Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.2016, Qupperneq 16
Helgarblað 27.–30. maí 2016
Heimilisfang
Kringlan 4-12
6. hæð
103 Reykjavík
fréttaskot
512 70 70fr jál s t, ó Háð dag b l að DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.
512 7000
512 7010
512 7080
512 7050
aðalnúmer
ritstjórn
áskriftarsími
auglýsingar
16 Umræða
Útgáfufélag: DV ehf. • Stjórnarformaður og útgefandi: Björn Ingi Hrafnsson • Ritstjórar: Eggert Skúlason og Kolbrún Bergþórsdóttir
Viðskiptaritstjóri: Hörður Ægisson • Fréttastjórar: Baldur Guðmundsson og Einar Þór Sigurðsson
Framkvæmdastjóri : Steinn Kári Ragnarsson • Umbrot: DV ehf. • Prentun: Landsprent • Dreifing: Árvakur
Hindrun rutt úr vegi
M
eð frumvarpi fjármála-
ráðherra um meðferð
aflandskrónueigna að fjár-
hæð 320 milljarða króna er
tekið enn eitt risaskrefið við að hrinda
í framkvæmd áætlun stjórnvalda um
afnám hafta. Allt útlit er fyrir að með
þeim aðgerðum sem núna hafa ver-
ið boðaðar til að leysa aflandskrónu-
vandann verði í kjölfarið hægt að lyfta
höftum á íslensk heimili, fyrirtæki og
lífeyrissjóði með afgerandi hætti á
komandi mánuðum – átta árum eftir
að þau voru fyrst kynnt til sögunnar af
brýnni nauðsyn.
Aflandskrónueigendur eru að
stærstum hluta aðeins nokkrir banda-
rískir fjárfestingasjóðir. Valkostir þeirra
eru skýrir. Í gjaldeyrisútboði Seðla-
bankans í næsta mánuði býðst þeim
að selja eignir sínar í skiptum fyrir
reiðufé í erlendum gjaldeyri á genginu
190 til 210 krónur fyrir hverja evru. Að
öðrum kosti verða fjármunir þeirra
fluttir á læsta reikninga sem bera 0,5%
vexti. Þá fá aflandskrónueigendur sem
ekki taka þátt í útboðinu tímabundna
heimild – frá 1. september til 1. nóv-
ember 2016 – til þess að eiga í gjaldeyr-
isviðskiptum við Seðlabankann á við-
miðunargenginu 220 krónur gagnvart
evru. Ríkur hvati er því fyrir þátttöku í
útboðinu fyrir þá sem vilja losna með
fé sitt strax úr landi.
Lykilatriði í áætlun stjórn-
valda er að enginn er þvingaður til
að selja aflandskrónueignir sínar.
Fjárfestingar- og úttektarheimild-
ir aflandskrónueigenda eru þvert á
móti rýmkaðar og þá geta þeir áfram
átt eignir sínar, sem eru einkum rík-
isskuldabréf, þangað til á gjalddaga
– en eftir þann tíma flytjast þær yfir
á bundna vaxtalausa reikninga. Með
þessu móti er tryggt að böndum verð-
ur komið á allar aflandskrónueign-
ir og síðustu hindruninni þannig rutt
úr vegi fyrir almennri haftalosun á Ís-
lendinga.
Æskilegast væri vitaskuld að sem
flestir aflandskrónueigendur taki
þátt í útboðinu þannig að vandinn
verði leystur með endanlegum hætti.
Ómögulegt er hins vegar að segja
fyrir um hvort það verði niðurstað-
an. Sumir bandarískir fjárfestinga-
sjóðir hafa látið að því liggja að þeir
séu ekki reiðubúnir að selja krónu-
eignir sínar með tugprósenta afföll-
um miðað við skráð gengi krónunnar.
Ekki er hægt að útiloka að þeir muni
láta reyna á rétt sinn fyrir dómstól-
um. Engin ástæða er aftur á móti til
að hafa áhyggjur af slíkum lagalegum
ágreiningi. Aðgerðirnar grundvall-
ast á nálgun Alþjóðagjaldeyrissjóðs-
ins við losun hafta frá árinu 2012 og
þá hafa stjórnvöld notið liðsinnis fær-
ustu innlendra og erlendra ráðgjafa
við undirbúning útboðsins.
