Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.2016, Blaðsíða 12
Helgarblað 28.–31. október 201612 Kosningaumfjöllun
Íslendingar ganga að kjörborðinu á morgun, laugar-
dag, og kjósa fulltrúa sína til Alþingis. Úr nægu er
að velja fyrir kjósendur en níu stjórnmálahreyfingar
bjóða fram í öllum kjördæmum landsins. Auk þess
bjóða þrjár aðrar hreyfingar fram í færri kjördæm-
um. DV leitaði til allra framboðanna og bauð þeim
að reyna eftir megni að sannfæra kjósendur um að
veita þeim atkvæði sín. Þetta eru þær áherslur.
Þess vegna ættir þú að kjósa þetta fólk
Forgangsmál að koma
á þjóðpeningakerfi
Júlíus Valdimarsson, formaður Húmanistaflokksins og frambjóðandi í Reykjavík suður
Með Þjóðpeningakerfinu er tekið af bönkunum valdið sem þeir hafa til að prenta rafræna peninga úr engu þ.e. langt út fyrir þau innlán sem þeim berast, sem gerði þeim mögulegt að tífalda bankakerfið og mynda efna
hagsbólu sem sprakk í október árið 2008 með alþekktum afleiðingum.
Þjóðpeningakerfið flytur peningaprentun alfarið til Seðlabanka Íslands
undir lýðræðislega stjórn. Peningastefnunefnd ákvarðar síðan það peninga
magn sem setja þarf í umferð hverju sinni eftir efnahagslegum forsendum og
verðbólgumarkmiðum. Þetta hindrar bólumyndun eins og gerist í núverandi
kerfi og nánast útilokar efnahagshrun á borð við það sem átti sér stað 2008.
Framtíðarsýn Húmanistaflokksins er vaxtalaust fjármálakerfi. Hættum
að láta einkabanka ræna okkur og senda ígildi helmings fjárlaga ár hvert að
ástæðulausu upp til hinna forríku eigenda bankanna. Notum þessa peninga í
þágu samfélagsins. Þetta er manngert kerfi og er því hægt að afnema af mönn
um. Við höfum óbilandi trú á manneskjunni og þeim ómældu hæfileikum
sem í öllum búa. Með samstöðu getum við búið til það mennska þjóðfélag
sem flest okkar dreymir um.
Húmanistaflokkurinn býður núna aðeins fram í Reykjavíkurkjördæmi
suður. Ef ykkur sem búið þar líkar málstaður okkar, setjið þá X við H, og hver veit hvað skeður?“
Samfylkingin fyrir
heilbrigðara samfélag
Oddný Harðardóttir formaður Samfylkingarinnar og oddviti í Suðurkjördæmi
Við viljum skapa samfélag þar við njótum öll sömu tækifæra til að mennta okkur og koma þaki yfir höfuðið. Réttlátt samfélag þar sem auðlindir gagnast öllum, veikir fá ókeypis þjónustu og aldraðir lifa góðu lífi. Samfélag þar sem fólk hjálpast að og stendur saman.
Samfylkingin ætlar að fjárfesta í heilbrigðisþjónustunni, stíga örugg skref í átt að gjaldfrjálsri heilbrigðisþjón
ustu og sækja arðinn af auðlindunum með útboði á aflaheimildum. Við ætlum að setja framsækna atvinnustefnu og
hætta að gefa ferðamönnum afslátt af neyslusköttum. Við ætlum að sýna öldruðum sóma og hækka lífeyri í 300 þús
und krónur á mánuði að lágmarki. Bæta kjör öryrkja, tækifæri þeirra og þjónustu. Við ætlum fjölga leiguíbúðum og
sýna samstöðu með ungu fólki við að koma sér þaki yfir höfuðið og með barnafjölskyldum. Við vitum hvernig skal
fjármagna öll þessi verkefni og við höfum efni á þeim.
Það er mikilvægt að kjósa Samfylkinguna, alvöru jafnaðarmannaflokk og kjölfestu sem hefur reynslu, þekkingu
og þor til að takast á við framtíðina. Afl sem tekur jafnrétti kynjanna alvarlega og sýnir það í verki. Fólk sem vinnur
gegn spillingu og frændhygli. Flokk sem hefur jöfnuð og sanngirni að leiðarljósi í öllu sínu starfi.
Við erum með hjartað á réttum stað. Kjósum heilbrigðara samfélag. Kjósum Samfylkinguna.“
Dögun vill réttlátt
samfélag
Helga Þórðardóttir, formaður
Dögunar og oddviti í Reykjavík suður
Frambjóðendur Dögunar eru venjulegt fólk, bændur, sjómenn, kennarar, nemendur, læknar og
lífeyrisþegar. Allt frambjóðendur sem
vilja réttlátara samfélag. Það er hins
vegar enginn fulltrúi skattaskjóla eða
kúlulánþegi líkt og sumir aðrir flokkar
bjóða almenningi upp á að kjósa.
