Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.2016, Blaðsíða 4
Helgarblað 27.–30. maí 20164 Fréttir
Safna 150 milljónum
fyrir skuldum Fáfnis
n Boðað til hluthafafundar hjá Fáfni Offshore n Stjórnin vill gefa út skuldabréf
S
tjórn Fáfnis Offshore hef
ur boðað til hluthafafundar
í dag þar sem tillaga henn
ar um 150 milljóna króna
skuldabréfaútgáfu fyrirtækis
ins verður tekin fyrir. Með fjármögn
uninni á að greiða afborganir lána
og vexti til Íslandsbanka og norska
fjármálafyrirtækisins EksportKreditt
Norge AS og þannig tryggja áfram
haldandi rekstur fyrirtækisins. Fáfn
ir rekur sérútbúna fimm milljarða
króna olíuþjónustuskipið Polarsys
sel, dýrasta skip Íslandssögunnar,
en smíði á öðru skipi fyrirtækisins,
Fáfni Viking, var stöðvuð vegna verk
efnaskorts.
Lengt í lánum
Samkvæmt fundarboði stjórnarinnar,
sem DV hefur undir höndum, vill hún
fá leyfi hluthafa Fáfnis fyrir skulda
bréfaútgáfu upp á allt að 150 millj
ónir króna. Breytanleg skuldabréf
verði gefin út ekki seinna en 11. júní
næstkomandi, með 20% ársvöxtum,
sem hægt verði að skipta fyrir hluta
fé í olíuþjónustufyrirtækinu. Jóhann
es Hauksson, stjórnarformaður Fáfn
is og starfsmaður Íslandssjóða, sem
stýrir framtakssjóðnum Akri, stærsta
hluthafa Fáfnis, segir samkomulag
við Íslandsbanka og EksportKreditt,
um lengingu á lánum fyrirtækisins,
vera á borðinu.
Fáfnir réðst einnig í skuldabréfa
útgáfu í febrúar síðastliðnum og
hljóðaði hún upp á allt að 195 millj
ónir króna. Tilgangur hennar var að
útvega félaginu fé fyrir greiðslu til
norsku skipasmíðastöðvarinnar Hay
vard vegna fimm milljarða króna
skipsins Fáfnir Viking sem fyrirtæk
ið átti upphaflega að fá afhent fyr
ir tveimur mánuðum. Þau bréf voru
einnig gefin út með 20% ársvöxtum
og með heimild til að skipta þeim fyr
ir hlutafé sem samsvaraði meirihluta
hlutafjár í Fáfni. Eignarhlutur þeirra
hluthafa sem tóku ekki þátt í skulda
bréfaútgáfunni þynntust því út eins
og mun koma til með að gerast á
næstu dögum og vikum fari svo að
hluthafafundurinn samþykki seinni
útgáfuna næsta föstudag.
Fluttu út
Framtakssjóðurinn Akur, sem er í eigu
þrettán lífeyrissjóða, Íslandsbanka og
VÍS, á 30% hlut í Fáfni. Þar á eftir kem
ur Framtakssjóðurinn Horn II, sem er
í eigu lífeyrissjóða, fjármálafyrirtækja
og fagfjárfesta, með 23%. Samkvæmt
nýjasta ársreikningi Fáfnis á Stein
grímur Erlingsson, stofnandi og fyrr
verandi forstjóri fyrirtækisins, 21%
hlut í gegnum einkahlutafélagið Fafni
Holding. Hinir fimm hluthafarnir,
þar á meðal Sjávarsýn ehf., sem er í
eigu Bjarna Ármannssonar, fjárfest
is og fyrrverandi forstjóra Glitnis, og
Hav yard Ship Invest AS, sem er í eigu
norsku skipasmíðastöðvarinnar Hav
yard, eiga minna en 10% hver.
Steingrími var eins og komið hef
ur fram sagt upp störfum í desember.
Lækkun olíuverðs hafði þá gjörbreytt
verkefnastöðu margra fyrirtækja sem
þjónusta olíuiðnaðinn. DV fjallaði
í febrúar um árangurslausa tilraun
hans til að kaupa fyrirtækið af nú
verandi eigendum þess. Á hluthafa
fundinum í febrúar reyndi Stein
grímur að koma Katli Sigurjónssyni,
sérfræðingi í orkumálum og fyrrver
andi orkubloggara, inn í stjórn félags
ins fyrir hans hönd. Aðrir hluthaf
ar Fáfnis studdu Davíð Stefánsson,
starfsmann Íslandssjóða. Í apríllok
barst Fyrirtækjaskrá Ríkisskattstjóra
síðan tilkynning um að höfuðstöðv
ar Fáfnis væru ekki lengur staðsettar
á Bárugötu 4 í Reykjavík en húsnæðið
er í eigu Steingríms.
Þjónustusamningur Fáfnis Off
shore við Sýslumanninn á Svalbarða
hefur um langt skeið verið eina verk
efni fyrirtækisins en hann var í vetur
lengdur úr sex mánuðum á ári í níu.
Samkvæmt upplýsingum DV reyna
stjórnendur Fáfnis að ná samningi
við sýslumanninn um að hann nái til
tólf mánaða á ári. Jóhannes Hauks
son vill í samtali við DV ekki staðfesta
það.
„Það er verið að skoða verkefni
fyrir þessa þrjá mánuði sem eru til
viðbótar og það er bara í vinnslu,“
segir Jóhannes. n
Stjórnarformaðurinn Jóhannes Hauksson segir skuldabréfaútgáfuna þurfa til svo Fáfnir geti staðið við samkomulag við Íslandsbanka
og Eksportkreditt um lengingu í lánum olíuþjónustufyrirtækisins.
Polarsyssel Lækkun olíuverðs hefur haft
áhrif á verkefnastöðu Fáfnis Offshore en
íslenskir lífeyrissjóðir og ríkisbankinn Íslands-
banki eru í hluthafahópi þess. Bankinn er einnig
stór lánveitandi fyrirtækisins.
Haraldur Guðmundsson
haraldur@dv.is