi minn tókum að okkur að skreyta húsið okkar fyrir jólin. Við fórum á markaðinn í þeirri von að finna skraut með jólaívafi en gerðum okkur fljótlega grein fyrir að þessi jól yrðu flestum félögum okkar eftirminni- leg fyrir frumlegar jólaskreytingar. Erfiðast var að finna jólatré og tókst okkur aðeins að finna stóra trjágrein sem við stilltum upp í horni stofunnar, skreyttum með bómull og heimagerðu Tímarit íslertskra hjúkrunarfræðinga 5. tbl. 79. árg. 2003 skrauti og forláta jólaseríu sem sá norski hafði borið með sér frá heimalandinu. Engin kerti voru á markaðinum þannig að við notuðum hvít kerti sem Rauði krossinn dreifir tii flóttamanna á svæðinu. Við keyptum jólagjafir hvert handa öðru og pökk- uðum inn í pappír sem við ákváðum að væri mjög jólalegur. Við mættum til vinnu á sjúkra- húsið á aðfangadag en tókum okkur frí á jóladag og nýársdag. Afganar voru forvitnir um okkar helgihald og spurðu margs. I þessari borg voru einnig hjálparsamtökin Læknar án landamæra með starfssemi og var okkur boðið að koma í kvöldmat til þeirra á aðfangadag. Við borðuðum snemma því útgöngubann hófst klukkan 20 og urðum við sendifulltrúarnir fimm að vera komin heim fyrir þann tíma. Þar tókum við svo upp gjafirnar hvert frá öðru, sem ýmist voru afgönsk teppi eða húfur, við „jólatréð“ góða. Síðan var spjallað við kertaljós og hlustað á norska jólatón- list, borðaður íslenskur lakkrís, súkkulaðirúsínur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.