Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.2016, Qupperneq 46
Helgarblað 23.–26. september 201638 Fólk
„Aðaltrixið
er að nota
húmorinn“
Hulda Snæberg leiðbeinir um „tuðfrítt uppeldi“
B
arnauppeldi getur tekið á
hvert einasta foreldri, mis-
mikið, en flestir foreldrar
hafa upplifað erfið tímabil
og ýmiss konar vanda í
tengslum við uppeldi. Þá er mis-
jafnt hvernig við bregðumst við og
hversu fljót við erum að yfirstíga
hindranirnar. Sumir leyfa tímanum
að vinna með sér aðrir leita eftir
aðstoð fagaðila. Sumir öskra, aðrir
tuða. Hulda Snæberg Hauksdóttir,
leikskólakennari og fjölskyldumeð-
ferðarfræðingur, hefur að undan-
förnu þróað og kennt foreldranám-
skeið þar sem hún leiðbeinir um
það sem hún kallar „tuðfrítt upp-
eldi“.
„Tuð þýðir í raun og veru það að
við erum að endurtaka í sífellu sömu
setninguna, eða ræða sama hlut-
inn, gjarnan fyrir daufum eyrum.
Við höldum að við séum að leiðrétta
hegðun eða biðja einhvern um að
breyta einhverju, en ekkert breyt-
ist!“ segir Hulda aðspurð hvað hún
meini eiginlega með orðinu „tuð“.
Tuðið er vafalaust eitthvað sem
margir tengja við en það getur
reynst þrautin þyngri að losna við
það og er það raunverulega hægt?
„Já, auðvitað! Með því að ákveða
hvernig samskipti við ætlum að eiga
innan fjölskyldunnar getum við
einblínt á jákvæðni og lausnir og
notað leiðir sem skila árangri! Bæði
fyrir okkur og börnin.“
Hulda telur mikilvægt að for-
eldrar viti og finni að þeir séu að
gera góða hluti í uppeldi barna
sinna, en einnig að þeir geti metið
hvenær gott er að sækja sér ráð til
fagaðila t.d. skóla, leikskóla, sál-
fræðings o.s.frv.
„Við foreldrar þurfum að upplifa
ánægju og vellíðan í foreldrahlut-
verkinu og vita að við erum að
miðla góðum hlutum til barnanna
okkar.“
Góð leynitrix
Þetta hljómar eins og tónlist og
sennilega eitthvað sem allir foreldrar
væru til í að tileinka sér en þegar á
reynir er stutt í tuðið. Áttu einhver
leynitrix til þess markvisst að bæta
uppeldisaðferðir?
„Ég á mörg leynitrix og í rauninni
felast helstu trixin í breyttu sam-
skiptamynstri og betra skipulagi
innan heimilisins. Til að ná því þarf
að byrja á að ræða við makann og
leggja svolítið línurnar með hlutverk
fullorðinna inni á heimilinu og ekki
síður hlutverk barnanna. En aðal-
trixið felst samt í húmor og hvernig
við notum hann í uppeldinu!“
Mjög áhugavert! En geturðu skýrt
þetta nánar varðandi húmorinn,
enda erfitt að ætla foreldri sem er
byrjað að tuða að venda kvæði sínu
í kross og fara að segja brandara?
„Dæmi um húmor í uppeldinu;
barnið vill ekki fara í skó og þú gef-
ur skónum líf og lætur þá tala við
barnið – það er fyndið ef maður er
t.d. fjögurra ára og öfugsnúinn að
morgni, eða þá að foreldri reynir
að troða sér í föt barnsins með til-
þrifum og kemst augljóslega ekki
í þau! Ef barn eða unglingur vill
ekki matinn sinn má nota orðin
sem þau hafa notað um matinn
þegar er kallað á þau í kvöldmat
t.d. „Komdu að borða elskan mín,
það eru drullukökur með ælusósu
og slímkartöflum í matinn!“ Þetta
vekur oft kátínu og léttir lund! Fjöl-
skyldan getur þá gantast með mál-
tíðina og leikið sér að orðum í stað
þess að suða og tuða við matar-
borðið. Eins virkar vel að rifja upp
eitthvað fyndið sem börnin gerðu
þegar þau voru yngri. Þau elska að
heyra fyndnar sögur af sjálfum sér.“
Hulda brosir og virðist geta sniðið
grín í kringum alls konar hvers-
dagslegar athafnir.
Tuð er leiðinlegur ávani og það
getur reynst erfitt og tekið langan
tíma að breyta venjum. Hvaða
áherslur eru á námskeiðinu og
þarf fólk ekki að æfa sig til þess að
ná árangri í þessum efnum eins og
öðrum?
„Á örnámskeiðinu fer ég
yfir helstu áskoranir sem mæta
foreldrum í uppeldi barna sinna.
Þátttakendur fá tækifæri til að
spjalla í litlum hópum og að lokum
svara ég spurningum og vangavelt-
um þátttakenda. Við fáum okkur
líka kaffi og te eða vatn og megum
standa upp og ganga um gólf því
það getur verið krefjandi að þurfa
að sitja kyrr eftir vinnudaginn!“
Fyrsta námskeið vetrarins verður
auglýst fljótlega og haldið í október.
Hægt er að skrá sig og panta pláss á
netfanginu ornamskeid2016@gma-
il.com en þar er jafnframt öllum
fyrirspurnum svarað. n
Hulda Snæberg Hauksdóttir „Við foreldrar þurfum að upplifa
ánægju og vellíðan í foreldrahlutverkinu.“ Mynd SiGtryGGur Ari„Með því að ákveða
hvernig samskipti
við ætlum að eiga innan
fjölskyldunnar getum
við einblínt á jákvæðni
og lausnir og notað leiðir
sem skila árangri.
Út fyrir
kassann
Kristín tómasdóttir
skrifar
Komdu
þér í form
Glæsibæ • www.sportlif.is
Stacker 4
Sterkustu
brennslutöflur
í Evrópu