Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.2016, Page 15
Helgarblað 28.–31. október 2016 Kosningaumfjöllun 15
KosningaKompásinn
n Hvað boða flokkarnir í kosningunum? n Hver er stefna þeirra í helstu málaflokkum? n Berðu saman hvað þeir ætla að gera í þeim málefnum sem þér þykja mikilvæg
Hafna aðild að ESB. Hefja viðræður við Breta um áframhaldandi
viðskiptasamband í kjölfar Brexit. Endurskoða Schengen-samstarfið.
Ísland verði virkt í stefnumótun fyrir norðurslóðir. Áhersla á að
öryggi lands og þjóðar sé tryggt. Áfram í NATO. Að framlög Íslands til
þróunarsamvinnu endurspegli markmið SÞ.
Vill þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhald aðildarviðræðna við ESB.
Flokkurinn vill halda viðræðum áfram og bera aðildarsamning undir
þjóðina. Telur að aðild fylgi margir kostir sem styrki stöðu Íslands og
efli hagsæld.
Skattkerfisbreytingar. Lækka tekjuskattsprósentu á einstaklinga
með lágar og millitekjur í 25%, tekjutengja persónufrádrátt þannig
að hann falli niður þegar ákveðnum tekjum er náð. Vaxtabætur falli
niður í núverandi mynd en sparnaði verði beint til lágtekjuhópa með
útborganlegum persónuafslætti. Taka upp einstaklingsframtöl og
hætta samsköttun hjóna.
Endurskoða skattkerfið, einfalda og auka skilvirkni þess, fækka
undanþágum og íþyngjandi reglum. Auðvelda einstaklingum og fyrir-
tækjum að fara að reglum.
Vill sjálfbæra nýtingu auðlindarinnar, hún skili arði til þjóðarinnar
og treysti atvinnu og byggð um land allt. Vill að sveitarfélög hafi
forkaupsrétt á aflahlutdeild sem selja á úr sveitarfélagi. Vill styðja
við uppbyggingu fiskeldis og rannsókna á fiskeldi og vanda til verka.
Lögsetja fyrirkomulag strandsvæðaskipulags.
Tryggja sátt um sjávarútveg-
inn til framtíðar. Í stað veiði-
leyfagjalds verði ákveðinn hluti kvótans settur
á markað á ári hverju til að fá sanngjarnt markaðstengt afgjald fyrir
aðgang að auðlindinni. Hvetji til hagræðingar og hámarki arðsemi til
lengri tíma og opni leið fyrir nýliðun.
Leggur áherslu á að efla innlenda matvælaframleiðslu, auka innlenda
neyslu og auka útflutning. Vill hvetja til nýsköpunar og tryggja að regluverk
hamli henni ekki. Tryggja fjölskylduvænan landbúnað og nýliðun í greininni.
Fagna nýsamþykktum búvörusamningum. Vilja auka milliríkjaviðskipti með
landbúnaðarvörur. Tollvernd verði önnur tveggja meginstoða í stuðningi
yfirvalda við landbúnað. Einhliða niðurfelling tolla kemur ekki til greina.
Lúti sömu lögmálum almennrar samkeppni og sömu lögum og annar
atvinnurekstur. Breyta þurfi stuðningi við bændur svo hann auki
hagræðingu, framleiðniaukningu og nýsköpun. Frelsi fyrir bændur til
að vinna og markaðssetja afurðir sínar sjálfir. Hætta framleiðslu- og
sölustýringu ríkisvaldsins. Afnema tolla og innflutningshöft á land-
búnaðarvörur í áföngum.
Fjölga störfum, sérstaklega sérfræðistörfum. Ríkið skapi hagstæða
umgjörð. Einfalda skattkerfið og regluverk atvinnurekstrar.
Lækka tryggingargjaldið. Efla nýsköpun á öllum sviðum með
skattaívilnunum. Styðja vöxt ferðaþjónustunnar með komugjöldim til
uppbyggingar innviða. Landsbankinn verði áfram í eigu þjóðarinnar.
Endurskoða þurfi peningastefnuna.
Leggja áherslu á samkeppni, sjálfbærni og nýsköpun. Stjórnvöld búi
fyrirtækjum hagstæð rekstrarskilyrði og dragi úr efnahagssveiflum.
Ríkisafskipti af atvinnuvegum verði í lágmarki. Hámarka arðsemi
ferðaþjónustu, efla tekjulindir sveitarfélaga af ferðaþjónustu og auð-
velda uppbyggingu innviða. Bílastæðagjald við ferðamannastaði.
Talar fyrir öryggi í húsnæðismálum. Fyrsta fasteign, úrræði núverandi
ríkisstjórnarinnar, sé rökrétt framhald leiðréttingarinnar. Tryggja þurfi
aukið framboð íbúðarhúsnæðis með fleiri lóðum og einfaldari reglum
um byggingu húsnæðis.
