Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.2016, Qupperneq 8

Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.2016, Qupperneq 8
Helgarblað 28.–31. október 20168 Fréttir Seinka afhendingu á skipi Fáfnis um tvö ár n Fáfnir Viking ekki afhent fyrr en í apríl 2019 n Fjármögnun ekki tekist A fhendingu á nýju fimm millj­ arða króna skipi dótturfé­ lags Fáfnis Offshore hefur verið seinkað í annað sinn eða um tvö ár. Fyrirtækinu hefur vegna verkefnaskorts ekki tek­ ist að fjármagna smíði skipsins en stjórnendur þess komust um miðj­ an október að samkomulagi við norsku skipasmíðastöðina Havyard um frestun sjósetningu þess til apríl 2019. Norska fyrirtækið gerði þá kröfu að dótturfélagið gangi frá fyrirfram­ greiðslu á hluta kaupverðsins í byrjun janúar á næsta ári en íslenskir lífeyris­ sjóðir eru stórir eigendur í Fáfni. Átti að koma í júní Fáfnir Offshore, sem rekur sérút­ búna olíuþjónustuskipið Polarsyssel, dýrasta skip Íslandssögunnar, sem Havyard Ship Technology AS smíðaði og afhenti í september 2014, pantaði nýja skipið Fáfni Viking í apríl 2014. Samningurinn við skipasmíðastöðina var þá metinn á 350 milljónir norskra króna eða 4,8 milljarða króna miðað við núverandi gengi. Afhendingu þess var í byrjun desember í fyrra seinkað frá mars 2016 til júní 2017. Þann 18. október síðastliðinn sendi Hav yard svo tilkynningu til norsku kauphallar­ innar (Oslo Børs) um að fyrirtækið hefði komist að samkomulagi við Fáfni um seinkun til apríl 2019. Í tilkynningu Havyard segir að Fáfnir hafi ekki tryggt nýja skipinu framtíðarverkefni sem sé skilyrði fyrir lánsfjármögnun. Samkomu­ lagið hafi áhrif á rekstur skipasmíðastöðvarinnar sem hefur líkt og Fáfnir fundið fyrir lækkun olíuverðs sem fór að hrynja hálfu ári eftir að Fáfnir Viking var pantað. Fáfnir Offshore var eins og kom fram í DV í byrjun sept­ ember rekið með um tveggja milljarða króna tapi í fyrra en stjórn þess ákvað þá að færa niður virði Polarsyssel um 785 millj­ ónir króna vegna erfiðra markaðsað­ stæðna. Fært í dótturfélag Fáfnir Viking er í eigu Polar Maritime ehf. sem er dótturfélag Fáfnis Off­ shore og var stofnað í apríl síðastliðn­ um. Fyrirtækið hafði nokkrum vikum áður greitt Havyard 12,75 milljónir norskra króna, jafnvirði 191 milljón­ ar króna miðað við þáverandi gengi, vegna skipsins og kostnaðarins sem fyrri seinkunin olli. Greiðslan til Hav­ yard var alfarið fjármögnuð með skuldabréfaútgáfu sem nokkrir af stærstu hluthöfum fyrirtækisins tóku þátt í mánuði áður. Eins og kom fram í frétt DV gerði sýslumannsembættið á Svalbarða, sem hefur leigt Polar syssel í níu mánuði á ári, og þannig skapað eina verk efni Fáfnis, kröfu um að smíði nýja skipsins yrði færð í dótturfélagið svo óvissan um hana og greiðslur til Havyard hefðu ekki áhrif á rekstur eldra skipsins. Hluthafarnir sem tóku þátt í skuldabréfaútgáfunni ákváðu í byrjun ágúst að breyta kröfum sín­ um í hlutafé. Fram­ takssjóðurinn Akur, sem er í eigu þrettán lífeyris­ sjóða, Íslands­ banka og VÍS, er stærsti eigandi Fáfnis með 35,3 prósenta hlut. Þar á eftir kemur framtakssjóður­ inn Horn II, sem er í eigu lífeyris­ sjóða, fjármála­ fyrirtækja og fagfjárfesta, með 24,38 prósent. Þessir tveir hluthafar, sem áttu í árslok 2015 annars vegar 30 prósent og hins vegar 23 prósent í Fáfni, skiptu báðir skulda­ bréfum í hlutafé. Það gerði einnig fé­ lagið Sjávar sýn ehf., fjárfestingarfé­ lag Bjarna Ármannssonar, fjárfestis og fyrrverandi forstjóra Glitnis. Félag hans átti 7,33 prósenta hlut í Fáfni í lok síðasta árs en á nú 11,5 prósent. Eignarhlutur Fafnir Holding ehf. í fyrir tækinu, og annarra hluthafa sem ekki tóku þátt, skrapp aftur á móti saman. Félagið er í eigu Steingríms Erlingssonar, stofnanda og fyrrver­ andi forstjóra Fáfnis, sem var sagt upp störfum í desember. Jóhannes Hauksson, stjórnar­ formaður Fáfnis Offshore, vildi ekki tjá sig um seinkunina á af­ hendingu Fáfnis Viking þegar DV leitaði eftir því og upp­ lýsa um upphæðina sem fyrirtækið þarf að greiða í janú­ ar á næsta ári. Ekki náðist í Bjarna Ár­ mannsson, stjórn­ arformann Polar Maritime. n Haraldur Guðmundsson haraldur@dv.is Polarsyssel Árið 2014 ætlaði Fáfnir Offshore að eiga og reka tvö skip sem gætu þjónustað olíuiðnaðinn í Norðursjó. Íslenskir lífeyrissjóðir fóru í kjölfarið inn í hluthafahóp fyrirtækisins eða rétt áður en olíuverð hrundi. Afhendingu á nýju fimm milljarða króna skipi dótturfélags Fáfnis hefur verið seinkað til apríl 2019. Stjórnarfor- maður Fáfnis Jóhannes Hauksson vildi ekki svara því hversu mikið Fáfnir Offshore þarf að greiða Havyard í janúar vegna seinkunarinnar. eldbakaðar eðal pizzur sími 577 3333 www.castello.is Dalvegi 2, 201 Kópavogi / Dalshrauni 13, 220 Hafnarfirði Guðrúnartúni 4, 105 reykjavík Sími: 533 3999 www.betraGrip.iS Opið virka daga frá kl. 8–17 gæða dekk á góðu verði

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.