Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.2016, Page 12
Helgarblað 23.–26. september 201612 Fréttir
Verið ávallt velkomin
Almar bakari
Bakarí og kaffihús Sunnumörk
Opið frá 7-18 mánudaga til laugardaga og sunnudaga frá 8-17
Brauðin í okkar handverksbakaríi fá rólega
og góða meðhöndlun. Þau eru kælihefuð í allt
að 18 tíma og því notum við engan viðbættan
sykur, minna salt og minna ger í hvert og
eitt brauð. Með þessari meðferð verða þau
bragðbetri og hollari. Nýjasta brauðið er
súrdeigsbrauðið sem er steinbakað og súrinn
lagaður af bakaranum. Það heitir Hengill og er
bragðmikið og öflugt brauð með þykkri skorpu.
Lýstu yfir
Átök lögreglu og reiðra mótmælenda í Charlotte brutust út í kjölfar dauða svarts karlmanns
R
íkisstjóri Norður-Karó-
línu lýsti í gær yfir neyðar-
ástandi í bandarísku
borginni Charlotte í kjölfar
átaka milli mótmælenda
og lögreglu. Ákvörðunin var tekin
eftir að mótmælendur réðust að
lögreglumönnum borgarinnar aðra
nóttina í röð. Reiði þeirra má rekja til
dauða Keiths Lamonts Scott sem var
skotinn af svörtum lögreglumanni
á þriðjudag og varð þar með þriðji
Bandaríkjamaðurinn af afrískum
uppruna til að falla fyrir hendi lög-
reglumanna þar í landi á einni viku.
Sauð upp úr
Mótmælin á miðvikudagskvöld fóru
friðsamlega fram í fyrstu en búið var
að skipuleggja minningarathafnir
víðs vegar um borgina. Eftir það
létu nokkur hundruð mótmælendur
grjóti og glerflöskum rigna yfir lög-
reglumenn klædda í óeirðabúninga
sem voru með töluverðan viðbún-
að í borginni. Svöruðu þeir með
táragasi og þegar átökunum lauk
hafði einn karlmaður úr hópi mót-
mælenda verið fluttur alvarlega slas-
aður á sjúkrahús eftir að hafa orðið
fyrir skoti frá almennum borgara.
Sextán lögreglumenn hlutu minni-
háttar meiðsl sem og nokkrir frétta-
menn sem fjölluðu um átökin.
Um 35 prósent íbúa Charlotte eru
af afrískum uppruna sem er nokkru
hærra hlutfall en landsmeðaltalið
sem er 13,3 prósent. Pat McCrory,
ríkisstjóri Norður-Karólínu, lýsti í
gær yfir neyðarástandi. Þegar DV
fór í prentun í gær, fimmtudag,
hafði Jennifer Roberts, borgarstjóri
Charlotte, sagt að útlit væri fyrir
að útgöngubann yrði sett á íbúa
borgarinnar til að koma í veg
fyrir átök þriðja kvöldið í röð.
Þrír á einni viku
Lögreglan í Charlotte fullyrðir
að Keith Lamont Scott, sem var
43 ára gamall blökku maður,
hafi verið vopnaður þegar lög-
reglumaðurinn Brentley Vin-
son skaut hann. Sú frásögn
gengur í bága við fullyrðingar
fjölskyldu hans um að Scott
hafi haldið á bók og beðið eftir
því að sonur hans kæmi með
skólabílnum. Samkvæmt yfir-
völdum í Charlotte voru lög-
reglumennirnir að leita að öðr-
um svörtum karlmanni þegar
þeir sáu Scott fara út úr bifreið
sinni með skammbyssu í hendi.
Myndskeið sem náðist úr
upptökuvél í lögreglubíl Brent-
leys Vinson verður ekki gert
opinbert. Borgarstjórinn mun
aftur á móti fá að sjá það sem
og fjölskylda Scotts. Hann var
þriðji svarti karlmaðurinn til
að vera skotinn af lögreglunni
á einni viku. Þrettán ára dreng-
ur lést í Ohio-ríki þegar hann tók
upp loftbyssu, sem lögreglumenn
héldu að væri skammbyssa, upp úr
vasa sínum. Þá var óvopnaður karl-
maður skotinn í borginni Tulsa í
Oklahoma. n
Haraldur Guðmundsson
haraldur@dv.is
Skotinn af lögreglu Keith Lamont Scott var 43 ára gamall og fullyrðir fjölskylda hans að hann hafi haldið á bók en ekki skotvopni.
Ósátt Mótmælendur
söfnuðust saman í
Charlotte á þriðjudags-
og miðvikudagskvöld.
Mynd EPA
Átök brutust út Mótmælandi
með krepptan hnefa sést hér
standa fyrir framan lögreglumenn
klædda í óeirðabúninga. Mynd EPA
Íhuga útgöngubann
Ríkisstjóri Norður-Karólínu
lýsti yfir neyðarástandi
vegna mótmælanna í
Charlotte. Mynd EPA
neyðarástandi og
íhuga útgöngubann