Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.2016, Qupperneq 20
Helgarblað 28.–31. október 201620 Hrekkjavaka - Kynning
Hér færðu allt fyrir
hrekkjavökuna
Partýbúðin, Faxafeni 11
H
rekkjavakan verður sífellt
vinsælli á Íslandi og við
leggjum upp úr því að vera
með allt fyrir hana. Hinn
eiginlegi hrekkjavöku
dagur er 31. október, sem ber upp
á mánudaginn, en Íslendingar eru
vanir að halda upp á hrekkjavökuna
frá miðjum október og eitthvað inn
í nóvember. Nær vakan hámarki
síðustu helgina í mánuðinum. Hér
verður opið á föstudeginum til kl.
21 og á laugardeginum frá 11 til 20.“
Þetta segir Halla Ýr Albertsdótt
ir, rekstrarstjóri Partýbúðarinnar
en þar ríkir mikil hrekkjavöku
stemning. Hefur verslunin verið
skreytt í anda hrekkjavökunnar og
hátt í 200 hrekkjavökubúningar
af ýmsu tagi eru til sölu í verslun
inni. Má þar nefna beinagrindur,
trúða, djöfla, nornir, vampírur,
hettukufla, drauga, fanga, presta,
nunnur, grasker, uppvakninga og
margt fleira.
Partýbúðin kappkostar að vera
með allt fyrir hrekkjavökuna og
leitast er við að bjóða upp á það
flottasta hverju sinni. Segir Halla
að hrekkjavakan sé það tilefni
sem dragi langflesta viðskiptavini
að versluninni. Partýbúðin býður
hins vegar upp á margt fleira og er
stærsta sérverslun landsins með
allt fyrir veisluna eða partýið. Lagt
er upp úr gríðarlega miklu úrvali:
„Sem dæmi um úrvalið má nefna
að við erum með sérdeild fyrir þrí
tugsafmæli þar sem 30 stendur á
öllum vörum. Í einlitum borðbún
aði, glösum og diskum, er hægt að
velja á milli alls 17 lita og eru þá
ótaldar þær vörur sem eru ekki ein
litar heldur til dæmis doppóttar
eða röndóttar,“ segir Halla.
Partýbúðin var fyrst til húsa á
Grensásvegi en hefur árum saman
verið staðsett að Faxafeni 11. Þar
er mikið vöruúrval á tveimur hæð
um. Á efri hæðinni eru skreytingar,
borðbúnaður og blöðrur. Á neðri
hæðinni eru síðan búningar og
fylgihlutir.
Föstudag og laugardag (28.–29.
okt.) verður þurrís til sölu í verslun
inni en hann skapar afar skemmti
lega stemningu. Svo má ekki
gleyma blöðrubarnum: „Blöðru
barinn okkar er mjög vinsæll en
hann virkar þannig að viðskipta
vinir velja sér blöðrur af barnum
og við blásum þær upp á staðn
um með helíum. Blöðrur gera mik
ið fyrir veisluna eins og flestir vita.
Það er einnig hægt að panta fyrir
fram í síma 5340534 (æskilegt
ef um mjög margar blöðrur er að
ræða) og þær verða þá tilbúnar
þegar viðskiptavinurinn kemur á
staðinn,“ segir Halla.
Eins og greinir frá hér að framan
er opið lengur í Partýbúðinni núna
um hrekkjavökuhelgina. En vana
lega er opið virka daga frá 10 til 18,
laugardaga frá 11 til 17 og sunnu
daga frá 12 til 16.
Frekari upplýsingar um búðina,
vörur og verð, er á finna á Face
booksíðu Partýbúðarinnar. n