Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.2016, Síða 32
Helgarblað 23.–26. september 201624 Fólk Viðtal
É
g er afskaplega þakklát fyr-
ir að þessi brjóstahaldari
kostaði mig ekki lífið,“ segir
Jóhanna Ósk Gunnarsdóttir
sem lenti í alvarlegu bílslysi
á mánudagsmorgun. Hún endaði
utan vegar og velti Chevrolet Spark-
bíl sínum á Stafnesvegi í Sand-
gerði og segir að slysið megi rekja
til klaufalegs einbeitingarleys-
is í nokkur sekúndubrot. Í slysinu
brotnaði úr hrygg hennar en hún
slapp að öðru leyti með mar og
skrámur og kveðst þakklát fyrir að
ekki fór verr. Sérstaklega þar sem
hún segir að bílbeltið hafi brugð-
ist henni. Slysið sé þó áminning til
allra ökumanna um að það þurfi
ekki nema að gleyma sér í eitt
augnablik til að illa fari. Umboðs-
aðili bíltegundarinnar hér á landi
hyggst bregðast við og láta skoða
bílbeltin.
Leit af veginum
„Ég var að skutla stráknum mínum
í skólann og hafði farið að heiman
í flýti og gripið með mér brjósta-
haldara á hlaupum. Þegar ég var
að verða komin heim til foreldra
minna fór ég í kerfi því ég sá hann
ekki í sætinu og fór að þreifa eftir
honum. Ég fékk áfall yfir að hann
hefði kannski flækst í strákinn, sem
er í 10. bekk, og að hann myndi
mæta með brjóstahaldara hang-
andi í sér í skólann. Ég leit því að-
eins aftur í og síðan til baka og þá
var ég akkúrat í beygju og áður en
ég vissi af var ég komin út í móa.
Ég lenti á stórum steini sem sendi
bílinn í kollhnís og eina veltu,“
segir Jóhanna sem viðurkennir að
það sé neyðarlegt að játa að leit
hennar að brjóstahaldara hafi end-
að sem slíkum ósköpum. Þetta sýn-
ir hins vegar að það þarf ekki meira
til. Ekki nema að líta af veginum í
stutta stund til að illa geti farið. Á
tímum snjallsíma hefur verið mikið
rætt um farsímanotkun undir stýri
þar sem sjá má ökumenn með and-
litin ofan í skjám síma sinna á ferð
jafnvel lengri vegalengdir. Jóhanna
segir skelfilegt til þess að hugsa.
Bílbeltið brást
Jóhanna birti skilaboð til vina sinn
á Facebook á mánudag þar sem
hún greindi frá atvikinu. Þar sagði
hún að líklega hefði bílbeltið verið
gallað. DV hafði samband við Jó-
hönnu sem féllst á að deila lífs-
reynslunni. Ljóst er af lýsingum
hennar að bílbeltið hafi ekki sinnt
sínu hlutverki að fullu.
„Í stað þess að beltið læstist þá
fór það bara með mér þegar ég velt-
ist um í bílnum. Beltið yfir mittið
hélt en efri hluti búksins slóst bara
til, alveg yfir í farþegasætið. Og
þegar bíllinn lenti aftur á dekkj-
unum, skall ég aftur með bakið í
sætisbakið. Og af því að ég var á
fleygiferð um bílinn þá braut ég
eitthvað í hryggnum.“
Jóhanna segir þó að hún hafi
verið heppin þar sem mænan
hafi ekki skaðast. Læknir tjáði
henni að eitthvað hafi losnað
frá í hryggnum og að hún þurfi
að jafna sig með nægri hvíld og
verkjastillandi lyfjum.
„Ég get gengið og hreyft hendur
og fætur og er heil í hausnum
þannig að ég slapp ótrúlega vel.
Hitt er eitthvað sem á eftir að jafna
sig. En ég verð að taka því rólega í
8–12 vikur segja þeir, sem ég er al-
veg í losti yfir,“ segir Jóhanna sem
er mikil útivistarkona sem fer oft í
fjallgöngur og því lítið spennt fyrir
Heppin að
n Jóhanna Ósk hryggbrotnaði eftir bílveltu í
Sandgerði á mánudag n Óhugnanleg áminning
um að andartaks athyglisskortur getur skipt máli
vera á lífi
eftir að
bílbeltið
brást
Sigurður Mikael Jónsson
mikael@dv.is „
Áður en ég
vissi af var
ég komin
út í móa
Þakklát Jóhanna Ósk
tók augun af veginum
í augnablik með þeim
afleiðingum að hún
endaði utan vegar og
velti bíl sínum. Hún vill
þó meina að hún hefði
sloppið betur ef bíl-
beltið hefði gripið inn í.