Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.2005, Side 48

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.2005, Side 48
í samstarfi viö Rauða krossinn Undanfarið hefur verið unnið að stofnun félags áhugafólks um verkefni af þessu tagi og hefur fjöldi sjálfboðaliða úr röðum hundaeigenda lýst yfir áhuga á að heimsækja t.d. sjúka og aldraðra, bæði í heimahús og sjúkrastofnanir. Hugmyndin er sú að félagið verði vettvangur fagfólks innan heilbrigðisgeirans og áhugasamra hundaeigenda. Akveðnar kröfur eru gerðar, bæði til sjálfboðaliða og hunda í verkefnum af þessum toga. Hundaeigendurnir munu fá þjálfun hjá Rauða krossi Islands, sem hefur um árabil skipulagt heimsóknarþjónustu af ýmsu tagi. Hundar sem taka þátt í heimsóknum verða sérstaldega valdir af fólki með viðamikla þekkingu á hundum, þannig að eingöngu koma til greina heilbrigðir hundar, sem eru yfirvegaðir, rólegir og mannelskir. Meðferðarlegt gildi hunda Gæludýr eru í vaxandi mæli hluti af fjölskyldulífi þeirra sem búa í þéttbýli og í kjölfarið hefur augum verið beint að meðferðarlegu gildi þeirra. Brynja Tomer sat ráðstefnu í Svíþjóð í október síðastliðnum þar sem saman komu áhugamenn og fagaðilar úr heilbrigðisstéttum hvaðanæva að úr heiminum og greindu frá rannsóknum og athugunum á því hvernig hundar geta aukið lífsgæði okkar. Sænska hundaræktarfélagið skipulagði ráðstefnuna í samvinnu við samtökin Manimalis, sem á síðustu árum hafa kynnt fjölbreytta möguleika á því að nota hunda í meðferðarskyni. íslenskar rannsóknir sýna góðan árangur Tvær rannsóknir hafa verið gerðar hér á landi á notkun gæludýra í meðferðarskyni. Aðra gerði Ingibjörg Hjaltadóttir hjúkrunarfræðingur meðal alzheimersjúklinga á Landakoti og hina gerði Halla Harpa Stefánsdóttir þroskaþjálfi meðal einhverfra unglinga. Báðar þessar rannsóknir gáfu ótvírætt til kynna að reglubundnar heimsóknir hunda bættu líðan skjólstæðinganna og höfðu jákvæð áhrif á vinnuumhverfi starfsfólks. Hafi starfsfólk úr heilbrigðisstéttum áhuga á að fá gæludýr í heimsókn til skjólstæðinga sinna geta þeir nú sótt um heimild til þess. Almenna reglan er sú að bannað er að fara með gæludýr inn á sjúkrastofnanir, svo í raun er um að ræða undanþágu frá banni, en ekki leyfi. I mínum huga skiptir það þó ekki máli, svo framarlega sem hægt er að koma til móts við óskir sjúkra og aldraðra um að fá til sín gæludýr f heimsókn. Margar Ieiðir eru til að nýta hunda til að auka lífsgæði okkar mannanna og verður hér greint frá þeim helstu. Hjálparhundar fyrir fatlaða Hjálparhundur er sérstaklega þjálfaður til að aðstoða tiltekinn einstakling, sem til dæmis er mjög líkamlega fatlaður, blindur eða bundinn við hjólastól. Miklar kröfur eru gerðar til hjálparhunda og venjan sú að sérmenntaður þjálfari byrji á að velja efnilegan hvolp 8-16 vikna gamlan. Hann fær síðan grunnþjálfun hjá stuðningsfjölskyldu og ekki tíðkast að hinn fatlaði kynnist hvolpinum á þessu stigi. Þegar hundur nær um eins árs aldri gengst hann undir próf hjá þjálfaranum sem sker endanlega úr um hvort hann hentar til jrjálfunar sem hjálparhundur. Þeir sem ekki standast prófið geta fengið að búa áfram hjá stuðningsfjölskyldunni, en annars er þeim fundið annað heimili. Ennfremur þurfa þessir hundar að vera heilbrigðir að öilu Ieyti og mega ekki bera einkenni arfgengra sjúkdóma. Afar dýrt er að þjálfa hjálparhund og hér á landi' verða hinir fötluðu að bera kostnað af því sjálfir. Hjálparhundur fylgir hinum fatlaða alla ævi, eða meðan honum endist heilsa til, oftast í 10-12 ár. Dæmi um það sem hjálparhundur gerir er að opna hurðir og loka þeim, opna ísskáp og uppjrvottavélar, taka þvott úr þvottavél, hjálpa manni úr sokkum og buxum, kveikja og slökkva Ijós, draga hjólastól, 46 Tímarit hjúkrunarfræðinga 4. tbl. 81. árg. 2005

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.