Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.2016, Síða 26
Helgarblað 28.–31. október 20162 Ferðalok - Kynningarblað
Nærgætin og persónuleg þjónusta
Harpa útfararstofa
Prenta sálmaskrárnar fyrir útfarir
Hvíta Örkin
P
rentstofan Hvíta Örkin,
sem er til húsa á Hótel
Natura (Hótel Loftleiðum)
við Reykjavíkurflugvöll,
veitir almenna prentþjón-
ustu af ýmsu tagi en hefur skapað
sér mikla sérstöðu við hönnun og
framleiðslu sálmaskráa fyrir útfarir.
Hvíta örkin er þekkt fyrir afar vönd-
uð vinnubrögð á þessu sviði, sem
og þjónustu sem er í senn persónu-
leg, nærgætin og afar sveigjanleg.
„Það er misjafnt hvað fólk vill
hafa mikil afskipti af hönnun
sálmaskrárinnar. Sumir hafa ekki
áhuga á að lesa yfir áður en prent-
að er, en þá biðjum við presta eða
organista að gera það. En aðrir eru
nákvæmari og vilja fá að sjá hvað
þeir eru að fá og þá bjóðum við
fólki að koma til okkar og það sest
hérna við tölvuna hjá mér á meðan
ég er að brjóta um,“ segir Ögmund-
ur Kristinsson, annar eigenda fyrir-
tækisins. Blaðamaður hefur á orði
að þetta hljómi sem mjög persónu-
leg þjónusta:
„Já, vissulega. Þetta eru auðvitað
viðkvæmar aðstæður og oft kemur
fólk hingað í sorg, eðli málsins sam-
kvæmt. Við kappkostum að vinna af
nærgætni og útbúum sálmaskrárnar
þannig að fólk viti hvað það er að fá
hjá okkur og það sjái hvernig prent-
gripurinn mun líta út í kirkjunni,
því oft líta hlutir öðruvísi út á tölvu-
skjá en á prenti. Það er í sjálfu sér
ekki gleðiefni en þó ánægjuleg stað-
reynd að vegna okkar vinnubragða
og viðmóts leitar fólk til okkar aftur.
Það er lífsins gangur að margir þurfa
á þjónustu sem þessari að halda oft-
ar en einu sinni og okkur þykir vænt
um að fólk treysti okkur fyrir þess-
um vandasömu verkefnum á erfið-
um stundum.“
Þó að Hvíta Örkin sé staðsett
vestarlega í Reykjavík vinnur fyrir-
tækið þessi verkefni fyrir fólk um
allt land: „Við fáum mikið af verk-
beiðnum utan af landi. En fólk í
viðkomandi byggðarlagi hefur þá
einhvern tíma séð sálmaskrá frá
okkur við útför og hefur þess vegna
samband þegar það þarf á þessari
þjónustu að halda. Þannig hefur
orðsporið breiðst út. Þegar við
erum búin að tala við prestinn eða
organistann á viðkomandi stað er
sálmaskráin lesin yfir og við send-
um pdf-skjal á milli. Af því að við
erum við Reykjavíkurflugvöll send-
um við þetta stundum með flugi
eða, sem er algengara, að einhver
aðstandandi sem ætlar að vera við
útförina, kemur við og tekur sálma-
skrána,“ segir Ögmundur.
Þegar sálmaskrár eru prentaðar
vegna útfara á höfuðborgarsvæð-
inu sjá starfsmenn Hvítu Arkarinn-
ar hins vegar sjálfir um að koma
efninu til viðkomandi útfararstofu
til að tryggja að það lendi ekki í
rangri kirkju.
Ögmundur mælir með því
að fólk sé tímanlega í að panta
prentun sálmaskrár.
„Við gerum okkur grein fyrir því
að þessi verk eru oft með seinni
skipunum. Í dag er til dæmis útför
klukkan 13 sem við gerðum sálma-
skrá fyrir í morgun af því að hún
var ekki tilbúin fyrr. Við erum yfir-
leitt alltaf síðastir í röðinni, fólk
er seint til vegna þess að það þarf
að huga að svo mörgu við undir-
búning útfararinnar. Við björgum
alltaf öllu og stökkvum til hingað á
kvöldin eða um helgar ef þarf.“
Prentsmiðjan var áður í eigu
Flugleiða (sem síðar varð Icelanda-
ir) en núverandi eigendur keyptu
hana árið 1993. Prentsmiðjan vinn-
ur mikið fyrir Icelandair og heldur
netfanginu prentstofan@iceland-
air.is. Eigendur eru tveir, Ögmund-
ur Kristinsson og Hjalti Valur
Helgason. Auk þeirra starfa á stof-
unni Jón Arason og Ólafur Berg-
mann. Sem fyrr segir er Hvíta Örk-
in staðsett á Hótel Loftleiðum við
Reykjavíkurflugvöll og aðgengi að
stofunni er gott. n
Heimasíða er www.hvitaorkin.is
og símanúmer: 551-0255.
É
g var búin að horfa á þetta starf
úr fjarska í tíu ár áður en ég
gerðist útfararstjóri. Mér þótti
þetta vera virðulegt og fallegt
starf. Ég efast um að nokkuð
hafi komið mér á óvart. Þetta er
vissulega erfitt og krefjandi – en get-
ur líka verið afar gefandi.“ Þetta segir
Harpa Heimisdóttir, eigandi Hörpu
útfararstofu, Kirkjulundi 19, Garða-
bæ. Stofan var stofnuð árið 2014
og er eina útfararstofan í Garða-
bæ. Harpa þjónar öllu höfuðborgar-
svæðinu ásamt nærsveitum ef þess
er óskað.
Harpa er eini starfsmaður stof-
unnar í fullu starfi en auk þess nýtur
hún aðstoðar þegar á þarf að halda.
Blaðamaður verður þess áskynja að
Harpa hefur fundið sinn rétta stað
í tilverunni, ef svo má að orði kom-
ast, með því að gerast útfararstjóri,
og hún starfar af hugsjón. Starfið
er vandasamt því ekki er rúm fyr-
ir mistök. „Þetta er afar viðkvæm
þjónusta þar sem ekkert má fara úr-
skeiðis. Þegar andlát ber að hönd-
um verð ég með vissum hætti hluti af
hinni syrgjandi fjölskyldu sem kem-
ur saman og ræður ráðum sínum, í
gegnum kistulagninguna og útför-
ina,“ segir Harpa, en traust og nær-
gætni eru meðal lykil þátta í starfinu:
„Fólk verður að geta treyst manni
og maður tengist því persónulegum
böndum. Besta staðfestingin á því
að maður sé að gera rétt finnst mér
vera þegar fólk leitar til mín aftur um
útfararþjónustu.“
Harpa útfararstofa notar meðal
annars vistvænar líkkistur sem smíð-
aðar eru hérlendis og hannaðar af ís-
lenska líkkistusmiðnum Þorsteini B.
Jónmundssyni. Þær þykja fallegar,
eru ekki málaðar heldur fær viður-
inn að njóta sín.
Þess má geta að Harpa útfararstofa
gefur alla vinnu þegar um fósturlát og
lát ungbarna er að ræða. n
Ítarlegar og aðgengilegar upplýs-
ingar um þjónustuna er að finna á
heimasíðunni harpautfor.is