Dagblaðið Vísir - DV - 19.04.2016, Síða 27
Vikublað 19.–21. apríl 2016 Kynningarblað - Útivist 3
Spennandi og fjölbreyttar
gönguferðir um landið
Ferðafélagið Útivist
Þ
egar vorið nálgast leggjast
margir yfir landakort og
ákveða gönguferðir fyrir
sumarið. Áhugi á hollri úti
veru í náttúrunni hefur auk
ist mikið undanfarin ár og sífellt fleiri
reima á sig gönguskó og leggja af stað í
óbyggðir og á heiðar. Ferðafélagið Úti
vist er tilvalinn vettvangur til að stunda
þetta heilsusamlega áhugamál. Til að
taka þátt í starfi Útivistar þarf að ger
ast félagsmaður, en skráning í félagið
er einfalt ferli og kostar ekki mikið, sér
staklega þegar haft er í huga það sem
félagsmönnum stendur til boða.
Gunnuhver úr Grindavík
sunnudaginn 24. apríl
Útivist er með starfsemi allt árið
þó svo mest sé um að vera í starf
inu yfir sumarið. Flesta sunnudaga
ársins er boðið upp á dagsferðir.
Rauður þráður í dagsferðum ársins í
ár er raðganga þar sem gengið er eft
ir strandlengju Reykjaness í nokkrum
áföngum. Næsta sunnudag verður
gengið frá Grindavík að Gunnuhver
og þó svo fyrstu áfangar raðgöngunn
ar séu að baki er vel hægt að bætast í
hópinn og taka þá áfanga göngunnar
sem heilla.
Útivistargírinn öll
miðvikudagskvöld
Nýlega var hleypt af stokkunum
nýrri göngudagskrá hjá Útivist, en
hún kallast Útivistargírinn. Þetta eru
ókeypis göngur á miðvikudögum
sem eru tilvaldar til að „koma sér í
gírinn“ fyrir sumarið. Þessi dagskrá
tekur við af miðvikudagsgöngum
Útivistarræktarinnar sem hefur verið
á dagskrá Útivistar í mörg ár, en helsti
munurinn er sá að hér er haldið mun
meira utan um dagskrána og ferðirn
ar. Kraftmikill hópur fararstjóra stýrir
þessum göngum og sér til þess að allt
gangi vel fyrir sig ásamt því að miðla
af þekkingu sinni og reynslu.
Jónsmessugangan
Þeir sem taka virkan þátt í göngum
Útivistar gírsins ættu að vera að þeim
loknum komn
ir í gott form til að
koma í Jónsmessu
göngu Útivistar.
Jónsmessu helgin
er jafnan stærsti
viðburður ársins
hjá Útivist. Í ár
bjóðum við upp á
tvenns konar göngu.
Annars vegar er
boðið upp á hefð
bundna næturgöngu
yfir Fimmvörðu
háls. Lagt verður af stað frá Reykja
vík á föstudagskvöldi og gengið yfir
Hálsinn um nóttina. Á leiðinni verð
ur stoppað á völdum stöðum og boð
ið upp á hressingu. Í dögun á laugar
degi koma göngumenn niður í Bása
þar sem tími gefst til að hvílast um
stund. Hins vegar bjóðum við upp
á skemmtilega göngu um einstakt
göngusvæði á Goðalandi inn af Bás
um. Þetta er tilvalinn kostur fyrir þá
sem vilja taka þátt í margrómaðri
Jónsmessugleði Útivistar og kjósa
þægilega göngu án mikillar hækkun
ar. Laugardagskvöldið verður slegið
upp grillveislu og kvöldvöku þar sem
Útivistargleðin ríkir.
Sveinstindur og fleira
spennandi
Eftir Jónsmessu er á dagskrá fjöldi
styttri og lengri gönguferða. Í hóp
skrautfjaðra í dagskrá Útivistar má
nefna göngu frá Sveinstindi við
Langasjó og niður með Skaftá,
leið sem nefnist Sveinstindur
– Skælingar. Í beinu framhaldi
af þeirri göngu er Strúts stígur
sem er skemmtileg leið sem
býður meðal annars upp á bað
í Strútslaug sem er náttúruleg
laug í Hólmsárbotnum. Þá hef
ur félagið verið að móta nýja
leið að Fjallabaki sem nefn
ist Dalastígur og býður upp á
flest það sem gerir Fjallabaks
svæðið svo heillandi. Sjá nán
ar á heimasíðu Útivistar, www.