Röksemdir bandarískra vogunar-
sjóða fyrir því að aðgerðir stjórnvalda
séu óréttmætar eru einkum af tvenn-
um toga. Í fyrsta lagi séu efnahagsað-
stæður með þeim hætti á Íslandi, þar
sem óskuldsettur forði Seðlabank-
ans er orðinn meiri en 400 milljarð-
ar, að stjórnvöld geti ekki borið fyrir
sig neyðaraðstæður til að réttlæta að-
gerðir sem fela í sér skerðingu á eign-
um aflandskrónueigenda. Í öðru lagi
sé rangt að skilgreina eignir þeirra
sem kvikar krónueignir sem myndu
leita úr landi um leið og höftum yrði
aflétt; þvert á móti hafi þeir áhuga á
frekari fjárfestingum á Íslandi. Þrátt
fyrir að gjaldeyrisstaða þjóðarbús-
ins hafi vitaskuld tekið stakkaskipt-
um á allra síðustu árum þá hefur
stefna stjórnvalda ávallt verið sú að
nýta hana til að skapa forsendur fyr-
ir afnámi hafta á Íslendinga. Erlend-
ir kröfuhafar föllnu bankanna fengu
þannig með engum hætti hagstæðari
niðurstöðu í uppgjöri slitabúanna
sökum góðrar stöðu þjóðarbúsins –
og það nákvæmlega sama mun gilda
aflandskrónueigendur. Þegar um er
að ræða eignir sem nema um 15% af
landsframleiðslu þá er það jafnframt
óforsvaranleg áhætta að treysta að-
eins orðum bandarískra vogunar-
sjóða um að það sé ekkert fararsnið
á þeim. Skylda stjórnvalda er aðeins
gagnvart almenningi og við þess-
ar aðstæður ber þeim að ganga eins
langt og íslensk lög og alþjóðlegar
skuldbindingar heimila í því skyni að
tryggja ýtrustu þjóðarhagsmuni. Það
hefur verið gert með þessu frumvarpi.
Nýti aflandskrónueigendur ekki
þetta síðasta tækifæri – að minnsta
kosti í bili – til að selja eignir sínar
fyrir gjaldeyri í úboði Seðlabankans
er alls óvíst hvenær sá gluggi mun
opnast að nýju. Þess í stað fara þeir
aftast í röðina þar sem eignir þeirra
munu rýrna með tímanum á bundn-
um reikningum á nánast engum vöxt-
um. Fyrir liggur að uppsöfnuð erlend
fjárfestingaþörf íslenskra lífeyrissjóða
og fyrirtækja hleypur á hundruðum
milljarða króna. Nauðsynlegt er að
aðlaga innlend eignasöfn þannig að
þau samanstandi í hlutfallslega miklu
meira mæli af erlendum eignum – og
á þetta ekki síst við um eignir lífeyr-
issjóðanna. Það er því ljóst að það
munu líða mörg ár þangað til rétt-
lætanlegt verður fyrir íslensk stjórn-
völd að hreyfa við þeim möguleika
að nýju að létta kvöðum af þeim
aflandskrónueigendum sem kjósa að
festast með fé sitt hér á landi. n
Björn talar fyrir
kosningum
Björn Bjarnason telur enga
meinbugi á því að gengið verði
til þingkosninga í haust. Á net-
síðu sinni segir hann að ríkis-
stjórnin hafi lokið meginverk-
efni sínu: „Hún hefur mótað
og framkvæmt stefnu um leið
þjóðarinnar út úr fjármagns-
höftunum. Að gera lítið úr þeim
sögulega árangri með því að
setja á deilur um hvort kjósa eigi
nokkrum mánuðum fyrr en síð-
ar er einkennilegt ... Stjórnmála-
lífið ber svipmót upplausnar og
brýnt er að jarðtengja það sem
fyrst. Það verður best gert með
kosningum. Þegar stjórnmála-
ástandið er á þann veg sem það
er núna er eðlilegt að kjósend-
ur komi sem fyrst til sögunnar til
að greiða úr flækjunni og ákveða
hverjum þeir treysta til að fara
með landstjórnina að kosning-
um loknum.“
Örugg hýsing
gagna
Traustur rekstur
tölvukerfa
Sérhannaðar
hugbúnaðarlausnir
Hádegismóum 4 · 110 Reykjavík · 547 0000 · premis.is Við erum alltaf með lausnir
Við sérhæfum okkur í uppsetningu og þjónustu
við fyrirtæki sem vilja nýta sér kosti Office 365.
Við erum svo sannarlega á heimavelli þar enda
höfum við aðstoðað á annað hundrað fyrirtæki
og sveitarfélög í vegferð þeirra í Office 365.
