Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.2016, Blaðsíða 14
Helgarblað 28.–31. október 201614 Kosningaumfjöllun
KosningaKompásinn
n Hvað boða flokkarnir í kosningunum? n Hver er stefna þeirra í helstu málaflokkum? n Berðu saman hvað þeir ætla að gera í þeim málefnum sem þér þykja mikilvæg
Á morgun, laugardaginn 29. október, verður gengið til alþingiskosninga í 22. skiptið frá lýðveldisstofnun. Af því tilefni fór DV í gegnum stefnuskrár þeirra níu flokka sem bjóða fram í öllum kjördæmum og bar saman áherslur þeirra í nokkrum
málaflokkunum. Kosningakompás DV er samsettur úr upplýsingum úr stefnuskrá flokka fyrir kosningar, sem og almennum stefnuskrám og ályktunum af síðasta flokksþingi/landsfundi flokka, eftir því sem við á, af vefsíðum viðkomandi flokka.
Utanríkismál
skattar
sjávarútvegur
Landbúnaður
atvinnumál
Húsnæðismál
Heilbrigðismál
Umhverfismál
stjórnarskráin
gjaldmiðill
málefni öryrkja/
eldri borgara
málefni
útlendinga
menning
Ísland standi utan ESB. Frjáls viðskipti á alþjóðavettvangi.
Tengsl við Bretland eftir Brexit tryggð. Leita fríverslunar-
samnings við Bandaríkin. Utanríkisstefnan grundvölluð á
norrænu samstarfi, EFTA, EES og NATO. Hagsmuna Íslands á
norðurslóðum gætt.
Ísland utan hernaðarbandalaga, tali fyrir friði í alþjóðasam-
félaginu. Efli og stórauki framlög til þróunarsamvinnu til
samræmis við stefnu SÞ. Ísland standi utan ESB.
Vilja þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhald viðræðna við
ESB. Hafna hernaðaruppbyggingu í N-Atlantshafi og Íshafinu
og vilja stóraukið samstarf með nágrannaþjóðum varðandi
eftirlit með landhelgi og lögsögu auk björgunarstarfa.
Ekki markmið að hækka skatta eða lækka þá, heldur vilja
Píratar að skattheimta standi undir grunnstoðum samfé-
lagsins. Tryggt skal að alþjóðleg fyrirtæki greiði skatta hér
á landi. Leita á uppi fjármuni Íslendinga sem geymdir eru í
skattaskjólum.
Vilja breyta fiskveiðistjórnunarkerfinu og
bjóða upp aflaheimildir á opnum mark-
aði. Vilja allan afla á markað. Vilja gefa
handfæraveiðar frjálsar.
Vilja afleggja búvörusamninga og koma
á nýju landbúnaðarkerfi sem m.a. inniberi
grunnstuðning við bændur óháð framleiðslu.
Vilja fella niður tolla af landbúnaðarvörum.
Afnema beri undanþágur matvælafyrirtækja frá
samkeppnislögum.
Leggja áherslu á uppbyggingu ferðaþjónustu með skýrri
stefnumótun þar sem sjálfbærni og fagmennska er höfð að
leiðarljósi.
Tryggja þarf öllum aðgang að húsnæði í takt við þarfir og
fjárhagslega getur. Styðja á við leigjendasamtök og auka
úrval búsetukosta. Bregðast þarf við aukinni eftirspurn
eftir húsnæði. Tryggja ætti að húsnæði sem nú stendur autt
standi til boða á leigumarkaði og hækka á húsaleigubætur.
Vilja gjaldfrjálsa heilbrigðisþjónustu fyrir alla, óháð búsetu.
Auka við fjármagn til heilbrigðiskerfisins og færa sálfræðiþjón-
ustu og tannlækningar inn í almannatryggingakerfið. Halda
áfram uppbyggingu Landspítala við Hringbraut en meta aðra
mögulega staðsetningarkosti.
Ábyrg umgengni við náttúruna og sjálfbær nýting auðlinda
eru nauðsynleg forgangsmál. Náttúran njóti vafans og fylgja
skal megingildum sjálfbærrar þróunar. Hlíta skal alþjóða-
samningum um umhverfismál. Vernda þarf miðhálendið.
Styðja við rafbílavæðingu.
Samþykkja ber nýja
stjórnarskrá þar sem tillögur
stjórnlagaráðs verða lagðar
til grundvallar í öllum efnis-
atriðum.
Vilja að heimilt verði að gefa
út hliðargjaldmiðla og að þá sé
hægt að nýta til greiðslumiðlunar.
Kanna skal kosti þess að breyta
útgáfufyrirkomulagi íslensku krón-
unnar í heildarforðakerfi.
