Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.2005, Qupperneq 26

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.2005, Qupperneq 26
Tímarit hjúkrunarfræðinga í 80 ár Þann 25. nóvember var haldinn hátíðarfundur á Grand hóteli í tilefni þess að 80 ár eru liðin frá því fyrsta tölublað tímarits hjúkrunarfræðinga, eða hjúkrunarkvenna eins og stéttin nefndist þá, kom út. Fundurinn hófst með því að Fríða Bjarnadóttir kom inn í salinn klædd kápu og slörhatti frá 1926 sem notuð var af hjúkrunarfræðingum í heimahjúkrun og reiddi reiðhjól sér við hlið en það var farartæki þeirra kvenna sem fóru á milli heimila til að hjúkra. Þá spiluðu börn úrSuzukitónlistarskólanum Allegro nokkur lög á fiðlu. Margrét Guðmundsdóttir rakti sögu tímarits hjúkrunarfræðinga og kom margt óvænt þar fram. Þá fjallaði Kristín Björnsdóttir um hvernig hjúkrunarfræðingar koma þekkingu sinni og reynslu á framfæri í dag og horfði einnig fram á veginn. Þá flutti Valgerður Katrín Jónsdóttir ritstjóri hugleiðingu um framtíð tímaritsins. Elsa B. Friðfinnsdóttir, formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga, sagði frá fyrstu niðurstöðum lesendakönnunar tímaritsins. Sigþrúður Ingimundardóttir, for- maður ritnefndar, var fundarstjóri. Erindi þeirra Margrétar og Kristínar verða birt í næsta tölublaði og þar verður einnig sagt frá niðurstöðum lesendakönnun. Að lokinni dag- skrá var boðið upp á kaffi og afmælisköku. Sigþrúöur Ingimundardóttir og Aöalbjörg Finnbogadóttir. Ragnar Hauksson, prófarkarlesari og Bryndís Kristjánsdóttir, fyrrum ritstjóri. Fríða Bjarnadóttir, klædd Kápu og slörhattí frá 1926. 24 Tímarit hjúkrunarfræðinga 4. tbl. 81. árg. 2005

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.