Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.2005, Blaðsíða 11

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.2005, Blaðsíða 11
RITRÝND GREIN Tekist á viö tíðahvörf hugleitt að hefja hormónanotkun og þeir sem höfðu hætt hormónanotkun, voru spurðir um ástæður þess og eru svarmöguleikar í töflu 7. Til að mæla viðhorf til tíðahvarfa var notaður listi sem saminn var af Hvas, Thorsen og Söndergaard (2003). A þeim lista eru 6 fullyrðingar og eru svarmöguleikarnir sammála, ósammála eða hlutlaus. Dæmi um fullyrðingar eru: Tíðahv'örf eru góð reynsla fyrir konur og Tíðahv'örf eru slæm upplifun fyrir konur. Við áreiðanleikaprófun á listanum voru tvær fullyrðingar felldar út og byggist úrvinnslan því á samanlögðum svörum við fjórum fullyrðingum. Spönnun svara er frá 1 til 3 og er hátt meðaltal vísbending um jákvætt viðhorf. Cronbach's-a mældist 0,72. Til að mæla viðhorf til notkunar tíðahv'arfahormóna var notaður listi sem \'ar saminn af sömu höfundum og fyrri listinn. Á þeim lista eru 7 fullyrðingar og eru svarmöguleikarnir þeir sömu og á fyrri Iistanum. Dæmi um fullyrðingar eru: Hormónameðferð á að forðast, Hormónameðferð er góð lausn ef þú hefur mörg einkenni og Hormónameðferð fylgir fjöldi aukaværkana. Cronbach's-X fyrir þennan lista mældist 0,84. Viðhorfalistarnir voru þýddir og staðfærðir af rannsakendum og bakþýddir af tveim hjúkrunarfræðingum (Eva Sædís Sigurðardóttir o.fI., 2004). Úrvinnsla gagna Við lýsandi úrvinnslu gagna voru niðurstöður skoðaðar út frá eftirtöldum þrem breytum: aldri, því hvort 1. viðkomandi væri komin á tíðahvörf, 2. væri ekki komin á tíðahvörf eða vissi ekki af því og 3. út frá notkun tíðahvarfahormóna. Notkun tíðahvarfahormóna var skipt í þrennt: hef aldrei notað, hef notað en er hætt og nota núna. Við úrvinnslu gagna var notað tölfræðiforritið Statistical Package for the Social Sciences (SPSS, 2001). Frekari greining gagna byggðist á lýsandi tölfræði og var marktækni mæld með kíkvaðratprófi, Fisher-exact-prófi og dreifigreiningu (ANOVA). ðdarktæknimörk voru sett við p < 0,05. Vísindasiðanefnd veitti leyfi til rannsóknarinnar. Niðurstöður Úrtak Meirihluti þátttakenda var í sambúð eða giftur (76%), átti 2 til 3 börn (70%) og vann 80% starf eða meira utan heimilis (76%). Svipað hlutfall þátttakanda hafði lokið grunnskóla- eða gagnfræðaprófi (33%) og háskólaprófi (32%). Afgreiðslu- eða þjónustustörf voru aðalstarf 23%, 25% unnu sérfræðingsstörf, 21% skrifstofustörf og 14% voru stjórnendur eða atvinnurekendur. Rúmur helmingur þátttakenda (52%); var kominn á tíðahvörf, fimmtungur ekki og rúmur fjórðungur (28%) sagðist ekki vita hvort svo væri. Þrjár spurningar mátu almenna heilsu: „Hversu góð eða slæm er líkamleg líðan þín?“; „Hversu góð eða slæm er andleg líðan þín?“ og „Telur þú heilsu þína almennt vera:“. Svarmöguleikarnir við þessum spurningum voru mjög góð(a)/ góð(a)/sæmileg(a)/slæm(a). Ein spurning var um samanburð við aðrar konur: „Hvernig telur þú heilsu þína vera miðað við aðrar konur á þínum aldri?“ (verri en heilsu flestra/svipaða og heilsu flestra/betri en heilsu flestra). Til að afla upplýsinga um aðra meðferð en hormóna var spurt: „Hefur þú notað einhverja af eftirfarandi meðferðum vegna einkenna sem tengjast tíðahvörfum?" Svarmöguleikarnir eru í töflu 9. Spurningalistinn í heild var forprófaður á 10 konum á aldursbilinu 47 - 53 ára og voru gerðar smávægilegar breytingar á honum í kjölfar þess. Notkun tíöahvarfahormóna 252 þátttakendur (45%) sögðust einhvern tíma hafa notað tíðahvarfahormón og voru 46% þeirra hættir notkun. Tafla 1. Hlutfall kvenna sem notaö hefur tíðahvarfahormón út frá fæðingarári og hvort þær segjast vera komnar á tíöahvörf Notað tíðahvarfahormón Ertu komin á tíðahvörf? (N=535l* Já 66% Nei 16% Veit ekki 30% Fæöinqarár (N=552)** 1951 70% 1952 59% 1953 50% 1954 45% 1955 39% 1956 25% 1957 28% *x2 (2)=96,373; p<0,001 **x2 (6)=52,981: p<0,001 Tímarit hjúkrunarfræöinga 4. tbl. 81. árg. 2005
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.