Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.2016, Blaðsíða 9
Helgarblað 27.–30. maí 2016 Fréttir 9
E
rlendir fjárfestar, sem eru
stórir hluthafar í nokkrum
þekktum íslenskum fyrir-
tækjum, gætu þurft að greiða
til Seðlabankans milljarða
króna taki þeir þátt í gjaldeyrisút-
boði bankans um miðjan næsta
mánuð þar sem eignarhlutur þeirra
í félögunum er skilgreindur sem
aflandskrónueign. Þar munar ekki
síst um 25% hlut bandaríska fjár-
festingasjóðsins Yucaipa í Eimskip,
sem er metinn á um tólf milljarða
miðað við núverandi gengi bréfa í
skipafélaginu, en sjóðurinn þyrfti
að leggja inn um þrjá milljarða á
reikning Seðlabankans ef hann kýs
að taka þátt í útboðinu. Eimskip hef-
ur verið skráð í Kauphöll Íslands frá
árinu 2012.
Samkvæmt frumvarpi Bjarna
Benediktssonar fjármálaráðherra
um meðferð aflandskrónueigna,
sem var samþykkt á Alþingi síðast-
liðið sunnudagskvöld, eru ýmsar
eignir í formi hlutafjár í skráðum
og óskráðum innlendum félögum
taldar vera aflandskrónueignir.
Þetta eru nýmæli en fram til þessa
hefur Seðlabankinn ekki skilgreint
slíkar hlutafjáreignir sem hluta
af aflandskrónustabbanum. Fyrir
utan eignarhlut Yucaipa í Eimskip
þá nær þetta ákvæði í frumvarpinu,
samkvæmt heimildum DV, með-
al annars einnig til umtalsverðra
eignarhluta sem erlendir aðilar eiga
í HS Orku, eignaumsýslufélaginu
Klakka og Verði tryggingafélagi.
Gjald fyrir ráðstöfunarrétt
Í útboðsskilmálum Seðlabankans,
sem voru birtir á vef bankans síð-
astliðinn miðvikudag, segir að upp-
gjör tilboða frá eigendum slíkra
aflandskrónueigna skuli fara þannig
fram að milligönguaðili leggur krón-
ufjárhæð inn á reikning bankans.
Fjárhæðin ræðst af markaðsvirði
aflandskrónueignar og útboðsgengi
en Seðlabankinn hefur gefið út að
það verði á bilinu 190 til 210 krón-
ur fyrir hverja evru. Ef útboðsgengið
verður þannig 200 krónur fyrir hverja
evru, sem myndi þýða 30% afföll
miðað við skráð gengi krónunnar,
þá þyrfti eigandi aflandskrónueign-
ar í formi hlutafjár sem væri metin
á tólf milljarða króna að greiða þrjá
milljarða inn á reikning Seðlabank-
ans. Með því að greiða slíkt gjald –
30% af markaðsvirði eignarinnar – fá
eigendur aflandskrónueigna í formi
hlutafjár undanþágu frá takmörkun-
um laga um gjaldeyrismál. Þannig
væri fjárfestingasjóðnum Yucaipa í
kjölfarið heimilt að selja hlut sinn í
Eimskip, ef hann kýs, og flytja sölu-
andvirðið úr landi.
Þeim, sem eiga hlutabréf í íslensk-
um félögum, er valfrjálst, rétt eins og
gildir um alla aflandskrónueigendur,
að taka þátt í gjaldeyrisútboði Seðla-
banakans. Kjósi þeir að taka ekki
þátt í útboðinu munu þeir hins vegar
þurfa að koma andvirði hlutabréf-
anna fyrir á bundnum reikningum
á 0,5% vöxtum ef þeir selja bréfin.
Már Guðmundsson seðlabankastjóri
hefur sagt að það sé óvíst hvenær
eigendur aflandskrónueigna, sem
ekki taka þátt í útboði Seðlabankans,
geti átt von á því að geta losað þær
úr landi.
Keyptu á árinu 2009
Bandaríski sjóðurinn Yucaipa, sem
er stærsti einstaki hluthafi Eim-
skips, eignaðist upphaflega 32% hlut
í skipafyrirtækinu þegar hann kom
að endurskipulagningu félagsins árið
2009 með því að fjárfesta í frystig-
eymslustarfsemi í Norður-Ameríku
og lagði inn nýtt hlutafé í Eimskip.