Varanleg vaxtalækkun stærsta hagsmunamál kaupenda og leigjenda
húsnæðis. Tryggt með myntráði. Skattfrjáls sparnaðarleið til fyrstu
kaupenda og áfram hægt að ráðstafa séreignarsparnaði til íbúðar-
kaupa. Endurskoða vaxtabótakerfið svo það styðji betur við fyrstu
íbúðarkaup, stuðningur verði í formi eingreiðslu. Auka framboð á hús-
næði, draga úr byggingarkostnaði, endurskoða byggingarreglugerðir.
Vill byggja nýjan Landspítala á nýjum stað og að framlög til
heilbrigðis stofnana um allt land verði aukin. Heilsugæslan efld og
biðtími styttur með fjölgun heimilislækna og sálfræðinga. Greiðslu-
þátttaka lækkuð og forvarnir auknar til að bæta lýðheilsu.
Ljúka byggingu Landspítala við Hringbraut fyrir 2022. Styrkja
heilsugæslu um allt land. Stytta biðlista. Áhersla á meðhöndlun geð-
rænna vandamála og forvarna. Bætt aðgengi að sálfræðiþjónustu sem
fari í skrefum inn í tryggingakerfið. Greiðsluþátttaka sjúklinga miðist
við hverja fjölskyldu, taki mið af greiðslugetu allra samfélagshópa.
Auðlindaákvæði verði sett í stjórnarskrá, landsmönnum tryggður sann-
gjarn arður. Lögfesta hvað flokkast sem auðlind og hverjar þeirra skuli
vera í þjóðareign. Uppbygging innviða. Koma í veg fyrir átroðning
á viðkvæmri náttúru landsins. Sporna við sóun. Draga úr
plastnotkun. Fylgja sóknaráætlun í loftlagsmálum. Auka
skógrækt, landgræðslu o.fl.
Ríki móti heildstæða auðlindastefnu til langs tíma þar sem um-
hverfisvernd, heildarhagsmunir samfélags, hagsmunir sveitar-
félaga, fjárfesting í innviðum og hagsmunir komandi kynslóða
eru í forgrunni.
Hlynntur endurskoðun á stjórnarskrá, fagnar
framkominni tillögu um breytingar í vinnu stjórnar-
skrárnefndar.
Ljúka þarf endurskoðun stjórnarskrárinnar með víð-
tækri sátt til að efla beint lýðræði svo almenningur
geti komið að ákvörðunum um mikilvæg málefni.
Lítur á krónuna sem framtíðargjaldmiðil Íslands. Mikilvægt sé
að treysta umgjörð hennar og stöðugleika.
Vill taka upp myntráð í stað núverandi peningastefnu. Það
skapi varanlegan gengisstöðugleika. Myntráð felur í sér að festa
gengi krónunnar við gengi annars gjaldmiðils.
Lágmarkslífeyrir verði 300 þúsund krónur á mánuði og fylgi lágmarks-
launum á almennum vinnumarkaði. Lokið verði við heildarendur-
skoðun almannatrygginga. Tannlækningar aldraðra verði gjaldfrjálsar
og hjúkrunarrýmum fjölgað um allt land.
Lífeyriskerfi almannatrygginga einfaldað, dregið úr skerðingu vegna
annarra tekna. Enginn lífeyrisþegi fái minna en sem nemur lágmarks-
launum. Umbætur á vinnumarkaði til að bregðast við hækkandi eftir-
launaaldri, opna á möguleika á að hefja töku lífeyris almannatrygginga
samhliða hlutastarfi. Bæta aðgengi fyrir hreyfihamlaða. Nýstaðfestum
samningi SÞ um réttindi fatlaðs fólks verði fylgt eftir með lögum.
Íslendingar þurfi að sýna ábyrgð við móttöku flóttafólks. Mikilvægt
af mannúðarástæðum að flýta málsmeðferð og lokaniðurstöðum í
málefnum hælisleitenda. Fjölbreyttur bakgrunnur fólks leiði til betri
og samkeppnishæfari vinnumarkaðar, framþróun atvinnulífs og betri
árangri fyrir samfélagið.
Taka á málum flóttafólks og hælisleitenda af mannúð og samkennd.
Stytta málsmeðferðartíma og auðvelda þeim sem hingað flytja að
verða virkir samfélagsþegnar og laga sig að nýjum heimkynnum með
námi og vinnu.
Fjölga menningarsamningum og styðja starf utan höfuðborgarsvæðis,
efla Kvikmyndasjóð og greiða götur erlendra kvikmyndaframleiðenda,
tryggja lykilsöfnum og Náttúruminjasafni góða aðstöðu, útvarpsgjald
renni til RÚV, aðgerðir til að tryggja íslensku í stafrænum heimi.
