Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.2005, Síða 44

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.2005, Síða 44
Dagur hjúkrunarfræðideildar Málþing um bók Kristínar Björnsdóttur, Líkami og sál - hugmyndir, þekking og aðferðir íhjúkrun Dagur hjúkrunarfræðideildar var haldinn í Norræna húsinu 1. nóvember sl. Þetta var í 6. sinn sem sérstök dagskrá er haldin í tilefni dagsins. Tilgangur dagsins er að vekja athygli á því menntunar- og fræðastarfi sem fram fer hjá deildinni og efla og styrkja tengsl hjúkrunarfræðideildarinnar við hjúkrunarfræðinga og aðra sem bera hag deildarinnar fyrir brjósti. Upphaflega skipulagði Hollvinafélag hjúkrunarfræðideildar þennan dag og átti Vilborg Ingólfsdóttir hugmyndina að honum. Nú hefur deildin sjálf tekið hátíðarhöldin að sér og helgar honum jafnframt einhvern markverðan atburð innan deildarinnar. Að þessu sinni sá Rannsóknastofnun í hjúkrunarfræði um að halda málþing um nýútkomna bók Kristínar Björnsdóttur, dósents við deildina. Bókin heitir Líkami og sál: Hugmyndir, þekking og aðferðir í hjúkrun. Dagskráin hófst með erindi Kristínar Björnsdóttur þar sem hún sagði frá því hvernig hugmyndin að bókinni varö til og hvernig hún er uppbyggð. I bókinni rekur Kristín tilurö og mótun hjúkrunarstarfsins á Vesturlöndum og ræðir um upphaf og þróun hjúkrunarfræðinnar með hliðsjón af uppgangi nútímaheilbrigðisþjónustu og í Ijósi breytinga sem orðið hafa á stöðu kvenna í samfélaginu. Hún leitast við að lýsa hugmyndum og aðferðum sem hjúkrunarfræðingar hafa beitt á ólíkum tímum og þeirri þekkingu sem starfið byggist á. Auk þess greinir Kristín þær hugmyndafræðilegu stefnur innan heilbrigðisþjónustunnar sem haft hafa áhrif innan hjúkrunarfræðinnar á tuttugustu öld, svo sem hugmyndir um samspil líkama og sálar, holdgervingu, heilbrigði og áhrif umhverfis á heilsufar. Samskiptum starfsmanna og sjúklinga eru gerð ýtarleg skil. Að lokum fjallar Kristín um stefnumörkun sem tengist heilbrigðisþjónustunni, framtíð velferðarþjónustu og hlut hjúkrunar innan hennar. Að erindi Kristínar loknu ræddi Þorgerður Ragnarsdóttir, hjúkrunarfræðingur og framkvæmdastjóri Sjónarhóls-ráðgjafarmiðstöðvar, um gildi bókarinnar fyrir sig sem hjúkrunarfræðing, Kristín Astgeirsdóttir, verkefnisstjóri Rannsóknastofu í kvenna- og kynjafræðum brást við henni sem sagnfræðingur, Geir Gunnlaugsson, barnalæknir og forstöðumaður Miðstöðvar heilsuverndar barna, lýsti meðal annars áhrifum bókarinnar á sig sem barnalækni sem starfar að heilsuvernd, Þorgerður Einarsdóttir, félagsfræðingur og dósent í kynjafræði við Háskóla Islands, ræddi um það hvort kynjasjónarhornið væri nauðsynlegt í greiningu á hjúkrunarstarfinu og Sigþrúður Ingimundardóttir, hjúkrunarforstjóri Sólvangi, kom aftur að hjúkrunarfræðinni og ræddi meðal annars um bókina með hliðsjón af áhuga sínum á sögu hjúkrunarstarfsins. Að framsögum loknum voru almennar umræður sem Herdís Sveinsdóttir, dósent við hjúkrunarfræðideild og formaður stjórnar Rannsóknastofnunar í hjúkrunarfræði, stýrði. Tímarit hjúkrunarfræöinga 4. tbl. 81. árg. 2005

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.