Tímarit hjúkrunarfræðinga


Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.2003, Blaðsíða 45

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.2003, Blaðsíða 45
Helga Birna Ingimundardóttir, hagfræðingur FRA FELAGINU Minnisblaö til hjúkrunarfræöinga □ Veist þú hver er trúnaðarmaður á þínu sviði, deild eða vinnustað? □ Hefur þú sótt um dvöl í orlofshúsum Félags íslenskra hjúkrunarfræð- inga? GVeist þú hver slóðin er á vefsvæöi Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga, netfangið og síminn á skrifstofu félagsins á Suðurlandsbraut 22? □ Veist þú hver veikindaréttur þinn er? □ Styrktarsjóður BHM er ígildi sjúkrasjóðs fyrir starfs- menn hjá ríki og sambærilegum stofnunum svo sem sjálfseignarstofnunum. Hefur þú kynnt þér reglugerð og hugsanlega styrki úr styrktarsjóði BHM? □ Sjúkrasjóður BHM er fyrir starfsmenn sem starfa á al- mennum markaði. Hefur þú kynnt þér reglugerð og hugsanlega styrki úr sjúkrasjóði BHM? Q Hefur þú sótt um orlofsstyrk hjá Félagi íslenskra hjúkr- unarfræðinga? O Veist þú hvernig hægt er að ávinna sér námsleyfi sam- kvæmt kjarasamningum Félags íslenskra hjúkrunar- fræðinga? □ Hvað átt þú rétt á löngu sumar- og vetrarleyfi á þessu ári eða næsta? □ Hefur þú kynnt þér siðareglur hjúkrunarfræðinga? □ Hefur þú fengið yfirlit yfir skil á greiöslum þínum í lífeyrissjóð? □ Nýtir þú rétt þinn til hámarksiðgjaldagreiðslna í lífeyrissjóð? □ Hefur þú gengið frá skriflegum ráðningarsamningi? □ Hefur þú kynnt þér ný lög um fæðingarorlof? □ Færðu frítökurétt? O Fékkst þú greitt úr vísindasjóöi á árinu? □ Hefur þú sótt um framlag úr starfsmenntunarsjóði Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga? □ Hefur þú kynnt þér starfiö í þeirri fagdeild/svæðisdeild sem þú tilheyrir? □ Veist þú að B-hluti vísindasjóös styrkir hjúkrunarfræðinga sem vinna að rannsóknarve rkef n u m ? ÖVeist þú að hægt er að kaupa á skrifstofu Félags íslenskra hjúkrunar- fræðinga minningarkort úr minningarsjóðum félagsins? Minningar- sjóðirnir styrkja m.a. hjúkrunarfræðinga i framhaldsnámi. Nám á meistarastigi við hjúkrunarfrædideild, fsamvinnu við Endurmenntun Háskóla íslands Klínísk færni f fjölskylduhjúkrun Á þessu námskeiði gefst hjúkrunarfræðingum tækifæri til að auka færni sína í að meta og útfæra aðstoð við fjölskyldur langveikra. Markmið: Aö nemendur hafi við lok námskeiðs fengið tækifæri til að: 1. skilja merkingu og merkingarmun þess (þeirrar hæfni) að meta, færa í hugmyndaramma og útfæra fjölskylduhjúkrun. 2. skilja hverning best er að nota færni ífjölskylduviðtölum alveg frá upphafi til þess að meðferðinni lýkur og undirbúa með því jarðveg fyrir breytingar. 3. skilja og ræða hvernig best er að nota þróuð líkön ("lllness Beliefs”-líkanið og Trinity-likanið) til þess að virkja fjölskyldur í eigin heilsurækt Áhersla verður lögð á að þróa klíníska færni sérstakrar fjölskylduhjúkrunar bæði ífyrirlestrum, með greiningu klínískra tilfella, með myndbandssýningum af fjölskyldum sem komið hafa til meðferðar og með tilbúnum fjölskylduviðtölum. Námskeiðið er metið til 3 eininga á meistarastigi. Umsjón: Erla Kolbrún Svavarsdóttir, dósent við hjúkrunarfræðideild Háskóla íslands, fyrirlesarar, Dr. Lorriane Wright og Janice Bell, prófessorar við Háskólann í Calgary Kanada. Genafræði-erfðafræði Nýlegar framfarir í gena-fræðum hafa valdið byltingu í heilbrigðisvísindum. Aldrei fyrr hefur verið jafnmikiö framboð af, né eftirspurn eftir, þjónustu á þessu sviði. Samfara auknum viðskiptaþrýstingi og auknum áhuga almennings á erfðafræðilegum upplýsingum er nýting gena-fræða orðin hluti af venjubundinni heilbrigðisþjónustu. Þetta námskeið ersettá laggirnartil þess að gera hjúkrunarfræðingum og öðru heilbrigðisstarfsfólki kleift að auka við þekkingu sína á notkun gena-fræða innan heilbrigðisþjónustunnar, og verður lögð sérstök áhersla á siðfræðileg, lagaleg og þjóðfélagsleg áhrif þessarar fræðigreinar. ^ Umsjón: Erla Kolbrún Svavarsdóttir, dósent við hjúkrunarfræðideild Háskóla íslands. i Námskeiðið er metið til 3 eininga á meistarastigi. | Kennari er Marcia Van Riper dósent við háskólann í Chapel Hill, North Carolina, í Bandaríkjunum. Dr. Van Riper hefur sérhæft sig í rannsóknum á sviði erfðafræði og hefur víðtæka reynslu af kennslu, erfðaráðgjöf innan heilbrigðisþjónustunnar og fyrirlestrahaldi á þessu sviði. Námskeiðið verður haldið 24-28 maí, 2004 frá kl. 9:00-17:00. í hjúkrunarfræðideild er veitt ráðgjöf um framhaldsnám. Ráðgjöfina veitir Ragný Þóra Guðjohnsen, verkefnastjóri. Vinsamlegast hafið samband í netfang ragny@hi.is eða hringið í síma 525 5204 43
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.