Aðrir erlendir fjárfestar, sem eru taldir
eiga aflandskrónueignir í formi hluta-
fjár í íslenskum félögum, komu einnig
sem hluthafar á árunum 2009 og
2010. Þannig er 66% hlutur kanadíska
orkufyrirtækisins Alterra Power, áður
Magma Energy, í HS Orku skilgreind-
ur sem aflandskrónueign en félagið
keypti upphaflega samtals 98% hlut
í orkufyrirtækinu fyrir um 30 millj-
arða. Þá er hlutur BankNordik í Verði
tryggingafélagi, sem stendur núna
í 49%, talinn vera aflandskrónueign
en færeyski bankinn keypti fyrst 51%
hlut í félaginu á árinu 2009. Þrem-
ur árum síðar eignaðist bankinn
tryggingafélagið að fullu. Á síðasta
ári seldi BankNordik hins vegar 51%
hlut í félaginu til Arion banka fyrir 2,7
milljarða og hefur Arion banki heim-
ild til að kaupa allt hlutafé í trygginga-
fyrirtækinu frá og með næsta ári.
Frumvarp fjármálaráðherra um
meðferð aflandskrónueigna bitn-
ar einnig á hagsmunum bandaríska
vogunarsjóðsins Davidson Kempner
en sá sjóður var í hópi umsvifamestu
kröfuhafa föllnu bankanna. Þannig er
ríflega 13% eignarhlutur Burlington
Loan Management, sjóður í stýr-
ingu Davidson Kempner, í eigna-
umsýslufélaginu Klakka skilgreind-
ur sem aflandskrónueign en Klakki
er sem kunnugt er móðurfélag fjár-
mögnunarfyrirtækisins Lýsingar. Sá
sem stýrir umsvifum Burlington á Ís-
landi er Bretinn Jeremy Lowe en sjóð-
urinn hefur tögl og hagldir í Lýsingu
sem stærsti hluthafinn – eignarhlutur
hans nemur 45% – og jafnframt eini
lánveitandi félagsins. Íslenska ríkið er
næststærsti hluthafinn með um 30%
sem það á með beinum og óbein-
um hætti í gegnum eignarhald sitt á
Klakka. n
Eigendum aflandskrónueigna í
formi reiðufjár og ríkisverð-
bréfa býðst að selja eignir
sínar í skiptum fyrir reiðufé
í erlendum gjaldeyri
á genginu 190 til 210
krónur fyrir hverja evru í
gjaldeyrisútboði Seðla-
bankans. Fer útboðið fram,
eins og upplýst var um í DV
síðastliðinn þriðjudag, hinn 16. júní
næstkomandi en eigendur aflandskróna
að fjárhæð tæplega 320 milljarða króna
geta tekið þátt í útboðinu.
Verð seldra evra í gjaldeyris-
útboði Seðlabankans ræðst af
þátttöku í útboðinu. Þannig
fá aflandskrónueigendur
hagstæðara útboðsgengi ef fleiri
aðilar kjósa að taka þátt í útboð-
inu og þá um leið eru auknar líkur á
því að ekki verði neinar eftirlegukindur
(e. hold-outs) í hópi aflandskrónueigenda
eftir að útboðinu lýkur.
Útboðið verður 16. júní
Hörður Ægisson
hordur@dv.is
Gætu þurft að greiða milljarða
í gjald til Seðlabankans
n Stórir hlutir í íslenskum félögum taldir aflandskrónueign n Greiði gjald fyrir undanþágu
Fanntófell ehf. | Bíldshöfða 12 | 110 Reykjavík | Sími 587 6688 | fanntofell.is
· Gæðavörur úr harðplasti, akrílstein, Fenix og límtré.
· Mikið úrval efna, áferða og lita.
· Framleiðum eftir óskum hvers og eins.
· Hentar jafnt fyrir heimili, vinnustaði og almenningssvæði.
BORÐPLÖTUR
OG SÓLBEKKIR
Fanntófell hefur sérhæft sig í framleiðslu á borðplötum og sólbekkjum síðan 1987.
Eimskip Ríflega
25% hlutur
bandaríska
sjóðsins Yucaipa
er skilgreindur sem
aflandskrónueign.
Mynd ArnAldur HAlldorsson