Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.2003, Page 44
Hefur þú hug á frekara námi haustið 2004?
Fromholdsndm oíd
bjúkrunorfrœdídeíld
Hdskólo íslonds
í hjúkrunarfræðideild Háskóla íslands
er boðið upp á fjölbreyttframhaldsnám:
LJÓSMÓÐURFRÆÐI
DIPLOMANÁM
Nám til meistaraprófs - 60 eininga nám
Markmið námsins er að dýpka þekkingu og efla færni
hjúkrunarfræðinga á vöidu fræðasviði.
Samhliða aukinni sérhæfingu gefst tækifæri til að auka færni í
rannsóknarstörfum og geta nemar valið að taka ýmist
15 eða 30 eininga lokaverkefni.
Nám í Ijósmóðurfræði - 60 eininga nám
Nám í Ijósmóðurfræði felur í sér vísindalega stafsþjálfun sem lýkur
með embættisprófi (candidata obstertriciorum) er tryggir starfsréttindi
eftir að sótt hefur verið um Ijósmóðurleyfi til heilbrigðis- og
tryggingamálaráðuneytis. Inntökuskilyrði er BS próf í hjúkrunarfræði.
Hjúkrunarfræðingar sem ekki hafa lokið BS prófi þurfa að
Ijúka 16 eininga fornámi samanber kennsluskrá.
Diplomanám - 30 eininga nám
Nú stendur yfir diplomanám í skurð-,svæfinga-,gjörgæslu- og
bráðahjúkrun. Haustið 2004 er áformað að bjóða upp á diplomanám á
fleiri sviðum. Um er að ræða mjög spennandi valmöguleika fyrir þá
sem vilja bæta við sig menntun og auka sérhæfingu.
Bókleg námskeið er hægt að fá metin sem hluta meistaranáms.
UPPLÝSINGATÆKNI
Nýtt þverfaglegt nám í upplýsingatækni
á heilbrigðissviði
Haustið 2004 verður boðið uppá nýtt þverfaglegt nám sem er
samvinnuverkefni nokkurra deilda innan Háskóla íslands.
Hér verður um að ræða afar spennandi nýjung og er
áhugasömum bent á að fylgjast með auglýsingum á vefsíðu
hjúkrunarfræðideildar í upphafi næsta árs.
I janúar næstkomandi verður boðið uppá námskeið á
meistarastigi um hjúkrun einstaklinga ogfjölskyldna sem takast
á við geðsjúkdóma eða geðræn vandamál. Kennari verður
Dr. Carla J. Groh Fulbrightprófessor við hjúkrunarfræðideild.
Þeim sem hafa hug á frekara námi er bent á að kynna sér
heimasíðu hjúkrunarfræðideildar. Um miðjan janúar verður
þar að finna allar frekari upplýsingar um nýjar
áherslur í framhaldsnámi.
http://www.hi.is/nam/hiukrun/namsvefur.html
í hjúkrunarfræðideild er veitt ráðgjöf um þá möguleika
sem í boði eru. Ráðgjöfina veitir Ragný Þóra Guðjohnsen,
verkefnastjóri. Vinsamlegast hafið samband í netfang
ragny@hi.is eða hringið ísíma 525 5204