Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.2005, Page 45

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.2005, Page 45
Dagur hjúkrunarfræðideildar Tímarit hjúkrunarfrœöinga fékk leyfi til aö birta erindi Þorgerðar Einarsdóttur og ferþaö hér á eftir. „Kynjasjónarhorn á kvennastarf - þarf femínisma í hjúkrun?" „Fæð karlmanna innan hjúkrunarstéttarinnar er tímaskekkja,“ sagði Kristín Björnsdóttir í fróðlegu og skemmtilegu Laufskálaviðtali á Rás 1 í Ríkisútvarpinu 30. október sl. Hún og þáttarstjórnandinn, Steinunn Harðardóttir, ræddu um hugsanlegar ástæður fyrir þessu og Kristín upplýsti að við á Islandi stæðum nágrannalöndum okkar langt að baki hvað þetta varðaði. Niðurstaða þeirra var að það væri eitthvað í okkar samfélagi sem gerði það að verkum að karlar forðuðust hjúkrun. Agætt dæmi um þetta „eitthvað'* sem þær settu fingurinn á birtist í tveimur Morgunblaðsgreinum eftir Snjólf Olafssonar, prófessor í viðskipta- og hagfræðideild, 22. og 26. október 2005. Þar segir Snjólfur: „Það er munur á kynjunum. Karlar eru til dæmis að meðaltali hærri en konur þótt auðvelt sé að finna konu og karl þar sem konan er hærri. Karlar eru að jafnaði sterkari en konur. Konur lifa lengur en karlar. Konur eru næmari á tilfinningar og mynda sterkari tilfinningatengsl við ungbörn en karlar. Þetta eru dæmi um kynjamun sem telst vera eðlilegur" (Morgunblaðið 22/10 2005). Og áfram heldur Snjólfur í seinni grein sinni sem fjallar um launamun kynjanna: „Gæfa, hamingja og árangur í lífinu felst í svo mörgu öðru en háum launum. Fyrir einn eru börnin mesti auðurinn og hamingja annars felst í ferðalögum. Sumir elska að taka þátt í iífsgæðakapphlaupinu og aðrir lifa fyrir að hjálpa öðrum“. ;(Morgunblaðið 26/10 2005). Hverjir eru þessir „sumir“ og „aðrir"? Hverjir eru það sem lifa fyrir að hjálpa öðrum? Eru þetta tilviljanakennd áhugamál fólks eða hefur þetta með kyn og formgerð samfélagsins að gera? Hjúkrun er sérlega áhugavert starf fyrir kynjafræðinga. Sögulega séð hefur hjúkrunarstarfið þróast í átakalínunni milli einkasviðsins og opinbera sviðsins, það geymir mikilvæga sögu um þjóðfélagsþróunina, um samfélagslega þátttöku og Tímarit hjúkrunarfræöinga 4. tbl. 81. árg. 2005 j

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.