Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.03.2004, Page 8

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.03.2004, Page 8
Margrét Guðmundsdóttir Skóli Félags íslenskra hjúkrunarkvenna Félag íslenskra hjúkrunarkvenna var stofnað í árslok 1919. Megintilgangur stofnfélaganna var að undirbúa kennslu í hjúkrun hér á landi. Félagskonum var efst í huga að reyna að tryggja væntanlegum landspítala nægilega margar menntaðar hjúkrunarkonur. Þær ákváðu því að skipuleggja nám í hjúkrun hér á landi á vegum félagsins. Sú ákvörðun tryggði ekki aðeins fjölgun innan stéttarinnar og framþró- un hjúkrunar á Islandi. Forystukonum félagsins voru auk þess tryggð bein áhrif á mótun íslenskra hjúkrunarkvenna næstu áratugi því stjórnarkonur höfðu á höndum val þeirra einstaklinga sem fengu að spreyta sig á námi í hjúkrun. Bakgrunnur hjúkrunarnema og uppbygging námsins A árunum 1921 til 1930 sóttu ríflega 140 konur um nám á vegum félagsins. Flestar eða um 63% voru á aldrinum 20 til 25 ára en meðalaldur umsækjenda var 24 ár. Liðlega helming- ur þeirra voru bændadætur og höfðu alist upp við sveitastörf en örfáir embættis- og menntamenn áttu dætur í hópi þeirra sem sóttu um nám í hjúkrun. Flestar höfðu Iokið barnaskóla- prófi en fjórðungur ekki stundað formlegt nám eftir það. Ríf- lega 20 umsækjendur höfðu sótt unglingaskóla, 15 gengið í kvennaskóla en aðeins átta tekið gagnfræðapróf. Konur, sem óskuðu eftir að hefja nám hjá félaginu, höfðu yfirleitt tölu- verða starfsreynslu að baki. Ferill þeirra eftir að æskuárum sleppti var engu að síður býsna áþekkur. Langflestar eða 105 höfðu starfað um lengri eða skemmri tíma sem vinnukonur. I hópnum voru 12 saumakonur og 9 verslunarstúlkur en aðeins 6 verkakonur. Tæp 19% umsækjenda höfðu aflað sér nokkurr- ar starfsreynslu innan heilbrigðisþjónustunnar (Margrét Guð- mundsdóttir, handrit). Hjúkrun á sjúkrahúsum. Sjúkrahús. 1. myml. Búnitigur hjúkruttar- konu Rauða krossins Svipaður búningur tíðkastá sjúkrahúsum. Einhver vönduðustu hús, sem nú eru reist í stórbæjum allra menningarlanda, eru al- mennu sjúkrahúsin, þar sem allskonar sjúkdómar eru hafðir til meðferðar. Fyrrum voru sjúkrahúsin venjulega bygð inni i borgunum miðjum. Nú er vant að velja þeim stað utarlega eða utan við fjölbýli borganna, fjarri skark- ala, ryki og reyk, í hreinu lofti og betra næði. Og í kringum þau er plantað blómjurtum og trjám, þar sem sjúkling- ar geta hafst við undir beru lofti, þegar þeim er farið að batna. Ýms eldri sjúkra- Íiús eru ein samanhangandi, marglyft bygging livert og rúma mörg hundruð sjúklinga auk þjónustufólks. En reynsl- an hefir sýnt það óhentugt á ýmsan lrátt, að hafa svo mikinn mannfjölda saman kominn undir einu þaki (t. d. meiri hætta, ef eldsvoða ber að hönd- um, eða þegar næmir sjúkdómar koma upp). Ennfremur óþægilegt, að hafa margar hæðir með nrörgum stigum og jafnvel þó að lyftivjelar til aðdrátta og mannflutninga komi í stað stiganna. Þess Úr riti Steingríms Matthiassonar, héraðslæknis á Akureyri, Hjúkrun sjúkra, sem gefið var út árið 1923. Þetta var fyrsta frumsamda kennslubókin i hjúkrunarfræði sem kom út á íslandi. Kennsla hjúkrunarnema var laus í reipunum og hvfldi á vilja og dugnaði spítalalækna. Þeir fengu ekki laun fyrir fræðsluna og urðu að bæta henni við önnur störf. Árið 1925 samþykkti Félag ís- lenskra hjúkrunarkvenna reglugerð um námið. Þar var meðal annars lcveðið á um að læknar skyldu sjá nemum fyrir tveimur kennslustundum I upphafi bauð Félag íslenskra hjúkrunarkvenna upp á tví- skipt nám, annars vegar tveggja ára héraðshjúkrunarnám og hins vegar rúmlega þriggja ára nám. Nemarnir fengu þjálfun á sérhæfðum sjúkrastofnunum og almennum spítölum. Þeir sem lögðu stund á héraðshjúkrun fengu auk þess starfsþjálf- un í heimahjúkrun og heilsuvernd hjá Hjúkrunarfélaginu Líkn f Reykjavík. Menntun þeirra sem völdu lengra námið var tví- skipt. Fyrstu tvö árin dvöldu þeir við nám og störf á sjúkra- stofnunum á Islandi en síðan fóru þeir utan og Iuku þar fulln- aðarnámi. Félagið samdi við sjúkrahús í Danmörku og Noregi um að taka við nemunum. á viku á tímabilinu 1. október til 1. maí eða 56 stundum á ári. Auk þess var talið „mjög æskilegt" að yfirhjúkrunarkonur veittu klukkustundar til- sögn í hjúkrunaraðferðum vikulega (Fíh B/1 3, reglugerð). Félagið hafði hins vegar engin ráð til að fylgja þessum lágmarkskröfum eftir. Ummæli hjúkrunarkvenna um bóklega námið á íslandi á þriðja áratugnum hníga flest í sömu átt. Skipu- lagðar kennslustundir voru að þeirra mati alltof fáar (ÞÞ 8772, 8778 og 9310. Margrét Jóhann- esdóttir, 1950). Læknar og hjúkrunarkonur Tímarit hjúkrunarfræöinga 1. tbl. 80. árg. 2004

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.