Dögun vill þjóna almannahags
munum en ekki sérhagsmunum. Til
þess þarf ákveðið fólk með skýrar
lausnamiðaðar leiðir. Við ætlum að
afnema fátækt með öllum ráðum. Við
viljum stofna samfélagsbanka – til að
láta af bankaokrinu. Við viljum að fólk geti flutt að heiman fyrir fertugt
og sé búið að greiða íverustaðinn áður en farið er á eftirlaun. Við viljum
frjálsar krókaveiðar – til þess að standa vörð um sjávarbyggðirnar. Við
viljum efla innviði samfélagsins, vegi, gagnaflutninga, menntun og heil
brigðisstofnanir. Við viljum berjast fyrir jafnrétti, því allir eiga rétt á jöfn
um tækifærum og við viljum taka vel á móti fólki. Við vitum að náttúru
vernd skilar hamingju og oftast fjárhagslegum ágóða einstaklinga og
fyrirtækja. Við viljum engin leyndarmál og að 10% kjósenda geti farið
fram á þjóðaratkvæðagreiðslu.
Ég trúi því að flest okkar viljum sjá raunverulegar breytingar á ríkj
andi ástandi. Ég veit að í Dögun er dugmikið baráttufólkfólk. Við erum
ekki fullkomin en við ætlum. Ég er tilbúin að vinna samviskusamlega
fyrir fólkið í landinu.“
Tækifærin blasa við
Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokki og oddviti í Suðvesturkjördæmi
Sjálfstæðisflokkurinn vill halda áfram á réttri leið, með bættum lífskjörum og fjölbreyttari tækifærum. Við ætlum að tryggja stöðugleika, halda áfram að lækka skatta, auka
kaupmátt, hlúa vel að heilbrigðiskerfinu og styrkja innviðina.
Við viljum hjálpa ungu fólki að mennta sig og koma þaki yfir
höfuðið með námsstyrkjum og skattafslætti.
Framlög til heilbrigðismála hafa aldrei verið hærri og með
nýju greiðsluþátttökukerfi í heilbrigðisþjónustu verður kostn
aður sjúklinga lækkaður verulega.
Bætur almannatrygginga til aldraðra og öryrkja hafa hækkað
og kerfinu gjörbreytt, það einfaldað og gert réttlátara. Um leið
höfum við lækkað skatta. Einstaklingur með 350.000 krónur í
laun fær 100.000 krónum meira í vasann vegna skattalækkana
og sá sem er með 500.000 krónur um 160.000 krónum meira.
Íslendingar greiða nú rúmlega 13 milljörðum minna í vöru
gjöld og tolla. Með afnámi þeirra hefur verslun á Íslandi verið
gerð samkeppnishæf og vöruverð lækkað. Verðbólga er lítil, atvinnuleysi hefur ekki verið lægra í áraraðir og kaup
máttur launa hefur aldrei verið meiri. Eignastaða heimilanna er gjörbreytt og hefur ekki verið betri á þessari öld.
Haftaafnám er langt komið, sem mun auka möguleika okkar til vaxtar. Við réðumst í kerfisbreytingar með
styttingu framhaldsskólans og stóðum fyrir mestu réttarfarsbótum í áratugi með stofnun millidómstigs. Þannig er
lengi hægt að telja, en með stuðningi þínum getum við haldið áfram á réttri leið.“
Af hverju að
kjósa Viðreisn?
Þorsteinn Víglundsson, oddviti Viðreisnar í Reykjavík norður
Viðreisn er frjálslynt afl sem vill stuðla að því að lífskjör verði samkeppnishæf hér á landi á við það sem best gerist í nágrannalöndum okkar. Miklar sveiflur á gengi krónunnar og léleg hag
stjórn hafa í gegnum tíðina valdið hér mun meiri verðbólgu og hærra
vaxtastigi en þekkist á hinum Norðurlöndunum. Húsnæðisvextir síðast
liðin 15 ár eru að jafnaði 7% hærri hér með tilheyrandi kostnaði fyrir
húsnæðiskaupendur. Á þessu vill Viðreisn ráða bót og hefur lagt fram ít
arlega og raunhæfa leið, svonefnt Myntráð, til að ná þeim markmiðum.
Væri vaxtamunur við nágrannalönd okkar 3% lægri en nú er myndi það
samsvara 80 þúsund króna launahækkun á mánuði fyrir fjölskyldu eða
einstakling með 20 milljóna króna húsnæðislán. Það er mikil og varan
leg kjarabót fyrir heimilin.
Viðreisn hefur einnig talað fyrir markaðsleið í sjávarútvegi, endur
skoðun búvörusamninga, einföldun skattkerfis, lögbindingu jafnlauna
vottunar til að útrýma kynbundnum launamun og mannúðlegri inn
flytjendastefnu.
Við erum þreytt á því hvernig stjórnmálin hafa sveiflast öfganna á milli
á undanförnum árum, frá vinstri stjórn til hægri stjórnar. Stjórnmála
flokkar hafa grafið sér pólitískar skotgrafir og deilur og átök virðast orðin
sjálfstæð markmið, en ekki að leita lausna á þeim mikilvægu málefnum
sem brenna á þjóðinni hverju sinni. Viðreisn ætlar að horfa til lausna og
þess sem sameinar okkur en ekki festast í rifrildi og ágreiningi.“