utivist.is. n
Ferðafélagið Útivist
Laugavegi 178
105 Reykjavík
Sími: 562-1000
utivist@utivist.is
Opið alla virka daga frá kl. 12–17
Heillandi útivistarferðir
um náttúruperlur Evrópu
Íslandsvinir bjóða fjölbreyttar ferðir
F
erðaskrifstofan Íslandsvinir
býður í sumar og haust upp
á fjölbreytt úrval göngu
og hjólaferða til Evrópu, í
fararstjórn reyndra farar
stjóra. Brandur Jón Guðjónsson er
ábyrgðaraðili utanlandsferða Ís
landsvina: „Ferðirnar okkar eru
hugsaðar fyrir hvern þann sem
hefur löngun til þess að fara ÚT
og reyna passlega mikið á sig, en
einnig að upplifa nýtt umhverfi,
landslag, loftslag, gróðurfar og
dýralíf, að ógleymdri menningu.
Það er margsannað að fólk sem
skellir sér með í svona ferð kemur,
þrátt fyrir smá puð, heim aftur vel
úthvílt og sælt og tilbúið að takast
á við hversdaginn, uppfullt af
skemmtilegum minningum. Og
mjög oft myndast traust vinabönd
sem endast alla ævi, eftir sameigin
lega upplifun.“
Ferðirnar sem Íslandsvinir
bjóða upp á í ár eru að sögn Brands
til áhugaverðra staða:
„Hjólaferðirnar eru fimm: að
Gardavatninu á Ítalíu, tvær með
fram Dóná í Austurríki, frá fjöru
til fjalls í Slóveníu og um eyjar í
Kvarner flóanum í Króatíu. Og síð
an eru fjórar gönguferðir: að Garda
vatninu á Ítalíu, um fallegt svæði í
Noregi, uppi í Tíról í Austur ríki og
umhverfis Mont Blanc þar sem farið
er um Frakkland, Ítalíu og Sviss, og
allar eru þessar ferðir að sjálfsögðu
hver annarri áhugaverðari“ segir
Brandur og bætir við að vissulega
séu þær miserfiðar, en að allir ættu
að geta fundið sér ferð við hæfi.
Spurður hvort að hann vilji
nefna einhverja eina ferð sérstak
lega segist hann helst ekki vilja það
því þá komi að sjálfsögðu upp þessi
sígildi frasi um að maður geri ekki
upp á milli barnanna sinna:
„Nei, því miður legg ég ekki í
það, en ég get í hverju tilfelli fyrir
sig lofað góðu ferðalagi um fallegar
slóðir og að við öll sem erum farar
stjórar í þessum ferðum leggjum
okkur fram við að gera hverja ferð
sem besta fyrir hvern þann sem
með okkur kemur,“ segir Brandur
og bætir við: „Við erum stolt af úr
valinu og ég vil hvetja þá sem enn
eiga eftir að ákveða hvort eða hvert
á að fara í ár til þess að kíkja inn á
heimasíðuna okkar til þess að skoða
spennandi ferðir, og þar sést einnig
að við erum með valkosti sem henta
nánast hverjum sem er.“ n
islandsvinir.is
facebook.com/islandsvinir
info@explorer.is
sími 510-9500
Mont Blanc Þeir eru margir tignarlegir fjallasalirnir í nágrenni Mont Blanc. Íslandsvinir verða
með ferð síðsumars þegar genginn verður TMB-hringurinn umhverfis tindinn (Tour du Mont Blanc).
Hjólreiðar Það er létt að renna um á reiðhjóli eftir sléttum og góðum hjólastígunum með-
fram Dóná. Í svona hópferðum myndast yfirleitt góður vinskapur og samheldnin verður mikil.
Strada del Ponale Hér er farið um
magnað mannvirki við Gardavatnið á Ítalíu,
Strada del Ponale, en í þeirri hjólaferð, eins
og öllum öðrum ferðum Íslandsvina, er farið
um fjölbreytt og fallegt landslag og ótal
margt að sjá og upplifa.
„Brölt
og Bjór“ Í
langri göngu-
eða hjólaferð
er nauðsyn-
legt að
gæta vel að
vökvabúskap
líkamans, og
þessi drykkur
á því sérlega
vel við í
gönguferð
sem heitir
„Brölt og
Bjór“.