Tímarit hjúkrunarfræðinga


Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.2003, Blaðsíða 40

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.2003, Blaðsíða 40
Auöna Ágústsdóttir Hvernig geta hjúkrunarfræðingar nýtt sér boðskap Suzanne Gordon? Eg var uppnumin eftir námskeiðið hjá Suzanne Gordon. Mér finnst tvennt standa upp úr eftir þennan dag. Annars vegar að við hjúkrunarfræðingar þurfum að virða sjálfir sem fagstétt verk okkar og félaga okkar og hins vegar á- byrgð okkar á að gera verk hjúkrunarfræðinga sýnileg al- menningi. Suzanne lagöi áherslu á að við æfðum okkur í aö gera skýra grein fyrir störfum okkar, hvað felst í þeim og hvers vegna þarf að sinna þeim. Til að geta gert það þurf- um við aö bera virðingu fyrir því sem við erum aö gera og leyfa þeirri virðingu að skína í gegn í tali okkar og orðavali. Það er mikið verk að uppfræða almenning um hvað við gerum í okkar daglegu störfum. Með almenningi á Suzanne við alla, stjórnmálamenn, stjórnendur heilbrigðisstofnana, sjúklinga og aðstandendur þeirra svo fáeinir séu nefndir. Einfaldast er að byrja á skjólstæðingum okkar, þ.e. sjúklingum og aðstandend- um þeirra, segja þeim hvað við erum að gera og hvers vegna, t.d. við skurðsjúkling eftir aðgerð: „Eg ætla að mæla hjá þér hita, blóðþrýsting, púls og öndun. Þetta eru kölluð lífsmörk því þau gefa mér mikilsverðar upplýsingar um ástand lfkamans eftir aðgerðina og geta leitt í ljós fylgikvilla sem stundum skjóta upp kollinum." Þegar búið er að mæla lífsmörk, kanna litarhátt, líta eftir skurðsári eða hvað annað sem hjúkrunar- fræðingurinn gerir í þessu innliti á stofuna er sjálfsagt að segja sjúklingi frá niðurstöðum okkar og ályktunum. Eg viðurkenni að það er óþarfi að segja sjúklingi alltaf sömu orðin þegar hann er mældur þrisvar á dag í nokkra daga, en við eigum ekki að fela hvað við erum að gera. Alltof oft höfum við tilhneigingu til að ræða frekar um daginn og veginn og breiða yfir að við erum að athuga mikilvæga þætti í heilsufari sjúklingsins. Sjúklingurinn og aðstandendur hans eiga líka rétt á að vita hvaða þekkingu hjúkrunarfræðingar búa yfir og að þeir geta leitað til þeirra um upplýsingar. Suzanne nefndi að alltof oft halda sjúklingar að þeir þurfi að bíða eftir lækni til að fá upp- Hjúkrun er spurning um líf og dauða lýsingar um sjúkdóm sinn, lyf og aukaverkanir, heilbrigða lífshætti o.s.frv. Síðan spyrja þeir lækninn og stundum skilja þeir hann ekki, gleyma sumum spurningunum (og bíða óþreyju- fullir næsta stofugangs) eða læknirinn vísar; þeim á að spyrja hjúkrunarfræðing. Við þurfum hins vegar að vanda orðaval okkar í samræðum við fólk, forðast slettur og klisjur eða ganga út frá því að allir skilji hvað við eigum við. Suzanne brýndi okkur einnig til að gefa kost á okkur í blaða-, útvarps- eða sjónvarpsviðtöl. | Blaðamenn eru oft í mikilli tímapressu að fá; upplýsingar og hjúkrunarfræðingar þurfa að veraj viðbúnir að ræða störf sín. Stundum vilja hjúkr- unarfræðingar skýla sér á bak við þagnareiðinn I en það er hægt að ræða margt í starfinu, t.d. j hjúkrunarstörf á skurðstofu, án þess að ræða sér-! staklega hjúkrun tiltekins einstaklings í aðgerð. Eins er hægt að taka dæmi af tilbúnum eðaj raunverulegum sjúklingi, nota felunöfn, breyta kyni eða aldri viðkomandi svo síður sé hætta á að j hann þekkist. Ef tími er til er gott, jafnvel nauð- synlegt, að æfa sig með félaga sínum fyrir við-j talið. Prófa að segja það sem maður vill koma á framfæri, geta heyrt í sjálfum sér og fá gagnrýnij félaga síns. Suzanne benti á að fólk hefur oft mestan áhuga j á að dregið sé úr kostnaði (nefna hvað fyrirbygg- | Tímarit íslenskra hjúkrunarfræöinga 5. tbl. 79. árg. 2003
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.