Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.2016, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.2016, Blaðsíða 26
Helgarblað 28.–31. október 20162 Ferðalok - Kynningarblað Nærgætin og persónuleg þjónusta Harpa útfararstofa Prenta sálmaskrárnar fyrir útfarir Hvíta Örkin P rentstofan Hvíta Örkin, sem er til húsa á Hótel Natura (Hótel Loftleiðum) við Reykjavíkurflugvöll, veitir almenna prentþjón- ustu af ýmsu tagi en hefur skapað sér mikla sérstöðu við hönnun og framleiðslu sálmaskráa fyrir útfarir. Hvíta örkin er þekkt fyrir afar vönd- uð vinnubrögð á þessu sviði, sem og þjónustu sem er í senn persónu- leg, nærgætin og afar sveigjanleg. „Það er misjafnt hvað fólk vill hafa mikil afskipti af hönnun sálmaskrárinnar. Sumir hafa ekki áhuga á að lesa yfir áður en prent- að er, en þá biðjum við presta eða organista að gera það. En aðrir eru nákvæmari og vilja fá að sjá hvað þeir eru að fá og þá bjóðum við fólki að koma til okkar og það sest hérna við tölvuna hjá mér á meðan ég er að brjóta um,“ segir Ögmund- ur Kristinsson, annar eigenda fyrir- tækisins. Blaðamaður hefur á orði að þetta hljómi sem mjög persónu- leg þjónusta: „Já, vissulega. Þetta eru auðvitað viðkvæmar aðstæður og oft kemur fólk hingað í sorg, eðli málsins sam- kvæmt. Við kappkostum að vinna af nærgætni og útbúum sálmaskrárnar þannig að fólk viti hvað það er að fá hjá okkur og það sjái hvernig prent- gripurinn mun líta út í kirkjunni, því oft líta hlutir öðruvísi út á tölvu- skjá en á prenti. Það er í sjálfu sér ekki gleðiefni en þó ánægjuleg stað- reynd að vegna okkar vinnubragða og viðmóts leitar fólk til okkar aftur. Það er lífsins gangur að margir þurfa á þjónustu sem þessari að halda oft- ar en einu sinni og okkur þykir vænt um að fólk treysti okkur fyrir þess- um vandasömu verkefnum á erfið- um stundum.“ Þó að Hvíta Örkin sé staðsett vestarlega í Reykjavík vinnur fyrir- tækið þessi verkefni fyrir fólk um allt land: „Við fáum mikið af verk- beiðnum utan af landi. En fólk í viðkomandi byggðarlagi hefur þá einhvern tíma séð sálmaskrá frá okkur við útför og hefur þess vegna samband þegar það þarf á þessari þjónustu að halda. Þannig hefur orðsporið breiðst út. Þegar við erum búin að tala við prestinn eða organistann á viðkomandi stað er sálmaskráin lesin yfir og við send- um pdf-skjal á milli. Af því að við erum við Reykjavíkurflugvöll send- um við þetta stundum með flugi eða, sem er algengara, að einhver aðstandandi sem ætlar að vera við útförina, kemur við og tekur sálma- skrána,“ segir Ögmundur. Þegar sálmaskrár eru prentaðar vegna útfara á höfuðborgarsvæð- inu sjá starfsmenn Hvítu Arkarinn- ar hins vegar sjálfir um að koma efninu til viðkomandi útfararstofu til að tryggja að það lendi ekki í rangri kirkju. Ögmundur mælir með því að fólk sé tímanlega í að panta prentun sálmaskrár. „Við gerum okkur grein fyrir því að þessi verk eru oft með seinni skipunum. Í dag er til dæmis útför klukkan 13 sem við gerðum sálma- skrá fyrir í morgun af því að hún var ekki tilbúin fyrr. Við erum yfir- leitt alltaf síðastir í röðinni, fólk er seint til vegna þess að það þarf að huga að svo mörgu við undir- búning útfararinnar. Við björgum alltaf öllu og stökkvum til hingað á kvöldin eða um helgar ef þarf.“ Prentsmiðjan var áður í eigu Flugleiða (sem síðar varð Icelanda- ir) en núverandi eigendur keyptu hana árið 1993. Prentsmiðjan vinn- ur mikið fyrir Icelandair og heldur netfanginu prentstofan@iceland- air.is. Eigendur eru tveir, Ögmund- ur Kristinsson og Hjalti Valur Helgason. Auk þeirra starfa á stof- unni Jón Arason og Ólafur Berg- mann. Sem fyrr segir er Hvíta Örk- in staðsett á Hótel Loftleiðum við Reykjavíkurflugvöll og aðgengi að stofunni er gott. n Heimasíða er www.hvitaorkin.is og símanúmer: 551-0255. É g var búin að horfa á þetta starf úr fjarska í tíu ár áður en ég gerðist útfararstjóri. Mér þótti þetta vera virðulegt og fallegt starf. Ég efast um að nokkuð hafi komið mér á óvart. Þetta er vissulega erfitt og krefjandi – en get- ur líka verið afar gefandi.“ Þetta segir Harpa Heimisdóttir, eigandi Hörpu útfararstofu, Kirkjulundi 19, Garða- bæ. Stofan var stofnuð árið 2014 og er eina útfararstofan í Garða- bæ. Harpa þjónar öllu höfuðborgar- svæðinu ásamt nærsveitum ef þess er óskað. Harpa er eini starfsmaður stof- unnar í fullu starfi en auk þess nýtur hún aðstoðar þegar á þarf að halda. Blaðamaður verður þess áskynja að Harpa hefur fundið sinn rétta stað í tilverunni, ef svo má að orði kom- ast, með því að gerast útfararstjóri, og hún starfar af hugsjón. Starfið er vandasamt því ekki er rúm fyr- ir mistök. „Þetta er afar viðkvæm þjónusta þar sem ekkert má fara úr- skeiðis. Þegar andlát ber að hönd- um verð ég með vissum hætti hluti af hinni syrgjandi fjölskyldu sem kem- ur saman og ræður ráðum sínum, í gegnum kistulagninguna og útför- ina,“ segir Harpa, en traust og nær- gætni eru meðal lykil þátta í starfinu: „Fólk verður að geta treyst manni og maður tengist því persónulegum böndum. Besta staðfestingin á því að maður sé að gera rétt finnst mér vera þegar fólk leitar til mín aftur um útfararþjónustu.“ Harpa útfararstofa notar meðal annars vistvænar líkkistur sem smíð- aðar eru hérlendis og hannaðar af ís- lenska líkkistusmiðnum Þorsteini B. Jónmundssyni. Þær þykja fallegar, eru ekki málaðar heldur fær viður- inn að njóta sín. Þess má geta að Harpa útfararstofa gefur alla vinnu þegar um fósturlát og lát ungbarna er að ræða. n Ítarlegar og aðgengilegar upplýs- ingar um þjónustuna er að finna á heimasíðunni harpautfor.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.