SharePoint
OneDrive
CRM
Office 2016
Yammer
Exchange
Skype
for businessDelve
Power BI ÞETTA ER OKKAR
HEIMAVÖLLUR
Formannskjör um breytingar
S
amfylkingin er sá flokkur sem
kennir sig við jafnaðarstefnu
eða sósíaldemokratisma. Það
er sú stefna sem hin sterku ríki
Norðurlandanna eru byggð á og við
teljum að stór hluti Íslendinga séu
sammála. En oft erum við spurð hvað
það þýði í raun að vera jafnaðarmað-
ur? Hvað er það sem við viljum gera
ef við komumst í ríkisstjórn? Jafnað-
armenn eru alþjóðasinnaðir og vilja
að fólk fái að kjósa um aðild að ESB.
Þeir vilja uppstokkun landbúnaðar-
kerfisins, lýðræðisumbætur, neyt-
endavernd og jöfnun atkvæðisrétt-
ar. Þeir leggja áherslu á jöfn tækifæri,
samábyrgð og jöfnun byrðanna með
öflugu velferðar- og menntakerfi. Þeir
vilja þróttmikið atvinnulíf sem byggir
á hugviti, athafnafrelsi og alþjóðlegri
samkeppnishæfni. Allt eru þetta hlutir
sem höfða til okkar Íslendinga allt frá
vinstri og inn á miðju stjórnmálanna.
Á undanförnum árum hefur Sam-
fylkingin verið sögð hafa glatað er-
indisbréfi sínu. Því er ég algerlega
ósammála. Engu að síður tel ég að við
þurfum að horfast í augu við fylgistap-
ið og leggja mikið á okkur til að safna
jafnaðarmönnum saman að nýju því
það þarf alvöru afl til að gera alvöru
breytingar. Til þess var Samfylkingin
stofnuð. Flokkur jafnaðarfólks verður
aldrei lagður niður. Hann verður hins
vegar að þróast áfram. Við þurfum að
tala máli hinnar breiðu miðju til að
verða fjöldahreyfing jafnaðarmanna
á nýjan leik. Það gerist ekki ef við neit-
um að horfast í augu við veruleikann.
Þá erum við að fjarlægjast upphaflegt
markmið okkar. Það er ekki eftirspurn
eftir öðrum vinstri flokki heldur flokki
jafnaðarmanna.
Hvað munum við gera?
Nafnið skiptir ekki öllu máli eða
kennitalan. Það sem skiptir máli er
hvað við ætlum að gera þegar við höf-
um snúið vörn í sókn og unnið sigur
í kosningum. Í næstu ríkisstjórn vilj-
um við koma á gjaldfrjálsu heilbrigð-
iskerfi, endurheimta jöfn tækifæri
til menntunar, grípa til tafarlausra
aðgerða í húsnæðismálum, stofna
þjóðgarð á hálendinu og samþykkja
nýja stjórnarskrá. Við viljum að verð
fisks ákvarðist á markaði og arðurinn
renni til landsmanna allra. Við mun-
um láta kjósa um aðild að ESB og
taka skref í upptöku nýs gjaldmiðils
því við viljum betri kjör fyrir heimili
og fyrirtæki á Íslandi.
Við munum taka landbúnaðar-
kerfið til gagngerrar endurskoðunar.
Það heldur frá neytendum fjölbreytt-
um vörum á samkeppnishæfu verði
án þess að skapa íslenskum bænd-
um velsæld eða tækifæri til vaxtar.
Bæði íslenskt launafólk og bændur
eiga betra skilið.
Við munum berjast gegn því mis-
rétti að þeir fáu sem ráða yfir mestum
auði í samfélaginu, borgi ekki sinn
skerf til reksturs þess. Við ætlum að
byggja brýr og vegi, auka menntun
og þjónustu og bæta samkeppn-
ishæfni og lífskjör um land allt. Við
ætlum að styrkja grunninn fyrir
fjöldann en ekki beita úreltum póli-
tískum inngripum og sérlausnum
sem gagnast fáum.
Fjöldahreyfing jafnaðarmanna
Allar þessar mikilvægu breytingar
sem þarf að gera sýna að við eigum
brýnt erindi við þjóðina. Við þurf-
um að tryggja að hægri flokkar og
sérhagsmunaöfl haldi ekki velli eftir
kosningar. Við þurfum að vinna með
þeim sem vilja vinna með okkur að
þessum markmiðum. Jafnaðarmenn
eiga heima frá vinstri að miðju í litrófi
stjórnmálanna ólíkt öðrum vinstri-
flokkum. Það er munurinn á okkur og
þeim. Samfylkingin verður að svara
kallinu og vera vettvangur allra sem
vilja breyta samfélaginu okkar í átt til
aukins jafnaðar. Við megum ekki gef-
ast upp á því verkefni sem Samfylk-
ingin var stofnuð um; Að sameina
jafnaðarmenn á Íslandi. n
Magnús Orri Schram
Kjallari
Sandkorn
Leiðari
Hörður Ægisson
hordur@dv.is