Dagblaðið Vísir - DV - 19.04.2016, Síða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 19.04.2016, Síða 24
Vikublað 19.–21. apríl 201624 Fólk Viðtal H afdís var sex árum eldri en ég og það var svolítið sér- stakt að á einum tíma- punkti var hún eldri systir mín, svo vorum við jafn- ingar að vissu leyti og síðan tók ég fram úr henni í þroska og þá varð hún þannig séð yngri systir mín. En við vorum mjög náin, alla vega eins náin og hægt er miðað við aðstæður af þessu tagi. Mér þótti gríðarlega vænt um Hafdísi,“ segir Hafsteinn um systur sína sem lést við voveif- legar aðstæður árið 1991. Hafsteinn er fæddur árið 1972 og ólst upp hjá foreldrum sínum, Hafsteini og Ritu, í Kópavoginum. Skólagangan var Kárnesskóli, svo Þinghólsskóli, MK og FG. Eldri systur hans eru þrjár: Sonja, Linda og svo Hafdís. Samband Hafsteins og Hafdísar var óvenjulegra en gengur og gerist en hún glímdi við þroskaskerðingu. Þegar hún komst á fullorðinsár hafði hún þroska á við 12 ára barn. Hefur aldrei reiðst banamanni systur sinnar Hafsteinn Gunnar Hafsteinsson var 18 ára gamall þegar eldri systur hans var ráðinn bani á hrottalegan hátt og þá missti hann föður sinn óvænt einum og hálfum mánuði síðar. Móðir hans og systir létust með stuttu millibili og í millitíðinni missti hann heimili sitt og allar eigur eftir íkveikju. Þrátt fyrir síendurtekin áföll má hvergi greina hjá honum angur af hatri eða biturleika. Hann er einn af þeim fáu hér á landi sem bera starfsheitið sáttamiðlari en í starfi sínu hefur hann meða annars leitt saman ósátt pör og komið að vinnustaða- deilum og sáttum í forræðismálum. Stundum gengur það út á að að fyrirgefa og halda áfram en fáir geta sett sig jafn vel í þau spor og Hafsteinn sjálfur. Auður Ösp Guðmundsdóttir audur@dv.is „Ég man að ég var hræddur við hann. Mér leið ekki vel í kringum þenn- an mann. AP ÓT EK UM SN YR TIS TO FU M & SN YR TIV ÖR UV ER SL UN UM Marg verðlaunaðar snyrtivörur frá Þýskalandi Fermingagjafir www.artdeco.de artdecois f

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.