Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.2005, Page 8

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.2005, Page 8
Herdís Sveinsdóttir, dósent, hjúkrunarfraeöideild Háskóla íslands Tekist á við tíðahvörf Um líðan og afstöðu 47 til 53 ára kvenna til tíðahvarfa og notkunar tíðahvarfahormóna Útdráttur Bakgrunnur: Notkun tíöahvarfahormóna jókst mjög upp úr 1990. Niðurstöður bandarískrar rannsóknar frá árinu 2002 sýndu óvænt aö áhætta af notkun tíðahvarfahormóna var meiri en taliö hafði verið. Markmið: Lýsa hvað hefur áhrif á ákvörðun kvenna um að nota tíðahvarfahormóna, líðan þeirra við tíðahvörf, viðhorfum til tíðahvarfa og til notkunar tíðahvarfahormóna, mati þeirra á fræðslu sem þær hafa fengið um tíðahvörf og afstöðu þeirra til ýmissa atriða sem tengjast þekkingu á fýrrnefndri rannsókn. Aðferð: Spurningalisti byggður á tvíkosta spurningum, einföldum fjölvalsspurningum og viðhorfaspurningum, var sendur 1000 konum á aldrinum 47-53 ára völdum af handahófi úr þjóðskrá. Svörun var 56%. Niðurstöður: 252 þátttakendur höfðu notað tíðahvarfahormón og voru 46% þeirra hættir notkun. Yngri konur höfðu síður notað hormón en þær eldri. Helstu ástæður notkunar voru hitakóf, svitakóf og svefntruflanir. Eldri konur og notendur hormóna höfðu jákvæðara viðhorf til notkunar hormóna en hinar. Hins vegar hafa þær sem aldrei hafa notað hormón jákvæðari viðhorf til tíðahvarfa en notendur hormóna. 51% þátttakenda sagðist hafa fengið næga fræðslu um tíöahvörf og 84% sögðu að fræðslan mætti vera meiri á vegum heilbrigðisyfirvalda. Eldri konur höfðu oftar fengið fræöslu en þær yngri, og notendur hormóna voru frekar á því að fræðsla á vegum heilbrigðisyfirvalda væri ekki nægileg en þær sem aldrei hafa notað hormón. Helstu uppsprettur fróðleiks um tíðahvörf eru fjölmiðlar og vinkonur. Algengast er að konur ræði við lækni um notkun hormóna. 65% hafði heyrt af ofannefndri rannsókn og sagði stór hluti notenda hormóna að niðurstöðurnar hefðu valdið því að þær hefðu hætt eða hugleitt að hætta að nota hormón. Meðal kvenna, sem hugleiða að hefja notkun hormóna, skiptir miklu máli að ekki er nóg vitað um áhættu af notkun hormóna. Lokaorð: Rannsókn þessi sýnir aö íslenskar konur á tíðahvarfaaldri hafa dregið úr notkun tíðahvarfahormóna frá árinu 2002. Þær vilja fá greinargóðar upplýsingar um hormónameðferð og telja að fræðsla um tíðahvörf ætti að vera meiri á vegum heilbrigðisyfirvalda. Helst leita þær ráða hjá lækni um notkun hormóna. Lykilorö: Heilbrigði kvenna, tíðahvörf, viðhorf, ákvarðanataka, tíðahvarfahormón. Abstract Background: The unexpected findings of the WHI-study, made public in July 2002, showed that the risk of using combined hormone therapy (HT) exceeded its benefits. This complicated women's decision making about whether to use HT or not and makes it important to study the determinants of women's attitudes to HT. Aim: This study sought to illuminate what influences women’s decisions about HT, describe the extent and source of menopausal education, symptom experience, health and lifestyle, knowledge about the findings of the WHI-study and attitudes towards HT and towards menopause. Methods: A self-administered questionnaire based on dichotomous questions, multiple choice questions and questions on attitudes, was mailed to 1000 women randomly selected from the National Registry of lceland. Response rate was56%. Findings: 252 participants had used HT and 46% had stopped its use. Younger women were less likely to use HT. The reasons given for HT use were mostly symptom management. Older women and users of HT held more positive view towards HT than the comparison groups. However, never HT users held more positive attitudes towards menopause than users. 51% of participants received adequate menopausal education while 84% stated that the health. authorities should provide more menopausal education. Major source of menopausal education was media and female friends. The participants discussed use of HT mostly with a physieian. 65% had heard about the WHI-study and the findings influenced the decision of a large proportion of HT users as well as women intending to use HT about whether to continue, stop, or start using HT. Conclusion: Perimenopausal lcelandic women have stopped or are considering to stop using HT due to the findings of the WHI-study. They also want more menopausal education provided by the health authorities. Physicians are very influential in their decision making regarding HT use. Key words: Hormone replacement therapy: Women's health; Menopause; Attitudes; Decision making. Tímarit hjúkrunarfræöinga 4. tbl. 81. árg. 2005

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.