Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.03.2004, Page 26
24
FRÁ FÉLAGINU
Vísindasjóöur
Styrkir úr vísindasjóði
Vinnuveitendur greiða sem nemur 1,5°/o af föstum dag-
vinnulaunum hjúkrunarfræðinga í vísindasjóð. Hrein eign
sjóðsins um áramót er til úthlutunar hverju sinni. Sjóður-
inn er í vörslu Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og skipt-
ist í A- og B-hluta.
A-hluti
í A-hluta koma 90% af tekjum sjóösins. Sjóönum er ætlaö að greiða
endur- og símenntun hjúkrunarfræðinga. Ekki þarf aö sækja um úthlut-
un úr A-hluta vísindasjóðs. Félagiö sér um aö greiða úr A-hluta sjóös-
ins til félagsmanna sem teljast sjóösfélagar fyrsta ársfjórðung ár hvert.
Upphæöin er lögö inn á bankareikning félagsmanna sem félagiö hefur
stofnað fyrir sjóösfélaga (mikilvægt er aö sjóösfélagar loki ekki reikn-
ingunum þegar þeir taka út af þeim til að ekki þurfi að stofna nýja
reikninga árlega). Sjóðsfélagi telst sá aöili vera sem var starfandi sam-
kvæmt kjarasamningi félagsins fyrir 1. september áriö fyrir úthlutun.
Félagsmenn, sem hafa verið í fullu starfi tímabilið 1. janúar til 30. nóv-
ember áriö fyrir úthlutun, eiga rétt á fullri úthlutun. Félagsmenn, sem
hafa unnið hlutastarf, eiga rétt á úthlutun i samræmi við vinnuframlag.
Ekki er úthlutaö til félagsmanna sem hófu störf eftir 1. september árið
fyrir úthlutun.
B-hluti
í B-hluta koma 10% af tekjum sjóðsins og skal þeim varið til aö stuðla
að aukinni fræðimennsku í hjúkrun með því að styrkja rannsóknir og
þróunarverkefni hjúkrunarfræöinga. Hjúkrunarfræöingar þurfa að sækja
sérstaklega um styrk úr B-hlutanum. Auglýst er eftir umsóknum og er
umsóknarfrestur til 15. apríl ár hvert.
Hjúkrunarfræðingar, sem eiga aðild að sjóönum, geta sótt um styrk til
að vinna rannsóknarverkefni til M.S. eöa doktorsgráðu. Lokaverkefni
hjúkrunarnema í B.S. námi eru ekki styrkhæf.
I umsókn um styrk er óskað eftir :
• heiti verkefnisins
• starfsferilskrá umsækjanda (menntun, starfsreynslu,
reynslu af rannsóknarvinnu og greinaskrifum).
• upplýsingum um hvers eölis verkefnið er
• lýsingu á verkefninu
• lýsingu á stöðu þekkingar á sviði verkefnisins
• framkvæmdaáætlun
• kostnaöaráætlun
• upplýsingum um aöra styrki sem sótt er um eða verk-
efnið hefur hlotiö
Við mat á umsóknum fyrir B-hluta vísindasjóðs er
tekið mið af:
• markmiði höfunda með verkefninu
• mikilvægi verkefnisins
• hvort verkefnið leiðir til nýrrar þekkingar eða þróunar
• reynslu og faglegri þekkingu umsækjenda
• framkvæmda- og kostnaðaráætlun
Styrkur úr B-hluta vísindasjóðs er greiddur út í tveimur
áföngum. Um miðjan maí er greiddur út helmingur og
þegar styrkþegi hefur skilað inn lokaskýrslu til stjórnar
vísindasjóðs eru eftirstöðvar styrksins greiddar. Æskilegt
er að verkefnum Ijúki með birtingu greinar í Tímariti Fé-
lags íslenskra hjúkrunarfræðinga.
Sé ekki úthlutað aö fullu úr B-hluta þá leggst afgang-
urinn viö sjóðinn næsta ár á eftir. Verði ekkert úr verk-
efni eða þvi ekki lokið af einhverjum ástæöum skal
styrkþegi gera stjórn sjóðsins grein fyrir ástæðum þess
og endurgreiða þann hluta styrksins sem ekki hefurver-
iö notaöur til verkefnisins.
Þegar andlát
ber að höndum
Önnumst alla þætti útfararinnar.
Vesturhlíð 2
Fossvogi
Sími SS1 1266
www.utfor.is
Við Útfararstofu kirkjugarð-
anna starfa nú 14 manns
með áratuga reynslu við
útfaraþjónustu. Stærsta
útfararþjónusta landsins
s?-0 með þjónustu allan
'T sólarhringinn.
Prestur
Kistulagning
Kirkja
Legstaður
Kistur og krossar
Sálmaskrá
Val á tónlistafólki
Kistuskreytingar
Dánarvottorð
Erfidrykkja
UTFARARSTOFA
KIRKJUGARÐANNA EHF.
Auglýst er eftir umsóknum um styrki úr B-hluta
vísindasjóðs Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga.
Umsóknarfrestur er til 15. apríl. Umsóknum skal
skila á skrifstofu félagsins að Suðurlandsbraut 22 í
fimmriti á þar til gerðu eyðublaði. Umsóknareyðu-
blað er hægt að nálgast á skrifstofu félagsins sem
og á vefnum hjúkrun.is. Þar kemur fram hvaða
upplýsingar eru nauðsynlegar og hvaða fylgiskjölum
þarf að skila.
Tímarit hjukrunarfræöinga 1. tbl. 80. árg. 2004