Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.2005, Síða 29
80 ARA AFMÆLI
Frá fyrrum ritstjórum tímarita
hjúkrunarfræðinga
íslenskt mál og fleira. Ráðstefnan var haldin á Hótel Loftleiðum.
Þátttakan var góð og tókst þetta framtak vel. Fyrirlesararnir,
sem allir voru sérfræðingar hver á sínu sviði
gerðu þetta endurgjaldslaust. Frásögn um
þetta fræðsluátak er að finna í HJÚKRUN 2.
tölublað 1980.“
Lokaorð Ingibjargar eru þessi: „Mig langar að
þakka samstarfsfólki við gerð blaðsins fyrr og
síðar fyrir ánægjulegt samstarf. Einnig langar
mig að senda kveðjur til allra lesendanna, sem
eru margir. Ég er ánægð með það starf sem
ég hef unnið og er líka stolt af því. Eg vona að
blaðið haldi áfram að dafna og það verði ekki
kvikað frá þeim gæðastaðli sem stjórn félagsins
okkar og ritstjórn settu 1925.“
Hún segir þessi ár hafa verið mjög ánægjuleg
en starfið var mjög bindandi og það blað sem
viðtalið birtist í var unnið í veikindaleyfi eftir
uppskurð þrátt fyrir strangt vinnubann læknis.
En gefum Ingibjörgu orðið í áðurnefndu viðtali:
„Hjúkrunarblaðið, er þriðja elsta fagblað áj
landinu, hefur verið gefið út óslitið frá 1925.:
Markmiðið var að gefa út fjögur tölublöð á ári,
frá því hafa verið örfáar undantekningar" og
hún bætir við „einnig var afar erfitt, svo ekki sé
meira sagt, að gefa út blað í ágúst, ef einhverjir
möguleikar áttu að vera á sumarfríi. Ég fór
yfirleitt ekki lengur frá en tvær vikur í senn og í
flestum tilvikum með prófarkir eða annað ámóta
með mér. Það var þá tekið upp þegar stund gafst
og ekki ósjaldan einhverjum úr fjölskyldunni
boðið upp á þann ánægjuauka að aðstoða við
samlestur.
Mitt leiðarljós við uppbyggingu blaðsins hefur
verið að auka þáttöku hjúkrunarfræðinga í mótun
og eflingu þess. Eftir að Nýi hjúkrunarskólinn fórj
að útskrifa hjúkrunarfræðinga með sérmenntun,j
varð stökkbreyting hvað varðar faggreinaskrif
hjúkrunarfræðinga. Til enn frekari eflingar varl
ákveðið í ritstjórn að gangast fyrir ráðstefnu um
samningu greina, heimildalista, fréttatilkynninga,
GEÐ0RÐ1N 10
1. Hugsaðu jákvætt, það er léttara
2. Hlúðu að því sem þér þykir vænt um
3. Haltu áfram að læra svo lengi sem þú lifir
4. Lærðu af mistökum þínum
5. Hreyfðu þig daglega, það léttir lundina
6. Flæktu ekki líf þitt að óþörfu
7. Reyndu að skilja og hvetja aðra í kringum þig
8. Gefstu ekki upp, velgengni í lífinu er langhlaup
9. Finndu og ræktaðu hæfileika þína
10. Settu þér markmið og láttu drauma þína rætast
Mmntmnt
LYÐHE I LSUSTÖÐ
- lifiö heil
Lýðheilsustöð • Laugavegi 116 • 105 Reykjavik
www.lydheilsustod.is
Tímarit hjúkrunarfræöinga 4.