Tímarit hjúkrunarfræðinga


Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.2003, Blaðsíða 16

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.2003, Blaðsíða 16
Sigþrúður Ingimundardóttir STRENGIR HJUKRUNAR Aö fortíð skal hyggja, ef frumlegt skal byggja, án fræöslu þess liðna sést ei, hvaö er nýtt. Einar Benediktsson Upphaf Hjúkrunarsögu Maríu Pétursdóttur hefst á þessum vísu orðum skáldsins og hugsjónamannsins Einars Benediktssonar. María var sjálf hugsjónakona og eldhugi, merkisberi íslenskrar hjúkrunar í sextíu ár. Saga ís- lenskrar hjúkrunarstéttar er ekki gömul sé hún borin við mælistiku mannkynssögunnar en hjúkrunin er jafn- gömul manninum. Stéttin hefur átt því láni að fagna að framsýni og djörfung einkenndi konur er hófu merk- ið á loft og nýtur íslensk heilbrigöisþjónusta þess í dag. Frásagnir um það að hlynnt hafi verið að særðu og veiku fólki eru harla litlar í fornum sögum. Sagnariturum hefur þótt lítiðj til þess koma en valdabarátta og bardagar tíundaðir. I frásögn- inni af bardaganum á Hrísateigi í Víga-Glúms sögu kemur þój fram sú hugsjón að hlúa beri að mönnum og vernda alla jafnt, án tillits til þess hvort þeir séu samherjar eða andstæðingar. | Halldóra Gunnsteinsdóttir, kona Glúms, sagði er hún kvaddi konur til bardagasvæðisins: „Ok skulum vér binda sár þeirra manna, er lífvænir eru, ór hvárra liði sem eru.“ Hér kemur fram hugsjón sú er mörgum öldum seinna speglaðist m.a. í stofnun Alþjóða Rauða krossins. Sjálf taldi María Halldóru Gunnsteinsdóttur í raun fyrstu íslensku hjúkrunarkonuna og fékk vinkonu sína, Barböru Arnason, til að gera einstakt lista- verk um atburðinn. Verkið prýðir sal Hjúkrunarskóla Islands, nú hjúkrunardeild Háskóla íslands. Jafnframt er það forsíða á Hjúkrunarsögu hennar er kom út árið 1969. A skrifstofu Al- þjóðasambands hjúkrunarfræðinga í Genf hangir einnig stórt og fallegt veggteppi af bardaganum á Hrísateigi eftir Barböru sem María gaf sambandinu. María talaði oft um það að reisa ætti Halldóru bautastein. Kennsla í hjúkrunarsögu var námsgrein í Hjúkrunarskóla ís- lands. Þegar ég var í námi árin 1964-1968 vann María einmitt að ritun bókarinnar sem kom út, eins og áður sagði, árið 1969. | Þrjátíu og fimm kennslustundir skyldum við fá til að vita á\ hvaða merg sú stétt stóð er við vorum að læra til. María; kenndi söguna og gerði það í hartnær 19 ár. Á þessu sviði deildum við María söguáhuganum. Tímarnir voru lifandi, ferðast var út um allan heim og endalaust langt út fyrir fyrirframákveðið námsefni. Mér fannst María opna mér nýja sýn enda var hún ótrúlegur sagnabrunnur, þótt skóla- systur mínar deildu ekki endilega með mér áhuganum. Á þeim tíma var það venja að Hjúkrunarfélagið tæki nýbraut- María Lysnes, Sigþrúöur og María Pétursdóttir skráðar hjúkrunarkonur inn í félagið við hátíðlega athöfn. Þar afhenti formaður félagsnæluna og síð- an voru kaffiveitingar. Oft var þetta í húsi Oddfell- owa þar sem húsakynni félagsins leyfðu ekki slík- an fjölda. Þegar ég brautskráðist gerðist það í fyrsta sinn að veitt voru verðlaun fyrir hæstu eink- unn í hjúkrunarsögu. María afhenti mér forláta silfurpennahníf með merki félagsins. Aftan á hníf- inn var grafið: Verðlaun fyrir hjúkrunarsögu. Mér fannst afskaplega vænt um þessa viðurkenningu. Þegar ég síðar hóf kennslu við Hjúkrunarskólann kenndi ég þar að sjálfsögðu hjúkrunarsögu ásamt siðfræði og hjúkrunarfræði. Aldrei kom ég að tóm- um kofanum hjá Maríu með spurningar mínar við- víkjandi sögukennslunni og oft sendi hún mér það sem henni fannst áhugavert. Draumur Maríu var að rita framhald af Hjúkrun- arsögunni. Árið 1990 kvaddi hún á sinn fund þær er hún taldi að standa ættu að rituninni. Hún var með mótaðar hugmyndir um hvað hver ætti að gera. Sjálf ætlaði hún að endurskoða og umrita bókina sína. Kristín Björnsdóttir, dósent 14 Tímarit islenskra hjúkrunarfræöinga 5. tbl. 79. árg. 2003
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.