Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.2016, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.2016, Blaðsíða 14
Helgarblað 27.–30. maí 201614 Umræða É g held það deili margir með mér þeirri tilfinningu að tím- inn líði hratt, en mér finnst ég vera tiltölulega nýkom- inn úr merkilegu ferðalagi yfir alla norður-amerísku heimsálfuna á hálfrar aldar gömlum bíl. En samt er það svo að um daginn hringdi Sveinn vinur minn í Plúsfilm og sagði að þar sem nú þessa dagana væru rétt tíu ár frá þeirri för þá ætlaði hann að frum- sýna heimildamynd um reisuna í Bíó Paradís. Og ég áttaði mig á því að ég yrði að búa mig undir það andlega að endurlifa förina, horfa á sjálfan mig á bíótjaldi, aðeins dökkhærðari en ég er núna en samt sami kján- inn; endurlifa för sem útgefandinn Jóhann Páll Valdimarsson, sem var ljósmyndarinn í hópnum, sagði að hann hygðist skrifa bók um, eða eins og hann orðaði það: „bók sem fjall- aði um hvernig lifa skuli af slíka hel- reið með fjórum geðsjúklingum og yrði notuð við kennslu í geðhjúkr- unarfræði í skólum landsins.“ „Hef lesið bókina þína“ Reyndar hefur sú bók enn ekki birst, en þó kom út bókin „Úti að aka – á reykspúandi kadillakk yfir Ameríku“ með ljósmyndum Jóhanns og texta okkar Ólafs Gunnarssonar og gerði það gott á markaði hér um árið. Hún hefur dálítið sérstakan sess í höf- undarferlinum því að hún vann að einhverju leyti nýjan lesendahóp, og þá hjá fólki sem er ekki endilega spennt fyrir bókmenntum en hef- ur þeim mun meira gaman af bílum og ferðalögum; ég hef á síðasta ára- tug ósjaldan lent á spjalli við stór- skemmtilega menn sem hafa lesið þessa bók eina af höfundaverki okk- ar Ólafs, og reyndar veit ég alltaf um hvað er verið að tala þegar einhver segir við mig: „Já, ég hef lesið þarna bókina!“ að þá er átt við Úti að aka. Sumir hafa gert grín að okkur Óla, tveimur miðaldra mönnum að láta einhvern stráka- og töffaradraum rætast, og sumpart gerum við það sjálfir í bókinni, en auðvitað var það fyrst og fremst löngunin til að ferðast á spennandi slóðir sem kveikti í okk- ur. Sjálfur þýddi Óli Gunn fyrir aldar- fjórðungi bókina „Á vegum úti“ eftir bítskáldið Jack Kerouac, mikla uppá- haldsbók okkar beggja, og í kringum mann hafa alla ævi hljómað lög eins og „You get your kicks / on Route 66“ en það er einmitt sá vegur sem við fylgdum megnið af leiðinni. Við Óli, sem höfum lengi þekkst, höfðum oft talað um að fara svona ferð, og þegar við ákváðum loks að láta verða af henni og skrifa svo bók um reisuna og bárum málið undir útgefanda vorn, Jóhann Pál, þá varð hann svo spenntur að hann ákvað semsagt að slást í förina. Þegar svo var orðið klárt að við færum þetta á hálfrar aldar gömlum kagga varð ljóst að einhver yrði að vera með sem kynni að laga bilanir í þannig bílum, og það varð okkur til happs að meginsnillingur- inn Steini í Svissinum var tilbúinn í slaginn. Enn bættist svo í föruneytið þegar ég hitti semsé gamlan vin og samstarfsmann, Svein M. Sveinsson í Plúsfilm, og þegar hann heyrði um væntanleg plön fannst honum ekki annað koma til greina en að hann fylgdi í humátt á eftir og filmaði okk- ar för. Og er hann semsé að frumsýna afraksturinn þessa dagana. Arnaldur Indriða í San Fransisco Svo gerast óvæntir hlutir í sambandi við svona lagað, eins og allt annað. Þegar við, fyrir semsé rúmum ára- tug, vorum að búa okkur undir að leggja af stað, þá hitti ég kollega okk- ar Óla, Arnald Indriðason, í einhverju boði með útlendingum sem hér voru staddir. Í spjalli okkar tveggja barst í tal væntanleg ökuferð yfir Ameríku Tilboð þér að kostnaðarlausu Uppl. í síma: 820 8888 eða markmid@markmid-ehf.is ALHLIÐA FASTEIGNAVIÐHALD Smíðavinna · Pípulagnir · Raflagnir Málningavinna · Múrvinna · Flísalagnir Hellulagnir · Jarðvinna · Lóðavinna Úti að aka Einar Kárason rithöfundur skrifar Þér að segja n Nú er það bíómyndin „Og ég áttaði mig á því að ég yrði að búa mig undir það and- lega að endurlifa för- ina, horfa á sjálfan mig á bíótjaldi, aðeins dökk- hærðari en ég er núna en samt sami kjáninn. Kærkomin hvíld Steini í Svissinum leggur sig á bílhúddinu eftir stranga viðgerðartörn. Mynd JoHAnn PAll VAldIMArSSon

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.