Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.2005, Blaðsíða 35

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.2005, Blaðsíða 35
80 ÁRA AFMÆLI Frá fyrrum ritstjórum tímarita hjúkrunarfræöinga Mest spennandi fyrir mig var þó að fylgjast með á skurðstofunni en það gerði ég í tvígang, annars vegar til að fylgjast með starfi svæfingarhjúkrunarfræðings og hins vegar skurðhjúkrunarfræðings. Spenningurinn var ekki síst vegna þess að þarna var ég að fara inn á afar framandi svæði (er íslenskufræðingur að mennt) og svo vissi ég ekkert hvernig mér myndi líða við að sjá fólk skorið. Auk þess að tala við og fylgjast með gjörðum hjúkrunarfræðingsins þurfti ég að taka Ijósmyndir (ritstjórar Tímaritsins hafa þurft að vera mjög fjölhæfir!) og þá auðvitað líka nærmyndir. Fyrst fylgdist ég með skurðhjúkrunarfræðingi í aðgerð á Landspítalanum í Fossvogi þar sem verið var að gera við æð í kálfa. Tekin var æð úr læri og hún sett í stað ónýtrar í kálfanum. Síðan fylgdist ég með svæfingarhjúkrunarfræðingi að störfum í skurðaðgerð á Landspítalanum við Hringbraut þar sem karlmaður með krabbamein í blöðruhálskirtli var skorinn upp. Að sjálfsögðu klæddist ég á sama hátt og aðrir sem á skurðstofunni voru, þ.e. græna gallanum, grímu og inniskóm, en fannst ég samt þurfa að láta lítið fyrir mér fara svo ég flæktist ekki fyrir. En mér til mikillar undrunar leið mér bara vel í skurðstofuumhverfinu. Engin óhugnaðartiifinning gerði vart við sig né yfirliðstilfinning við skurðinn eða blóðið og ég tók nærmyndir eins og ekkert væri. Ég man þó að þegar Eiríkur Jónsson, þvagfæraskurðlæknir, bauð mér að lcoma nær svo að ég sæi betur ofan í kviðarholið til að talca nærmyndir þá fannst mér örlítið óþægileg lyktin. Annað var það ekki. Ég skráði hjá mér samviskusamlega það sem fram fór í þessum tveimur aðgerðum sem ég var viðstödd - auðvitað með megináherslu á það sem hjúkrunarfærðingarnir voru að gera — bæði í máli og myndum. Ekki man ég betur en að báðar greinarnar hafi hlotið góðar viðtökur og vonandi náð tilganginum, þ.e. að „lokka“ fleiri hjúkrunarfræðinga í fagfélag svæfingar- og skurðhjúkrunarfræðinga en á þessum tíma var nokkur ótti yfir því að lítil sem engin nýliðun væri í þessum fagstéttum. En örlögin Iáta ekki að sér hæða - örfáum vikum síðar lenti ég sjálf í aðgerð hjá einum af læknunum sem ég hafði verið að fylgjast með í Fossvoginum! Þetta var á þeim tíma þegar verið var að endurnýja þar allt innanhúss og þegar ég kom á skurðstofuna var verið að bora og ég hugsaði með mér: „Á ég nú að þurfa að hlusta á þetta allan tímann!“ En svo kom hjúkrunarfræðingurinn og sprautaði mig og sagði: „Teldu nú upp á 10.“ Og ég taldi: „Einn, tveir..." Og vaknaði svo bara nokkuð hress nokkrum klukkustundum síðar! Brj'ndís Kristjánsdóttir, sviðsstjóri samskipa, Lýðheilsustöð LJ'élfuj tklfmrJMfi' iijúJi/iuna/t^ifeóii'ffja/ fte^u/i tíJwafíi*) fu) ífvnfla e/iJii/JaJs4hf)'tl ti*ljélafja/ otj r<>J/U/>t>ifr/bfi trvnfmtcvndb/ stijiJja at^fjféótefjan/ i/ij'iJvta/v&jái)/ cUá/ttufta/fna/á- vesju/wt/ ((Qi/vt ctiit/ftfíuiift/J utn/ 460.000 fs/uátva/f/. éJ'é/tafj/ij óétta/i/ óttuin ^éiafjAnvötvnum/ orj/ vetunttu/uinv (jta/öiif/fj/tajáia/. Tímarit hjúkrunarfræöinga 4. tbl. 81. árg. 2005 33
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.