Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.2016, Page 48
Helgarblað 23.–26. september 2016
40. tölublað 106. árgangur Leiðbeinandi verð 785 kr. dv.is/frettaskot askrift@dv.is Sími 512 7000
Geta ekki
meir af Siggu
n Hinn síkáti Atli Fannar
Bjarkason, fjölmiðlamað
ur með meiru, hefur auga fyrir
því skemmtilega í tilverunni.
Þess vegna vekur verðskuldaða
athygli þegar hann deilir á sam
félagsmiðlum mynd af því sem
hann telur að sé það fyndnasta
sem hann hefur séð. Um var að
ræða kurteisislegt bréf frá nafn
lausum aðilum sem hengt var
upp í sameign fjölbýlishúss í
borginni. Innihald þess var ör
væntingarfull beiðni um að
ótilgreindur nágranni hætti að
spila lagið „Brú yfir boðaföll
in“ í flutningi Siggu
Beinteins.
„Vinsamleg
ast lækkaðu
eða notaðu
heyrnartól“
var beiðni
hinna niður
brotnu ná
granna.
Klipping á 450
krónur
n Gunnar Þorsteinsson, fyrr
verandi forstöðumaður Krossins
í Kópavogi, fór í klippingu og
skeggsnyrtingu í Póllandi í
vikunni og var hæstánægður
með útkomuna. Ekki skemmdi
verðið fyrir en Gunnar borgaði
einungis 450 krónur fyrir her
legheitin. Hann er nú staddur
í Póllandi ásamt
eiginkonu sinni,
Jónínu Ben,
sem er eins
og svo oft
áður með Ís
lendinga í
detoxi þar.
Þreyttur frasi um
þungavigt
n Á tímum pólitísks óróa og átaka
er oft gripið til ýmissa frasa í frétt
um og umræðunni. Einn þeirra
er orðinn ansi þreyttur að mati
Kastljósstjörnunnar Helga Seljan
sem segir á Twitter, í kjölfar frétta
af úrsögn Sjálfstæðiskvenna úr
flokknum:
„Getum við hætt þessu tali um
þungavigtarkonur og karla. Nema
náttúrulega þau séu það, það er
í þeim þyngdarflokki í bardaga
íþróttum?“
Spurning
hvort kollegi
Helga hjá
RÚV, Arnar
Páll Hauks
son, taki und
ir þessa hug
mynd?
Í hvaða flokki
er sá feiti?
T
uttugu og fimm ár eru
síðan Eystrasaltslöndin þrjú
endurheimtu sjálfstæði sitt
og þess er minnst með mál
þingi í Norræna húsinu
næstkomandi mánudag. Lilja
Alfreðsdóttir utanríkisráðherra flytur
opnunarávarp og situr pallborðsum
ræður með utanríkisráðherrum Eist
lands, Litháens og Lettlands síðar
um daginn. Forseti Íslands, Guðni
Th. Jóhannesson, flytur inngangs
ávarp en hann hefur reglulega drep
ið niður penna um lofsvert hlut
verk Íslendinga, undir forystu Jóns
Baldvins Hannibalssonar, í sjálf
stæðisbaráttu landanna.
Það vekur því óneitanlega nokkra
eftirtekt að nafn Jóns Baldvins er
hvergi að sjá á meðal þeirra sem
ávarpa málþingið. „Ég vissi ekki af
þessu þingi og get staðfest að enginn
hefur boðið mér þátttöku,“ segir Jón
Baldvin í samtali við DV. „Ég er stadd
ur á flugvelli í Andalúsíuhéraði og er
á heimleið til þess að taka þátt í há
tíðarfundi á Ísafirði í tilefni þess að 100
ár eru frá stofnun Alþýðuflokksins. Sá
fundur fer fram um helgina,“ segir Jón
Baldvin. Hann vildi ekki segja skoðun
sína á því að honum hefði ekki verið
boðin þátttaka í málþinginu.
Jón Baldvin heimsótti nýlega mál
þing í Lettlandi og Litháen í tengslum
við tímamótin. Í Riga sat hann hring
borðsumræður þar sem farið var yfir
ávinning Eystrasaltsríkja og Norður
landanna af samstarfinu. „Í fyrri
viku var ég meðal framsögumanna á
tveggja daga ráðstefnu í Vilníus sem
utanríkisráðherra Litháens boðaði til.
Þar var rætt um framtíð Evrópu til hlið
sjónar af 25 ára reynslu Eystrasaltsríkj
anna af sjálfstæði og þar var ég á með
al framsögumanna. Þar um slóðir er
því leitað til mín,“ segir Jón Baldvin
kankvís. Aðspurður hvort að hann
hygðist mæta á málþingið og hlýða
þar á erindi fundarmanna segir Jón
Baldvin: „Nei, það mun ég ekki gera.
Mér er ekki boðið.“ n bjornth@dv.is
„Mér er ekki boðið“
Málþing í Norræna húsinu um sjálfstæði Eystrarsaltslandanna
Jón Baldvin
Hannibalsson