Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.03.2004, Page 53
PSN samskipti
frædideild Máskóla fslands
UPPLÝSINGATÆKNI
Námskeið í kjarna (18e)
Þekkingarþróun í hjúkrunarfræði (4e)
Megindleg aðferðafræði (4e)
Egindleg aðferðafræði (4e)
Tölfræði og rannsóknaraðferðir I (5e) Félagsvísindadeild
Málstofa (1 e)
Námskeið tengd upplýsingatækni (12-27e)
samkvæmt samkomulagi við umsjónarkennara og
meistaranámsnefnd nemanda.
$
Rannsóknarverkefni (15e/30e)
Einnig má benda á kafla um þverfaglegt nám í kennsluskrá
Háskóla íslands, þar sem fjallað er um nám í upplýsingatækni
á heilbrigðissviði.
4. Námsleið í stjórnun
Með þessari námsleið gefst hjúkrunarfræðingum eða
umsækjendum með sambærilegt B.S.-próf tækifæri til að
Ijúka meistaranámi í stjórnun. Markmiðið er að leggja
grunn að hagnýtri þekkingu sem nýtist í stjórnunarstarfi.
Námskeið í kjarna (34e)
Þekkingarþróun i hjúkrunarfræði (4e)
Megindleg aðferðafræði (4e)
Eigindleg aðferðafræði (4e)
Tölfræði og rannsóknaraðferðir I (5e) Félagsvísindadeild
Stjórnun I (3e)
Stjórnun II (4e)
Málstofa (1 e)
Inngangur að rekstri og stjórnun (3e) Viðskiptadeild
Rekstur opinberra stofnana, stjórntæki og eftirlit (3e) Fél.v.deild
Stjórnun og starfsumhverfi heilbrigðisstofnana (3e) Féi.v.deild
Valnámskeið á sviði stjórnunar (11 e)
Nemandi velur námskeið á meistarastigi í stjórnun sem kennd
eru við Háskóla íslands eða aðra skóla á háskólastigi hér
á landi eða erlendis.
Rannsóknarverkefni til meistaraprófs (15e)
Ragný Þóra Guðjohnsen, verkefnastjóri
framhaldsnáms veitir ráðgjöf um framhalds-
nám. Netfang hennar er ragny@hi.is
og sími 525-5204 j
Nám í upplýsingatækni í heilbrigðisvísindum er
tveggja ára þverfaglegt, rannsóknatengt nám á
meistarastigi, sem hefst haustið 2004. Námið er
skipuiagt sameiginlega af þeim háskóladeildum
sem aðild eiga að náminu, sem eru félagsvísinda-
deild, hjúkrunarfræðideild, lyfjafræðideild, lækna-
deild og verkfræðideild.
Tilgangur og markmið
Tilgangur námsins er að veita þverfaglega, hagnýta,
sem og fræðilega menntun til starfa á ýmsum sviðum
er snerta upplýsingatækni á heilbrigðissviði.
Markmið námsins er að koma til móts við þarfir
samfélagsins um rannsóknir, þróun, þjónustu og
stefnumótun sem tengist skráningu, meðhöndlun
og vinnslu gagna á sviði heilbrigðismála.
Fyrir hverja er upplýsingatækni á heilbrigðissviði?
Nemendur þurfa að hafa lokið B.S., B.A. eða öðru
háskólanámi sem metið er jafngilt fyrsta háskólaþrófi.
Styrkur þverfaglegs náms birtist meðal annars í
samstarfi ólíkra greina innan Háskóla íslands. Má
þar nefna allar heilbrigðisvísindagreinar, lögfræði,
verkfræði, tölvunarfræði, upplýsingafræði, siðfræði,
stjórnun, tölfræði og aðferðarfræði svo dæmi séu nefnd.
Hvað er upplýsingatækni á heilbrigðissviði?
Upplýsingatækni á heilbrigðissviði fjallar um þætti sem
lúta að skráningu, meðhöndlun og vinnslu gagna og
uþþlýsinga, sem notuð eru í heilbrigðisþjónustu,
stjórnun, rannsóknum, við eflingu þekkingar á sviði
heilbrigðismála og kennslu. Greinin samþættir ýmsar
fræðigreinar, svo sem heilbrigðisvísindi, tölvunarfræði,
og upplýsingafræði og beitir viðeigandi tækni
(tölvutækni, samskiptatækni, rafeindatækni) eftir því
sem við á. Upplýsingatækni miðar að því að samþætta
gögn, upplýsingar og þekkingu sem stutt getur heilþrigðis-
starfsmenn, stjórnendur og sjúklinga við ákvarðanatöku.
Slíkur stuðningur næst með skipulegri uppbyggingu
gagna, vinnslu upplýsinga og tækniþekkingu.
Allar nánari uþþlýsingar er að finna í kennsluskrá
Háskóla íslands, kafla um þverfaglegt nám.