Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.2016, Blaðsíða 46
Helgarblað 28.–31. október 201638 Menning
Sumargjöfin í ár!
Þráðlausu Touch heyrnartólin á Hópkaup.is.
Hægt að tengja við síma, ipad og öll bluetooth tæki.
Einnig er hægt að svara í símann með þeim.
Fæst á www.mytouch.rocks
A
ð lifa af ritstörfum á Íslandi
er hægara sagt en gert,
bókamarkaðurinn er lítill
og ekki að því gengið að ná
alþjóðlegri hylli. Líklega er
hægt að telja þá íslensku rithöfunda
sem geta lifað af bóksölunni einni
saman á fingrum annarrar handar.
Íslenskt samfélag greiðir nokkrum
vel völdum höfundum verkefnastyrki,
svokölluð listamannalaun, til að
vinna að bókum sínum. Launin eru
hins vegar hvorki há né líklegt að út-
hlutunin nægi til að höfundur nái að
klára heila bók á tímanum. Þá heyrir
það til algjörra undantekninga að
höfundar undir þrítugu eða nýir rit-
höfundar fái slíka styrki. Á meðan rit-
höfundar gefa út sín fyrstu verk þurfa
þeir langflestir að þreyja þorrann með
ýmsum hliðar- og aukastörfum.
DV fékk nokkra rithöfunda til að
segja frá störfunum sem þeir hafa
unnið til að eiga fyrir blýöntum og
skrifblokkum. n
Raunveruleikinn á
bak við skáldskapinn
n Hvað hafa rithöfundarnir gert til að lifa af? n Uppvask, kökubakstur og næturvarsla
Kristján Guðjónsson
kristjan@dv.is
Námslán til að
ná endum saman
Í
fyrra var ég svo lánsöm að fá í
fyrsta sinn úthlutað starfslaun-
um rithöfunda í heilt ár, og aftur
í ár, og það er dálítið skrítin til-
finning, sem ég hef ekki enn vanist,
að geta gengið að fastri upphæð
vísri um hver mánaðamót þótt ekki
sé hún ýkja há, í kringum 270.000
að öllu frádregnu. En munar vitan-
lega miklu þegar ágæt sala á skáld-
sögu, 2.000 eintök, skilar manni
um milljón eftir tveggja til þriggja
ára vinnu.
Ég vann sem blaðamaður frá
því að menntaskóla lauk og síðar
við fréttir og dagskrárgerð í út-
varpi og var í fullri vinnu við það á
meðan ég skrifaði fyrstu bækurn-
ar mínar fyrir aldarfjórðungi.
Þegar ég fékk síðan úthlutun úr
sjóðnum í sex mánuði fylgdi sú
kvöð að ekki má gegna fullu starfi á
meðan og þá vann ég um nokkurt
skeið á fréttastofu Bylgjunnar og
Stöðvar 2 í sex mánuði en fékk svo
að fara heim að skrifa þegar mér
hlotnuðust starfslaun í aðra sex.
Um aldamótin sleppti ég takinu
á fastráðningunni en það rann
fljótt upp fyrir mér að fleira þurfti
að koma til á móti sex mánaða
starfslaunum. Var þess utan ein-
stæð móðir tveggja barna og stóð
í íbúðarkaupum, svo ég leysti af í
Vilborg Davíðsdóttir