Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.2016, Side 6
Helgarblað 28.–31. október 20166 Fréttir
n Nauta-, svína- og gæsakjöt verður senn í boði hjá Kjötborðinu n Verðið í haust var á pari við Bónus
M
arkmiðið er að bændur
fái meira í sinn hlut og
að auðvelda aðgengi al-
mennings að vörunum
þeirra,“ segir Vignir Már
Lýðsson, framkvæmdastjóri Kjöt-
borðsins, í samtali við DV. Kjötborðið
er markaðstorg á netinu þar sem
bændur selja afurðir sínar millilið-
alaust til neytenda. Vefsíðunni kjot-
bordid.is var ýtt úr vör í haust en þar
gátu neytendur, fyrsta kastið, keypt
lambakjöt beint af bændum.
Verðsamanburður sem DV fram-
kvæmdi fyrir nokkru leiddi í ljós að
það kostaði nokkurn veginn jafn
mikið að kaupa heilan skrokk beint
frá bónda af vefsíðu Kjötborðsins og
að kaupa sem nemur heilum skrokki
í Bónus. Afurðaverð sem sláturhús
greiðir til bænda er um 550 krónur,
eftir lækkun sláturleyfishafa í haust.
Hjá Kjötborðinu er kílóverðið á
bilinu 1.250 til 1.300 krónur. Þá á
bóndinn eftir að ganga frá kjötinu og
senda á eigin kostnað.
Stórlækka þóknunina
Vignir segir að um tilraunaverkefni
hafi verið að ræða. Eftirspurn og
viðbrögð hafi hins vegar verið langt
umfram væntingar. Landssamband
sauðfjárbænda hafi til að mynda tek-
ið mjög vel í verkefnið en því mið-
ur hafi ekki tekist að koma síðunni
á fót áður en flestir bændur ráðstöf-
uðu hvaða hluti fjárins færi í vinnslu
í sláturhúsi og hvað þeir tækju heim.
Því hafi aðeins fáeinir bændur selt
kjöt sitt á vefsíðunni. Nú sé kjötið
sem stóð til boða uppselt.
Naut, svín og gæsir
Að sögn Vignis voru nokkrir bændur
óánægðir með framtakið þó að þeir
hafi verið mun fleiri sem lýstu yfir
ánægju sinni. Gagnrýnin hafi helst
beinst að því að Kjötborðið tók til sín
15 prósenta þóknun. Hann segir að í
því ljósi hafi verið ákveðið að lækka
þetta hlutfall niður í 5 prósent. Til að
reksturinn standi undir sér er sam-
hliða stefnt að því að útvíkka starf-
semina og bjóða bændum og öðrum
sem framleiða matvæli að selja fleiri
og fjölbreyttari vörur á síðunni. „Við
erum að horfa til fleiri vörutegunda,
svo sem nautakjöts og svínakjöts.
Við ætlum líka að gefa gæsaskytt-
um kost á að selja þarna gæsir og
fleiri veiðimönnum. Þetta á að verða
matar kista.“
Hann nefnir líka harðfisk og há-
karl auk þess sem til standi að heyra
í heimavinnslum um allt land.
Það að selja lambskrokka, heila og
hálfa, hafi þess vegna bara verið til-
raun. Hann bendir á að bændum
verði í sjálfsvald sett hvað þeir selji
á síðunni auk þess sem Kjötborðið
hafi ekkert með verðlagningu að
gera. Því ráði seljendur.
Svipað verð
DV tók saman hvernig þessi tilraun,
sem Vignir lýsir, kom út fyrir neyt-
endur. Niðurstaðan er sú að kaup-
andi sem keypti heilan skrokk af
bónda hjá Kjötborðinu greiddi fyrir
það álíka upphæð og ef hann hefði
keypt tvö læri, hrygg og sneiddan
frampart frosinn í Bónus. Þar veistu
ekki hvaða nákvæmlega hvaðan
kjötið er komið. Ef þóknun Kjöt-
borðsins lækkar um 10 prósentustig
verður ef til vill ódýrara að kaupa
beint frá bónda en úr frystikistum
stórmarkaða.
Meðalþyngd dilka í Fjallalambi á
Kópaskeri þetta haustið er um 16,4
kíló. Fjallalamb lét DV í té reiknivél
sem sýnir hvernig þyngdin skiptist.
Í þeirri reiknivél er miðað við að 38
prósent þyngdarinnar sé frampartur
(6,23 kg), lærin nemi 35 prósentum
þyngdarinnar (5,74 kg) og hryggur-
inn 15 prósentum (2,46 kg). Slög eru
um 12 prósent (tæp tvö kíló) en í
þeim eru lítil verðmæti. Slög eru alla
jafnan ekki seld í matvörubúðum og
eru því látin liggja milli hluta hér.
Kílóverð bænda í kjötborðinu var
yfirleitt á bilinu 1.250 til 1.300 krón-
ur. Ef 1.250 króna kílóverð er marg-
faldað með 16,4 kostaði skrokkurinn
20.500 krónur beint frá bónda.
Þegar DV athugaði verð í
Bónus þann 4. október, skömmu
eftir að Kjötborðið var opnað, var
kílóverðið á frosnu lambalæri 1.498
krónur, hryggur var á 1.998 krón-
ur og frampartur (lambasúpukjöt)
á 798 kr/kg. Ígildi sagaðs skrokks
í Bónus (miðað við meðalþyngd
hvers parts) kostaði þannig 18.487
krónur. Munurinn á verði heils
skrokks í Bónus annars vegar og hjá
Kjötborðinu hins vegar var þannig
rúmlega 1.500 krónur. Þá vantar
slögin hjá Bónus, en þau eru stund-
um soðin fyrir hunda eða nýtt í ein-
hverja rétti. Verðið er því nánast það
sama. n
Kjöt til sölu Hér gefur að líta heimasíðu Kjötborðsins.
„Þetta á að verða matarkista“
Tilraunaverkefni Til stend-
ur að víkka út starfsemi Kjöt-
borðsins. Vignir Már Lýðsson
segir að lækka eigi þókunina
mikið. MyNd SigTryggur Ari
Baldur guðmundsson
baldur@dv.is