Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.03.2004, Blaðsíða 29
Fréttamolar...
Hjúkrun 2004 hefur sína eigin vefsíðu undir vef-
síðu félagsins. Utlit hennar ber einkenni ráðstefn-
unnar og á þeirri síðu má lesa upplýsingar um ráð-
stefnuna, skrá útdrátta og þar má skrá sig rafrænt
á ráðstefnuna.
Veistu eitthvað um hjúkrun? Þessari spurningu var
velt yfir á þjóðina með miklu átaki sem virðist hafa
skilað tilætluðum árangri. Atakið á sér eigin vef-
síðu sem er auglýst með reglulegu millibili, eink-
um þegar ungt fólk er að afla sér upplýsinga um
háskólamenntun. A síðum átaksins er gífurlegt
efni um hjúkrun og hjúkrunarfræðinga sem gefur
góða mynd af starfi þeirra.
Atvinnumál hjúkrunarfræðinga ættu að vera virk-
ur þáttur á vefsíðu félags þeirra. Nú er unnið að
könnun meðal stjórnenda um hugþeirra til Starfa-
torgs á rafrænu formi á vefsvæði félagsins. Um er
að ræða uppfærðar auglýsingar um lausar stöður
hjúkrunarfræðinga, á vefsvæði sem eingöngu er
beint til þeirra. Þetta gefur stofnunum beinan að-
gang að þeim hópi fólks sem stofnunin leitar að.
Mikill áhugi er fyrir því hjá dönskum systursam-
tökum Fíh, DSR, að tengjast slíku starfatorgi og
miðla þannig upplýsingum um laus störf á öllum
Norðurlöndum á milli landanna. DSR miðlar í dag
upplýsingum um lausar stöður hjúkrunarfræðinga
í Danmörku, Noregi, Grænlandi og Færeyjum til
vefnotenda á vefsíðu sinni www.dsr.dk.
Vefsíða félags íslenskra hjúkrunarfræðinga á að
vera gagnvirk og mótast af þeim kröfum sem
hjúkrunarfræðingar gera til hennar hverju sinni.
Uppbyggingu hennar eru auðvitað sett ákveðin
mörk af fjárhagslegum sem og tæknilegum ástæð-
um, en félagið hefur einsett sér að innan þeirra
marka eigi vefsíðan að veita félagsmönnum bestu
fáanlega þjónustu.
Rannsóknir íslensks hjúkrunarfræöings verölaunaöar
Erlín Óskarsdóttir hlýtur rannsóknarverölaun Klini-
drape og EORNA á ráöstefnu á Krít
íslenskur skuröhjúkrunarfræöingur, Erlín Óskarsdóttir, hlaut verölaun
rannsóknarsjóðs Klinidrape og EORNA á 3. ráöstefnu evrópskra skurö-
hjúkrunarfræöinga (EORNA) sem haldin var á Krít 10. til 13. apríl sl.
Erlín hlýtur verðlaunin fyrir rannsókn sem var hluti af lokaverkefni
hennar til meistaraprófs og fjallaði um líðan sjúklinga sem dvelja í tvo
sólarhringa eöa minna á sjúkrahúsi eftir skurðaögerö.
Verölaunin eru veitt þriöja hvert ár úr sjóði sem stofnaður var 1997 í
Brussel á fyrstu Evrópuráðstefnu EORNA. Tilgangur sjóösins er aö
stuðla að rannsóknum innan skuröhjúkrunar. Fyrst var keppt í hverju
aðildarlandi en þau eru 23 innan EORNA. Fagdeild skurðhjúkrunarfræð-
inga (ISORNA) hefur veriö aöili aö EORNA frá árinu 2000. Verkefni
Erlínar vann til verðlauna hér á landi og var sent áfram í úrslitakeppn-
ina þar sem þaö keppti viö vinningshafa frá öörum aðildarlöndum.
Rannsókn hennar var valin sú besta af vísindanefnd E0RNA. Erlín flutti
erindi um rannsókn sína á ráöstefnunni sem var sótt af rúmlega 1.800
hjúkrunarfræðingum frá 39 löndum.
Erlín Óskarsdóttir, skurðhjúkrunarfræðingur, er deildarstjóri á skurðdeild
FISS. Hún útskrifaðist sem hjúkrunarfræöingur áriö 1971, sem skuröhjúkr-
unarfræðingur áriö 1979 og lauk B.Sc. prófi í hjúkrun áriö 1997. Hún lauk
meistaraprófi frá hjúkrunarfræðideild Háskóla íslands áriö 2002.
Rannsóknarstyrkurinn, sem Erlín hlýtur, er kenndur viö Klinidrape sem
er vörumerki fyrir margvíslegar skurðstofuvörur. Þær eru framleiddar af
Mölnlycke Health Care, aöalstyrktaraöila ráðstefnunnar á Krít. Rekstr-
arvörur eru umboðsaðili fyrir Mölnlycke Health Care og Klinidrape á ís-
landi og hafa átt samstarf við fagdeild skurðhjúkrunarfræöinga í aö-
draganda ráðstefnunnar vegna styrkveitingar Klinidrape og EORNA.
Til hamingju meö afmæliö!
Afmælisár Félags íslenskra hjúkrunarfræöinga 2004
í ár eru liðin 85 ár frá því aö hjúkrunarfræðingar stofnuöu meö sér fé-
lag en það var síðla hausts 1919 aö Félag íslenskra hjúkrunarkvenna var
stofnað. l’ byrjun árs voru einnig liðin 10 ár frá því aö hjúkrunarfræð-
ingar sameinuðust í eitt félag, Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga, en
stofnfundur þess var haldinn í Borgarleikhúsinu 15. janúar 1994.
Afmælisárið hófst formlega 15. janúar sl. Af því tilefni
sendi Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga öllum félags-
mönnum sínum afmælisnælu sem útbúin haföi verið
sérstaklega í tilefni afmælisársins. Eru hjúkrunarfræö-
ingar hvattir til að bera hana afmælisárið og minnast
þannig þessara tímamóta svo og sem virðingarvott
við sögu hjúkrunar og framlag hjúkrunarfræðinga til
íslensks samfélags i 85 ár.
Afmælisins verður einnig minnst á alþjóðadegi hjúkr-
unarfræðinga 12. mai og að lokum verður haldið
hjúkrunarþing og afmælishóf 5. nóvember 2004.
Nánari upplýsingar birtast jafnóðum á vefsíðu félagsins, www.hjukrun.is.
Timarit hjúkrunarfræöinga 1. tbl. 80. árg. 2004