Afnema á tekjuskerðingu á lífeyri og innleiða lágmarksvið-
miðunarfjárhæðir sem teljast nægilegar til framfærslu og
mannsæmandi lífs. Bæta á kjör aldraðra.
Taka ber á móti fleiri flóttamönnum og
hælis leitendum og almennt að taka
betur á móti fólki sem vill setjast hér að.
Samræma stefnu í málefnum innflytjenda
með það að markmiði að jafnræðis sé gætt
gagnvart öllum erlendum ríkisborgurum.
Tryggja höfundum ágóða af verkum sínum í endurskoðuð-
um höfundaréttarlögum, styrkja rétt höfunda gagnvart
milli liðum, hugmyndir um þjóðfund um stefnu í menningar-
málum.
Lækka skatta, einfalda skattkerfið. Draga úr jaðaráhrifum
skatta. Lækka tryggingargjald. Afnema lögbundið lágmarks-
útsvar. Afnema ýmsa tolla. Eitt og almennt skattumhverfi
fyrirtækja. Taka á skattaundanskotum.
Efla skatteftirlit og rannsóknir v. undanskota. Banna nýtingu
aflandsfélaga. Þrepaskipt skattkerfi sem nýtt verði til
jöfnunar. Áhersla á aukin framlög þeirra ríkustu. Hækka
gistináttagjald og skipta tekjum milli ríkis og sveitarfélaga.
Skattleggja stórfyrirtæki. Skattleggja brask með gjaldmiðla
og skammtímagróða fjármagnshreyfingar.
Talað fyrir óbreyttu kerfi og nauðsyn þess að
tryggja stöðugleika í sjávarútvegi svo hann
geti áfram staðið að nýsköpun og lagt drjúgan
og sanngjarnan skerf af mörkum til lífsgæða
landsmanna.
Sjálfbær nýting fiskistofna, arður af auðlindinni til þjóðarinn-
ar. Fylgja ráðgjöf vísindamanna við nýtingu stofna. Fylgjast
með reynslu Færeyinga, til greina komi að hluti aflaheimilda
farið uppboðsleið. Auðlindagjald tekið af sjávarútvegsfyrir-
tækjum í hlutfalli við afkomu greinarinnar. Auka strandveiðar
og ráðstöfun heimilda til að verja byggðir landsins.
Nýta svigrúm sem landbúnaðinum hefur verið
gefið með búvörusamningunum og leggja drög
að nýjum og fjölbreyttari búskaparháttum á
grundvelli einkaframtaks og frjálsra markaðshátta
og samkeppni milli landa sem innanlands.
Vilja endurskoða nýgerðan búvörusamning. Auka nýsköpun
og rannsóknir í landbúnaði, vöruþróun og möguleika á rekj-
anleika með upprunamerkingu. Draga úr losun gróðurhúsa-
lofttegunda. Bæta möguleika á lífrænum valkostum.
Fjölbreytni, framtak og sjálfbærni í atvinnulífi sé forsenda
framfara og undirstaða velferðar. Að aðlaðandi atvinnuum-
hverfi fyrir fólk og fyrirtæki sé fjölskyldustefna til framtíðar.
Efla sprotaumhverfi og nýsköpun. Náttúruvæn og hagkvæm
auðlindanýting.
Lægstu laun dugi fyrir grunnframfærslu, stytta vinnuvikuna
án skerðingar, upphæðir almannatrygginga fylgi launaþróun.
Tryggja jöfn tækifæri allra til atvinnu með markvissri innviða-
uppbyggingu. Auka grunnþjónustu og menntunarmöguleika í
heimabyggð, jafna búsetukostnað. Fjárfesta í rannsóknum og
nýsköpun, byggja upp þekkingariðnað og styrkja skapandi greinar.
Fyrstu íbúðarkaup auðvelduð, stuðla að lækkun byggingar-
kostnaðar, einfalda byggingarreglugerðir og auka framboð
íbúða. Auðvelda fyrstu kaup með skattalegum og vaxtaleg-
um hvötum til sparnaðar. Festa séreignarsparnaðarleiðina í
sessi. Stuðla að virkari sölu- og leigumarkaði. Afskiptum hins
opinbera af greiðslumati og ábyrgðum verði hætt.
Vilja tvöfalda stofnframlög til uppbyggingar leiguhúsnæðis
og hækka húsnæðisbætur. Tryggja lán fyrir alla tekjuhópa
þannig að þeir sem vilja eignast húsnæði eigi þess kost.
Markmiðið að húsnæðiskostnaður fari ekki yfir fjórðung af
ráðstöfunartekjum.
Lækka greiðsluþátttöku sjúklinga. Áfram átak í styttingu
biðlista. Auka þjónustu við aldraða. Geðheilbrigðisáætlun,
forvarnir og heilsuefling. Fjölga heilsugæslustöðvum, auka
þjónustu. Unnið eftir langtímastefnu í heilbrigðismálum.
