Tímarit hjúkrunarfræðinga


Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.2003, Blaðsíða 25

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.2003, Blaðsíða 25
FRÆÐIGREIN Sykurlausn í munn viö verkjum hjá fyrirburum og... Hvað liggur að baki árangrinum? Rannsóknir á mönnum hófust eftir að sýnt þótti að súkrósi væri verkjastillandi hjá rottum sem urðu fyrir ýmsum smávægilegum inngripum (Blass og Hoffmeyer, 1991). Sýnt var fram á að streituhljóð minnkuðu og verkjaþröskuldur hækkaði hjá rottunum við gjöf á súkrósalausn í munn og að þessa útkomu var hægt að hindra með gjöf á naltrexón eða naloxón. I kjölfar þess- ara rannsókna voru framkvæmdar hliðstæðar rannsóknir á smábörnum, fullburum og fyrirbur- um. I rannsókn Blass og Ciaramitaro (1994) kom í Ijós að starfsemi innbyggða ópíóðakerfis- ins (endogenous opioid) ræður líklega úrslitum um áhrif súkrósa á verki við smávægileg sárs- aukafull inngrip þar sem áhrifin koma ekki fram hjá börnum ef móðirin hefur verið stöðugt á methadon á meðgöngunni (Blass og Watt, 1999). Ekki er enn fyllilega Ijóst hvaða ferli eru þarna á ferðinni. Niðurstöður benda þó til að lík- \ lega sé hér um að ræða foruppsogunarferli (pre- absorptive mechanism). T.d. sýndu Ramenghi og félagar (1999) fram á að verkjastillandi áhrifum varð ekki náð ef 2 ml af 25% súkrósa voru gefnir í magasondu, fyrir hælstungu en ekki í munn. Því telja margir að um áhrif á bragðskynjun sé að j ræða, en vitað er að bragðskyn er vel þróað, jafn- vel hjá miklum fyrirburum (Ramenghi o.fl., 1996a). Sú staðreynd, að áhrifin koma fram snemma eftir að lausnin er komin í munninn, \ styrkir þessa ályktun. Spurt hefur verið hvort sykurlausnin sé áhrifarík vegna þess að hún hvetji til sogs og kyngingarat- hafna sem venjulega fara ekki fram samhliða gráti. Þar sem börnin fá sykurlausnina nokkru j áður en þau verða fyrir sársaukanum er sú skýr- ing ekki líkleg. Einnig hafa niðurstöður rann- sókna, sem gerðar hafa verið á eldri börnum og fullorðnum, bent til að þau finni ekkert sykur-j bragð 20-40 sekúndum eftir gjöf og einnig finnst aðeins mjög lítið af sykri í munnvatni 1 mínútu eftir að gjöf er hætt (Blass og Hoffmeyer, 1991). Framangreindar niðurstöður styðja þá tilgátu að um miðlæg og virk áhrif á taugakerfið sé að ræða, ekki eingöngu viðbrögð, þ.e. að verkjaboð-; in séu stöðvuð af innbyggða ópíóðakerfinu vegna áhrifa súkrósa á bragðskyn áður en sársaukinn er skynjaður og í einhvern tíma eftir að kerfið er virkjað. Af hverju ætti aö gefa súkrósalausn 2 mínútum fyrir sárs- aukafullar aögeröir? Rannsóknir, þar sem borinn er saman mismunandi styrkleiki súkrósalausnar sem gefin er á mismunandi tímum, hafa bent til að mestu verkjastillandi áhrifin náist þegar súkrósi er gef- inn um 2 mínútum fyrir sársaukafull inngrip (Blass o.fl., 1991; Haouari o.fk, 1995). Talið er að þessi tími sé samsvar- andi losun innbyggða ópíóðakerfisins á boðefnum og tengist örvandi áhrifum sykurlausna á bragðskyn (Stevens, o.fk, 1997). Hvers vegna ætti að nota sog á snuði meö súkrósalausn í munn? í nokkrum af rannsóknunum er bent á áhrif þess að sjúga snuð og borin saman áhrif þess og súkrósalausnar. Blass og Watt (1999) benda á að áhrifin hverfi yfirleitt um leið og snuðið er tekið úr munni og að ekki sé hægt að loka fyrir áhrif sogs á snuði með naloxón. Niðurstöður hafa bent á róandi á- hrif þess að sjúga snuð og að það geti haft áhrif á að barnið sýni minni merki um verki, en ekki er vitað til þess að eitthvað hafi komið fram um lífeðlisleg áhrif þess á verki (Carbajal o.fl., 1999). Olíkt rannsóknum á gjöf á súkrósalausn hafa rannsóknir á sogi á snuði ekki sýnt áhrif á hjartslátt og súrefn- ismettun (Stevens o.fl., 1997). Rannsóknir, þar sem bornir eru saman hópar með og án sogs á snuði við gjöf á sykurlausn, benda til þess að þetta tvennt í sameiningu sé áhrifaríkasta aðferðin til að draga úr verkjum hjá nýburum og fyrirburum við smávægilega inngrip (Blass o.fl., 1991; Blass o.fk, 1999; Stevens o.fk, 1999). Eru einhverjar aukaverkanir? Rannsóknir, sem fyrir liggja, benda ekki til aukaverkana af gjöf á sykurlausn í munn, en nefnd hafa verið nokkur atriði sem hafa þarf í huga þegar þessi meðferð er notuð. Meðal fullburða barna er lítið sem mælir á móti þessari meðferð. Þó hefur verið talað um óæskileg áhrif á börn sem eru með frúktósaóþol þar sem súkrósalausn er samsett úr frúktósa og glúkósa. Þetta virðist mjög sjaldgæf aukaverkun og mótrökin hafa verið að þessi meðferð sé eingöngu notuð á sjúkrahúsum þar sem auðvelt er að bregðast við slíkum uppákomum (Stevens o.fk, 1997). Meðal mikilla fyrirbura hefur verið rætt um hættuna á NEC (necrotizing enterocolitis) af mikilli osmósuþéttni lausnarinn- ar (24% súkrósi =1120 mOsm/1). Mótrökin hafa verið þau að mikið af lyfjum, sem fyrirburum og veikum nýburum eru gef- in um munn, hafa meiri osmósuþéttni (Bucher o.fk, 1995). Almennt er talið að fara skuli varlega við gjöf á lausnum um munn hjá miklum fyrirburum sem ekki eru byrjaðir að nærast um meltingarveg. Rannsókn Stevens og félaga (1999) sýndi ekki neinar aukaverkanir af því að dýfa snuði í súkrósa (0,1 ml Tímarit islenskra hjúkrunarfræöinga 5. tbl. 79. árg. 2003
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.