Tímarit hjúkrunarfræðinga


Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.2003, Blaðsíða 35

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.2003, Blaðsíða 35
GREIN Hugleiöing um mátt bænarinnar degi, frá viku til viku og frá ári til árs. Hver dagur færir okkur alltaf eitthvað nýtt og sköpunin held- ur áfram. Við getum skapað með Guði með því að hugsa nýjar hugsanir, bjartari og fegurri, og með því að beina athyglinni að því jákvæða í hverri stöðu, hverju sinni. Nýr himinn og ný jörð Við lifum á gríðarlega miklum umbrotatímum. Það er mikil fæðing í aðsigi, fæðing hinnar nýju jarðar, fæðing inn í hið sanna líf. Friðartímar eru í nánd þótt ótrúlegt megi virðast miðað við hinn ytri heim enn um sinn. Illskan er að missa mátt- inn mjög örugglega, Guð hefur gefið mér að: skynja það, en baráttan á sér jafnframt stað' innra með okkur öllum, það er gífurleg hreinsun, andleg hreinsun. Guð hefur stórkostlega áætlun um sköpun sína og það er vitundarvakningin mikla sem er að flæða yfir veröldina. Endursköpun himins og jarðar er í þróun (Eileen Caddy). Það er í gangi nokkurs konar umpólun í hinum ósýnilega heimi, algjör umbreyting. En það er ekkert að óttast, það er Guð kærleikans sem talaði til spámanna sinna forðum um nýjan himin og nýja jörð og hann talar enn þann dag í dag. Við þurfum eingöngu að læra að staldra við og hlusta og treysta. Guði er enginn hlutur um megn og Jesús Kristur sýndi okkur og sýnir enn veginn, sannleikann og lífið. Jesús getur orðið okkar fyrirmynd í einu og öllu. Leyndardómur trúarinnar mun ljúkast upp fyrir okkur smátt og smátt þegar við erum tilbúin að treysta algjörlega þeim sem hefur líf okkar og dauða í sinni hendi. því Guðs ríki er innra með yður“ (Lúk. 17, 20-21). „Hátíð fer að höndum ein“ og leyfum okkur nú að njóta und- irbúnings þessarar fæðingarhátíðar frelsarans svo og endur- komu hans í skýjum. Jólin geta hjálpað okkur að endurmeta skynjun okkar á lífinu og tilverunni allri. Forgangsröðum afj list, elskum hvert annað og h'fið meira og meira. Njótum tón- listarinnar, njótum þess að anda djúpt, njótum þess að vera með okkur sjálfum og með Guði. Gleðileg jól! Sjá, dagar koma, ár og aldir líða og enginn stöðvar tímans þunga nið. I djúpi andans duldir kraftar bíða. Hin dýpsta speki boðar líf og frið. I þúsund ár bjó þjóð við nyrztu voga. Mót þrautum sínum gekk hún djörf og sterk. I hennar kirkju helgar stjörnur loga og hennar líf er eilíft kraftaverk. Úr Alþingishátíöarkantötu Davíðs Stefánssonar áriö 1930 Margrét Hákonardóttir útskrifaðist frá Hjúkrunarskóla Islands árið 1978, lærði klíníska dáleiðsht hjá Jakohi Jónassyni geðlækni árin 1991-1994 og lauk einnig viðbótarnámi í geðhjúkrun frá Háskóla Islands árið 1994. Hún starfar nú á þróunarskrifstofu hjúkrunar- forstjóra Landspítala háskólasjúkrahúss. Heimildaskrá: Biblían (1981). Hið íslenzka bibliufélag, Reykjavik. Caddy, Eileen (1998). Ég er innra með þér, Lífsljós, Reykjavik. Einar Aðalsteinsson (1999). Það verða engir skuggar. Gangleri, 1976-1997. Savater, Fernando (2000). Siðfrœðihanda Amador. Háskólaútgáfan, Reykjavík. Stinissen, Wilfrid (2000). Ákall úr djúpinu, um kristna ihugun. Skálholtsútgáfan. Páll Skúlason (2003). Lærdómur er virðisauki lifsins. Fréttabréf Háskóla Islands, okt., bls. 20-22. Það er ánægjulegt að heyra hvað bjartsýnismað- urinn Páll Skúlason, rektor Háskóla Islands, hafði að segja við brautskráningu kandídata síð- astliðið vor. Hann segir að fram undan bíði okk- ar nýr veruleiki sem verði hlaðinn óvæntum upp- finningum og uppgötvunum sem eigi eftir að breyta heiminum og okkur sjálfum, ævintýrið um endursköpun menningar okkar og þjóðlífs. Hans lífssýn fellur því vel að minni. Himnaríki er vitund um Guð enda sagði Jesús: „Guðs ríki kemur ekki þannig, að á því beri. Ekki munu menn segja: Sjá, þar er það eða hér er það,: Þegar andlát ber að höndum Önnumst alla þætti útfararinnar. Vesturhlíó 2 Fossvogi Sími 551 1266 www.utfor.is Við Útfararstofu kirkjugarð- anna starfa nú 14 manns með áratuga reynslu við útfaraþjónustu. Stærsta útfararþjónusta landsins rneð þjónustu allan 7 sólarhringinn. \ £ Prestur Kistulagning Kirkja Legstaður Kistur og krossar Sálmaskrá Val á tónlistafólki Kistuskreytingar Dánarvottorð Erfidrykkja UTFARARSTOFA KIRKJUGARÐANNA EHF. Tímarit islenskra hjúkrunarfræöinga 5. tbl. 79. árg. 2003 33
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.