Fylgja eftir framkvæmdaáætlun um uppbyggingu
Landspítalans.
Félagslega rekið gjaldfrjálst heilbrigðiskerfi. Hafna einkarekstri í
ágóðaskyni og arðgreiðslum. Framlög ríkisins verði 11% af vergri
landsframleiðslu. Landspítali við Hringbraut, efla heilsugæsl-
una, sjúkraflutninga og sjúkraflug. Draga úr kostnaðarþátttöku
sjúklinga. Sálfræðiþjónusta verði hluti af almennri heilbrigðis-
þjónustu sem og tannlækningar, sjúkra-, tal- og iðjuþjálfun.
Standa vörð um náttúruna, nýta með sjálfbærum hætti af
virðingu fyrir fegurð og lífríki. Heimila gjaldtöku til að vernda
og stýra aðgangi ferðamanna. Skynsamleg og hagkvæm
nýting náttúruauðlinda best tryggð í höndum einkaaðila. Bæta
raforkuflutningskerfi, nýta vistvæna orku og hafna því að leggja
loftlínu fyrir raforku yfir miðhálendið.
Hverfa frá áformum um olíuvinnslu, skipta jarðefnaeldsneyti
út fyrir endurnýjanlega orkugjafa. Þjóðgarða á miðhálendi
og hálendi Vestfjarða. Friðlýsa svæði sem ákvörðuð eru í
rammaáætlun og framkvæmdaáætlun náttúruminjaskrár.
Tryggja umhverfisákvæði í stjórnarskrá, náttúruauðlindir í
þjóðareign. Standa vörð um rammaáætlun.
Varlega þurfi að fara í breytingar á stjórnar-
skránni og forðast afdrifaríkar kollsteypur.
Víðtæk pólitísk sátt þurfi að vera um
breytingar. Óheillavænt væri að knýja
fram róttækar breytingar í krafti
meirihluta hverju sinni.
Vinnu sem hófst með þjóðfundinum 2010 verði lokið og
kláruð ný stjórnarskrá sem byggir á tillögum stjórnlagaráðs.
Vill halda íslensku krónunni. Vilja halda íslensku krónunni.
Hækka ellilífeyri, frítekjumark verði tekið upp, kerfið einfaldað.
Hækka eftirlaunaaldur í áföngum í 70 ár, auka sveigjanleika í
starfslokum. Heimaþjónusta efld samhliða fjölgun hjúkrunar-
rýma. Innleiða hvata til atvinnuþátttöku fólks með skerta
starfsorku með upptöku hlutabótakerfis með frítekjumarki.
Lögfesta NPA og tryggja sjálfstæði fólks með fötlun.
Hækka ellilífeyri – hann fylgi launaþróun – tryggja að enginn
sé undir fátæktarmörkum. Hækka skattleysismörk ellilífeyris,
draga úr tekjutengingu. Fjölga hjúkrunarrýmum, aldraðir fái
lifað með reisn. Byggja dvalarheimili og þjónustuíbúðir á við-
ráðanlegu verði fyrir þá sem þurfa meiri þjónustu í samstarfi
sveitarfélaga, lífeyrissjóða og ríkisins.
Mannúðarsjónarmið og skilvirkni að leiðarljósi í málefnum
hælisleitenda. Aðstoð við flóttamenn leiði til sjálfsbjargar.
Móttaka flóttafólks sjálfsögð en leggja skal áherslu á að
kerfið sé í stakk búið að taka á móti fólki. Tekið verði vel á
móti útlendingum sem hér setjast að.
Íslendingar taki á móti fleiri flóttamönnum, að
lágmarki 500 á ári. Jafna þurfi aðstæður hælisleit-
enda og svokallaðra kvótaflóttamanna og tryggja
framkvæmd nýrra útlendingalaga með fjármagni
og mannafla.
Efla listnám á öllum skólastigum, tryggja aðgang að
náttúrugripum og handritasafni, skapa samkeppnishæft
umhverfi löglegra efnisveitna, leggja niður heiðurslaun
listamanna, leggja RÚV niður í núverandi mynd, gera efni
RÚV aðgengilegt almenningi.
Efla LHÍ, menningararfinn á stafrænt form, styrkja Listasafn
Íslands, byggja Náttúruminjasafn, menningarstofnanir
sinni öllu landinu, 10 ára áætlun um stuðning við íslenskuna,
þriggja ára áætlun um eflingu listamannalauna, efla Kvik-
myndasjóð og framhaldsmenntun í tónlist færð til ríkisins.
sjálfstæðisflokkur píratar Vinstri græn