Styrkja umgjörð listháskólanáms, efla samkeppnissjóði, styrkja
stjórnsýslu skapandi greina, löggjöf um höfundarrétt í samræmi við
tækniþróun, skattleggja höfundarréttartekjur líkt og fjármagnstekjur,
opinberar stofnanir greiði listamönnum fyrir vinnu, styðja verkefni
tengd íslensku í stafrænum heimi.
Framsóknarflokkur Viðreisn
Vill klára aðildarsamning við ESB og leggja hann í dóm þjóðarinnar að
undangenginni upplýstri umræðu. Íslendingar verði málsvarar mann-
réttinda, jafnréttis og friðar á alþjóðavísu og leggi sitt af mörkum til
friðar í heiminum með þátttöku í þróunarsamvinnu, hjálparstarfi og
friðarumleitunum, en taki ekki þátt í hernaði.
Einfalda þarf skattkerfið og gera það réttlátt og skiljanlegt fyrir
almenning. Skattkerfið ætti að hvetja til innlendrar verslunar, nýsköp-
unar og vistvænnar atvinnustarfsemi.
Vill byggja á aflamarkskerfi en nýta mark-
aðinn til að sjávarútvegurinn greiði sann-
gjarnt gjald fyrir aðgengi að auðlindinni.
Nýting sjávarauðlinda verði ætíð í jafnvægi og
ekki verði gengið á rétt komandi kynslóða til
að njóta sömu gæða.
Vill opna á frekari inn- og útflutning á landbúnaðarvörum og auka
samkeppni. Skjóta frekari forsendum undir byggð í sveitum með
fjölbreyttari starfsemi en hefðbundnum landbúnaði. Úthluta á toll-
kvótum á sanngjarnan hátt.
Vill auka fjölbreytni í atvinnulífinu með aukinni fjárfestingu eða
annars konar hvatningu og aukinni rannsóknar- og þróunarstarfsemi.
Rekstri lítilla og meðalstórra fyrirtækja verði gert hærra
undir höfði með einfaldara regluverki, skattaum-
gjörð og hvötum sem efla rekstur þeirra.
Koma þarf á húsnæðislánamarkaði
með lágum raunvöxtum til langs
tíma. Það verður best gert með
stöðugum gjaldmiðli. Fjölga þarf
leiðum til að fólk geti komið sér þaki
yfir höfuðið, bæði í séreign og leigu.
Allir hafi jafnan aðgang að heilbrigðis-
kerfinu, hvar á landi sem er, í gegnum
sameiginlegt sjúkratryggingakerfi. Auka þarf
við forvarnir. Tannheilbrigði falli í auknum mæli
undir sjúkratryggingakerfið.
Endurvinnsla verði aukin, sem og vistvænir lífshættir almennt. Meðal
annars verði lög áhersla á notkun vistvænna orkugjafa. Farið verði
eftir rammaáætlun um vernd og nýtingu náttúrusvæða. Átak verði
gert í vernd og uppbyggingu þjóðgarða og friðlanda.
Vill setja nýja stjórnarskrá á grunni tillagna stjórnalagaráðs. Þó þarf
að bregðast við málefnalegum athugasemdum. Gefa þarf þjóðinni
tíma til að kynna sér tillögurnar vel.
Vill að stjórnvöld móti sér stefnu til framtíðar í gjaldmiðilsmálum.
Koma þarf á jafnvægi með stöðugum gjaldmiðli. Flokkurinn tekur ekki
afstöðu til þess hvaða gjaldmiðill það gæti verið.
Einfalda ætti lífeyriskerfið og samræma opinbera og almenna kerfið.
Samspil almannatrygginga og lífeyrissjóða skoðað með það að
markmiði að það virki sem best fyrir fólk. Eldri borgarar geti notið
þjónustu í því byggðarlagi sem þeir kjósa og þeim bjóðist fjölbreyttir
og hagkvæmir búsetukostir.
Íslendingar taki vel á móti flóttamönnum og sinni málefnum innflytj-
enda af stakri prýði.
Efla listakennslu á öllum skólastigum, lækka skatta á menningar-
starfsemi (m.a. bækur), stórauka fjárveitingar til skapandi greina, efla
samkeppnissjóði, leysa húsnæðismál LHÍ.
Björt framtíð
Athuga ber að úttektin er í mörgum tilfellum ekki tæmandi. Í einhverjum tilfella er ítarlegri útlistun á tilteknum stefnumálum að finna á vefsíðum flokkanna. Hér er það helsta tekið, orðagjálfur klippt burt og reynt að leggja fram hnitmiðaða
samantekt. Í þeim tilfellum þar sem upplýsingar var ekki að finna um tiltekinn málaflokk, er þess getið. mikael@dv.is / freyr@dv.is / kristjan@dv.is