Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.2016, Blaðsíða 15
Helgarblað 23.–26. september 2016
í lausnargjald. Það vakti athygli rann-
sakenda sem tjáðu sig í þættinum að
upphæðin var nákvæmlega sú sama
og John hafði fengið í bónus frá vinnu-
veitanda sínum þetta sama ár. Mjög
fáir, ef einhverjir, utan fjölskyldunnar
vissu af umræddum bónus. Rann-
sakendur voru á sama máli um það
að bréfið virtist falsað, í því væru til
dæmis skrýtnar málfars- og stafsetn-
ingarvillur. Á sínum tíma kviknaði
grunur um að Patsy hefði skrifað bréf-
ið, þar sem ritstíll hennar var svipaður
þeim sem var á bréfinu. Lögreglu tókst
samt ekki að sanna það.
Telur að hægt sé að leysa málið
Eins og að framan greinir er málið enn
óleyst, tuttugu árum eftir að það kom
upp. James Fitzgerald, fyrrverandi
FBI-fulltrúi, sem kafað hefur ofan í
málið, sagði í þættinum að kominn
væri tími til að leysa málið í eitt skipti
fyrir öll. „Ég er á þeirri skoðun að það
sé hægt að leysa þetta mál. Hvort það
gerist veltur á öðrum en þeim sjö
rannsakendum sem komu að gerð
þáttarins.“
Þátturinn var sýndur aðeins
nokkrum dögum eftir að bróðir Jon-
Benet, Burke, fór í viðtal hjá sjón-
varpsmanninum dr. Phil um dauða
systur sinnar. „Ég man eftir því að
mamma hljóp inn í herbergið mitt og
öskraði upp yfir sig að JonBenet væri
ekki í rúminu sínu. Það næsta sem ég
man var að lögregluþjónn var inni í
herberginu með vasaljós. Ég veit að
fólk heldur að ég hafi gert þetta; að
foreldrar mínir hafi gert þetta. Ég
veit að við lágum undir grun,“ sagði
hann. n
www.avaxtabillinn.is
avaxtabillinn@avaxtabillinn.is • 517 0110
VETRAR-
Tilboð
Til VinnuVEiTEndA
Gómsætir
veislubakkar
sem lífga upp á
allar uppákomur
Það er líka
hægt að panta stöku
sinnum hjá Ávaxtabílnum
utan áskriftar.
T.d. þennan ávaxtapakka með 7 kg
af blönduðum ávöxtum á 5.000 kr.
Eða bara hvaða blöndu sem er,
en lágmarkspöntun er 4.000 kr.
Ávextir í áskrift kosta
um 550 kr. á mann
á viku og fyrirhöfn
fyrirtækisins er engin.
Við komum með ávexti
og þið uppskerið
hressara starfsfólk
Áhrif ávaxtakörfunnar eru göldrótt
á sálarlíf og heilsufar starfsfólks.
Fyrir óverulega upphæð er því hægt að hafa
afar góð áhrif á mannskapinn.
Fréttir Erlent 15
Dauði JonBenet Ramsey
26. desember 1996:
JonBenet Ramsey, sex ára, finnst látin í kjallara á heimili sínu. Nokkrum klukkustundum
áður hafði móðir hennar hringt í Neyðarlínuna og tilkynnt að stúlkan væri horfin og að
hún hefði fundið kröfubréf frá mannræningjunum. Í ljós kom að JonBenet hafði verið
kyrkt og barin.
1. janúar 1997:
Foreldrar JonBenet tjá sig í fyrsta skipti í sjónvarpi um dauða dóttur sinnar. Þar lýsa þau
yfir sakleysi sínu.
30. apríl 1997:
Foreldrar JonBenet eru kallaðir til yfirheyrslu hjá lögreglu í tengslum við dauða stúlkunnar.
20. maí 1997:
Patsy er beðin um að gefa lögreglu rithandarsýnishorn í fimmta sinn. Þetta var gert til
að kanna hvort hún hefði skrifað kröfubréfið.
Sumarið 1997:
Ramsey-fjölskyldan flytur frá Colorado til Atlanta.
12. mars 1998:
Lögreglan í Boulder biður saksóknaraembættið um að fara með málið fyrir ákærurétt.
12. ágúst 1998:
Yfirvöld segja að ákæruréttur muni taka afstöðu til þess hvort næg sönnunargögn séu í
málinu til að ákæra Ramsey-hjónin.
13. október 1998:
Kviðdómurinn sem á að taka afstöðu til málsins klofnar í afstöðu sinni og sak-
sóknaraembættið tilkynnir að engar ákærur verði gefnar út.
29. mars 2001:
Boulder-fjölskyldan fer fram á bætur vegna rangra sakargifta lögreglunnar í Boulder.
Málið endar með sátt.
Desember 2003:
Nýr saksóknari í Boulder staðfestir að DNA-erfðaefni úr blóðbletti sem fannst á nær-
buxum JonBenet hafi verið sett inn í gagnagrunn FBI og engin samsvörun fundist. Þá var
það staðfest að blóðbletturinn væri ekki úr neinum fjölskyldumeðlimi.
24. júní 2006:
Patsy Ramsey, móðir JonBenet, deyr af völdum krabbameins, 49 ára að aldri.
16. ágúst 2006:
John Mark Karr, 41 árs Bandaríkjamaður, er handtekinn í Taílandi vegna gruns um aðild
að dauða stúlkunnar. Hann játar að hafa orðið henni að bana en síðar kemur í ljós að um
falska játningu var að ræða.
September 2010:
Greint er frá því að lögregla hafi í hyggju að ræða við Burke, bróður JonBenet, um dauða
systur hans. Rannsókn á málinu hófst á nýjan leik í október 2010.
14. júní 2012:
James Kolar, sem kom að rannsókninni á sínum tíma,
segir í nýrri bók sinni að Ramsey-fjölskyldan hafi að
líkindum komið að dauða JonBenet.
Október 2013:
Gögn lögreglu vegna rannsóknarinnar á sínum
tíma eru gerð almenningi aðgengileg.
Ananas-
skálin Samkvæmt
þeirri kenningu sem varpað var fram í
þættinum sló bróðir JonBenet hana í
höfuðið eftir að hún stalst í þessa skál.