Tímarit hjúkrunarfræðinga


Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.2003, Blaðsíða 49

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.2003, Blaðsíða 49
LITIÐ UM ÖXL Brautskráðar hjúkrunarkonur frá Hjúkrunarkvennaskóla íslands haustið 1953 og ein siðar (vor '54). Fremri röð frá vinstri: Björney Jóna Björnsdóttir, Hulda Gunnlaugsdóttir, Jónína Stefánsdóttir, Borghildur Einarsdóttir, Ragnheiður Hjördís Ingvarsdóttir. Aftari röð frá vinstri: Ragna Þorleifsdóttir, Gróa Sigfúsdóttir, Ingibjörg Ólafsdóttir, Pálína Þuriður Sigurjónsdóttir, Jórunn Hanna Ástriður Karlsdóttir. skorið úr um hvort nemandi væri hæfur til að stunda hjúkrunarnám. Bóklega námið fór fram á Landspítalanum en verklega námið var tengt hjúkrunarstörfum á Landspítalanum og öðrum sjúkrahúsum þar sem nemar voru vistaðir á veg- um skólans. A þessum tíma var Sigríður Bachmann skólastjóri og Þorbjörg Jónsdóttir aðalkennari, báðar voru þær mikilhæfir og góðir kennarar sem höfðu mikil áhrif á nemendur, höfðu báðar lært hjúkrunarkennslu, Þorbjörg í Bandaríkjunum og Sigríður í Englandi. Nemar bjuggu á heimavist sem var á þriðju hæð spítalans en kennslustofan var uppi í risi. Þegar litið er til baka er efst í huga mikil glaðværð meðal nema og samheldni og brennandi áhugi fyrir starfinu en margt var brallað, mörg gerðust ævintýrin sem ekki verða tíunduð hér! Afar ströng útivistarleyfi giltu, leyft var að vera úti til kl. 23.30 nema daginn fyrir frídag, þá gátum við fengið að sofa úti í bæ þar til dansiböllum var lokið! Ekki fullnægði þetta okkar þörf- um og eiginlega hafði þessi takmörkun espandi áhrif, a.m.k. á suma, og var þá oft gengið lengra en leyfilegt var og það gerði allt svo spennandi að komast fram hjá næturvaktinni óséður en næturvaktin átti að fylgjast með hvenær nemar kæmu heim og færa til bókar, stundum voru eldri nemar í því hlutverki og þá var oft auðveld innganga! Þessar reglur voru að sjálfsögðu settar með hag nemenda í huga og í takt við tíðarandann. Vinnuálag á nema var mikið. Langur vinnudagur, skipulag deilda með löngum göngum og mikilli yfirferð og margir sjúkl- ingar á hverri deild og vinnuhagræðing var ekki upp á marga fiska ef miðað er við daginn í dag. Með þessum orðum óska ég hollsystrum mínum til hamingju með áfangann. Pistillinn er birtur aftur þar sem röng mynd birtist i siðasta tölublaði. Elín Ellertsdóttir Jól á sjúkrahúsi - Á slysavakt Nú eru liðin 50 ár frá útskrift þeirra er luku prófi frá Hjúkr- unarkvennaskóla íslands í mars 1953. Við vorum 14 er luk- um námi, en af þeim eru nú 5 látnar. Hópurinn var sá fyrsti sem útskrifaðist með fínu, hvítu kappana á höfðinu. Enn fremurfékk hópurinn Nýja testamentiö að gjöf frá Gídeon- félaginu á íslandi, en var líklega ekki sá fyrsti. Ég hafði ráðið mig á skurðstofu Landspítalans og hóf störf strax eftir útskrift, var það kallaö að „supplera" og átti að taka u.þ.b. eitt ár sem framhaldsnám. Þessu starfi fylgdi m.a. að vera á slysavöktum og á bakvöktum. Ég bjó hjá foreldrum mínum skammt frá Landspítalanum, um 5 mínútna gang, svo að ekki var langt að fara ef unnið var á bakvakt. Nú var komiö aö jólum og ég á bakvakt. Nóg að gera allan daginn og fram á kvöld. Fer að undirbúa mig, að Ijúka vakt og fara heim - og að halda jól. Ekki varð nú mikið vart við jólin á slysavaktinni. Nema á kaffistofunni, kerti og smá skreyting. En vitundin um jóla- hátíðina var til staðar. - „Vér fögnum komu frelsarans," - og jólagleðin gagntók huga og sál. Þá kom sjúkrabillinn með tvo menn sem lent höfðu í bílslysi. Þeir voru tveir í fólksbifreið og sátu báöir frammi í. Þá varvinstri umferð á íslandi. Þeir höfðu ekiö undir vöru- bíl sem var kyrrstæður. Farþeginn, fremur ungur eða um þrítugt, slapp al- veg ómeiddur. Kandídat á vaktinni skoðaði ökumanninn og var hann úr- skurðaður látinn. Ekki sáust miklir áverkar en höfuðkúpan var mölbrotin og gaf eftir við snertingu, undarleg tilfinning við snertinguna. Sú tilfinning lif- ir enn í höndum mínum. Þá varð ég, ásamt hjúkrunarnema á vaktinni, að veita ökumanninum síðustu þjónustuna. Ekki komu neinir aðstandendur, félagi ökumannsins fékk að fara. En greinilega var honum, vægast sagt, mjög brugöið. Að því loknu urðum við að koma hinum látna upp í líkhús sem þá var her- bergi í húsi Rannsóknarstofu Landspítalans og Háskólans. Manninum var ekiö á vagni (ambulans) þangað. Sem betur fer var dimmt. Engin umferð, allt kyrrt og hljótt. Eftir að búið var að ganga frá öllu var orðiö nokkuð áliðið. Ég gekk heim í yndislegu veðri, kyrrð og friður. Töluverð Ijósadýrð, enginn á ferli. Hlakkaði til að koma heim. - „Heims um ból, helg eru jól." Er ég kom inn var mér sagt að árekstur hefði orðið fýrir utan húsið. Gest- komandi, á neðri hæð, var á vörubíl, staldraði stutt við. En bifreið hafði verið ekið undir pall vörubílsins. Sjúkrabifreið hafði komið á staðinn. Búiö var að fjarlægja allt fyrir utan hús- ið. Eigandi vörubifreiðarinnar hafði veriö um það bil að fara, eftir aö hafa lokið erindi sínu, er slysið varð. Hann gat ekið þaðan, ekkert aö vörubílnum. Þaö var undarleg tilfinning að koma frá afleiðingu þessa slyss og ganga svo beint heim, aö upphafi þess. Timarit islenskra hjúkrjnarfræöinga 5. tbl. 79. árg. 2003 47
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.