Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.2016, Blaðsíða 8
Helgarblað 28.–31. október 20168 Fréttir
Seinka afhendingu á
skipi Fáfnis um tvö ár
n Fáfnir Viking ekki afhent fyrr en í apríl 2019 n Fjármögnun ekki tekist
A
fhendingu á nýju fimm millj
arða króna skipi dótturfé
lags Fáfnis Offshore hefur
verið seinkað í annað sinn
eða um tvö ár. Fyrirtækinu
hefur vegna verkefnaskorts ekki tek
ist að fjármagna smíði skipsins en
stjórnendur þess komust um miðj
an október að samkomulagi við
norsku skipasmíðastöðina Havyard
um frestun sjósetningu þess til apríl
2019. Norska fyrirtækið gerði þá kröfu
að dótturfélagið gangi frá fyrirfram
greiðslu á hluta kaupverðsins í byrjun
janúar á næsta ári en íslenskir lífeyris
sjóðir eru stórir eigendur í Fáfni.
Átti að koma í júní
Fáfnir Offshore, sem rekur sérút
búna olíuþjónustuskipið Polarsyssel,
dýrasta skip Íslandssögunnar, sem
Havyard Ship Technology AS smíðaði
og afhenti í september 2014, pantaði
nýja skipið Fáfni Viking í apríl 2014.
Samningurinn við skipasmíðastöðina
var þá metinn á 350 milljónir norskra
króna eða 4,8 milljarða króna miðað
við núverandi gengi. Afhendingu þess
var í byrjun desember í fyrra seinkað
frá mars 2016 til júní 2017. Þann 18.
október síðastliðinn sendi Hav yard
svo tilkynningu til norsku kauphallar
innar (Oslo Børs) um að fyrirtækið
hefði komist að samkomulagi við Fáfni
um seinkun til apríl 2019.
Í tilkynningu Havyard segir að
Fáfnir hafi ekki tryggt nýja skipinu
framtíðarverkefni sem sé skilyrði fyrir
lánsfjármögnun. Samkomu
lagið hafi áhrif á rekstur
skipasmíðastöðvarinnar sem
hefur líkt og Fáfnir fundið
fyrir lækkun olíuverðs sem
fór að hrynja hálfu ári eftir
að Fáfnir Viking var pantað.
Fáfnir Offshore var eins og
kom fram í DV í byrjun sept
ember rekið með um tveggja
milljarða króna tapi í fyrra en
stjórn þess ákvað þá að færa
niður virði Polarsyssel um 785 millj
ónir króna vegna erfiðra markaðsað
stæðna.
Fært í dótturfélag
Fáfnir Viking er í eigu Polar Maritime
ehf. sem er dótturfélag Fáfnis Off
shore og var stofnað í apríl síðastliðn
um. Fyrirtækið hafði nokkrum vikum
áður greitt Havyard 12,75 milljónir
norskra króna, jafnvirði 191 milljón
ar króna miðað við þáverandi gengi,
vegna skipsins og kostnaðarins sem
fyrri seinkunin olli. Greiðslan til Hav
yard var alfarið fjármögnuð með
skuldabréfaútgáfu sem nokkrir af
stærstu hluthöfum fyrirtækisins tóku
þátt í mánuði áður. Eins og kom fram í
frétt DV gerði sýslumannsembættið á
Svalbarða, sem hefur leigt Polar syssel
í níu mánuði á ári, og þannig skapað
eina verk efni Fáfnis, kröfu um að
smíði nýja skipsins yrði færð
í dótturfélagið svo óvissan
um hana og greiðslur til
Havyard hefðu ekki áhrif á
rekstur eldra skipsins.
Hluthafarnir sem tóku
þátt í skuldabréfaútgáfunni
ákváðu í byrjun ágúst að
breyta kröfum sín
um í hlutafé. Fram
takssjóðurinn
Akur, sem er í eigu
þrettán lífeyris
sjóða, Íslands
banka og VÍS, er
stærsti eigandi
Fáfnis með 35,3
prósenta hlut.
Þar á eftir kemur
framtakssjóður
inn Horn II, sem
er í eigu lífeyris
sjóða, fjármála
fyrirtækja og
fagfjárfesta, með 24,38 prósent. Þessir
tveir hluthafar, sem áttu í árslok 2015
annars vegar 30 prósent og hins vegar
23 prósent í Fáfni, skiptu báðir skulda
bréfum í hlutafé. Það gerði einnig fé
lagið Sjávar sýn ehf., fjárfestingarfé
lag Bjarna Ármannssonar, fjárfestis
og fyrrverandi forstjóra Glitnis. Félag
hans átti 7,33 prósenta hlut í Fáfni í
lok síðasta árs en á nú 11,5 prósent.
Eignarhlutur Fafnir Holding ehf. í
fyrir tækinu, og annarra hluthafa sem
ekki tóku þátt, skrapp aftur á móti
saman. Félagið er í eigu Steingríms
Erlingssonar, stofnanda og fyrrver
andi forstjóra Fáfnis, sem var sagt
upp störfum í desember.
Jóhannes Hauksson, stjórnar
formaður Fáfnis Offshore, vildi
ekki tjá sig um seinkunina á af
hendingu Fáfnis Viking þegar DV
leitaði eftir því og upp
lýsa um upphæðina
sem fyrirtækið þarf
að greiða í janú
ar á næsta ári. Ekki
náðist í Bjarna Ár
mannsson, stjórn
arformann Polar
Maritime. n
Haraldur Guðmundsson
haraldur@dv.is
Polarsyssel Árið 2014 ætlaði Fáfnir
Offshore að eiga og reka tvö skip sem gætu
þjónustað olíuiðnaðinn í Norðursjó. Íslenskir
lífeyrissjóðir fóru í kjölfarið inn í hluthafahóp
fyrirtækisins eða rétt áður en olíuverð hrundi.
Afhendingu á nýju fimm milljarða króna skipi
dótturfélags Fáfnis hefur verið seinkað til
apríl 2019.
Stjórnarfor-
maður Fáfnis
Jóhannes Hauksson
vildi ekki svara því
hversu mikið Fáfnir
Offshore þarf að greiða
Havyard í janúar vegna
seinkunarinnar.
eldbakaðar
eðal pizzur
sími 577 3333
www.castello.is
Dalvegi 2, 201 Kópavogi / Dalshrauni 13, 220 Hafnarfirði
Guðrúnartúni 4,
105 reykjavík
Sími: 533 3999
www.betraGrip.iS
Opið
virka
daga frá
kl. 8–17
gæða
dekk á
góðu
verði