Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.2005, Page 42
Eygló Ingadóttir, hjúkrunarfræöingur, M.S., Landspítala - háskólasjúkrahúsi
r
Nýr pistill hefur hér göngu sína. I honum veröur fjallaö um öryggi sjúklinga og eru
hjúkrunarfræöingar beönir um aö senda inn hugleiðingar á þessu sviöi
Rúmgrindur á sjúkrarúm: Eru þær nauðsynlegar?
Lítil sem engin umræöa hefur veriö meöal hjúkrunarfræðinga á íslandi um notkun rúmgrinda á báöum hliðum
sjúkrarúma. Nokkrar athyglisveröar rannsóknir hafa veriö gerðar erlendis á þessu efni. Þannig sýndi rannsókn,
sem fram fór á þremur hjúkrunarheimilum, aö rúmgrindur á báðum hliðum sjúkrarúma minnkaði ekki líkurnar
á aö sjúklingar fengju alvarlega áverka vegna byltna úr rúmum (Capezuti, Maislin, Strumpf og Evans, 2002).
Aö sögn Si, Neufeld og Dunbar (1999) geta rúmgrindur valdiö sjúklingum hættu þegar þeir reyna aö klifra yfir
þær. I rannsókn þeirra á 514 rúma sjúkrahúsi og hjúkrunarheimili var rúmgrindanotkun minnkuö kerfisbundiö
en starfsfólk, sjúklingar og aðstandendur fræddir um kosti og galla rúmgrinda. Rannsóknin tók eitt ár og í
Ijós kom aö alvarlegum áverkum fjölgaöi ekki (Si, Neufeld og Dunbar, 1999). I annarri sambærilegri rannsókn
á nokkrum öldrunarlækninga- og endurhæfingardeildum duttu jafnmargir sjúklingar og áöur úr rúmi eftir aö
hætt var aö nota rúmgrindur. Aftur á móti uröu marktækt færri alvarlegir áverkar eftir breytingarnar, þar á
meðal færri höfuöáverkar (Hanger, Ball og Wood, 1999).
Tímarit hjúkrunarfræöinga 4. tbl. 81. árg. 2005
40