Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.2016, Side 28
Helgarblað 28.–31. október 20164 Ferðalok - Kynningarblað
Trésmiðjan Stígandi
T
résmiðjan Stígandi á
Blönduósi smíðar vand
aðar líkkistur, bæði hvítar
og spónlagðar með viðar
tegund að vali kaupanda.
Kisturnar eru afgreiddar fullbúnar,
fóðraðar og með kodda, sæng og
blæju. Líkklæði er einnig hægt að
kaupa sé þess óskað. Kisturnar eru
sendar daginn eftir pöntun hvert á
land sem er.
Að sögn Guðmundar Arnar Sig
urjónssonar, eins eigenda Stíganda,
afgreiðir fyrirtækið um 30 líkkistur
á ári. Flestar eru keyptar í hér
aðinu, einhverjar fara á Blönduós og
Hvammstanga, og svo eru nokkrar
afgreiddar vítt og breitt um landið,
meðal annars til Reykjavíkur. Segir
Guðmundur að ástæðurnar fyrir því
að líkkisturnar frá þeim nái svo langt
út fyrir héraðið bæði vera gott orð
spor fyrirtækisins í líkkistusmíði og
að verðið á þeim þyki afar hagstætt
miðað við mikil gæði.
Starfsemi Trésmiðjunnar Stíg
anda hvílir á gömlum og traustum
grunni. Fyrirtækið var stofnað árið
1947 og hefur ávallt verið staðsett
á Norðurlandi, en stofnendur þess
komu þó úr Reykjavík. Í dag eru þrír
starfsmenn fyrirtækisins í eigenda
hópnum en starfsmenn eru alls 13,
meirihluti þeirra er trésmiðir.
Að sögn Guðmundar er starf
semin afar fjölbreytt en þó er sér
smíði á innréttingum mjög stór
þáttur af starfseminni: „Við erum
stærsti aðilinn á svæðinu í viðhaldi
og nýsmíði og því mikið leitað til okk
ar varðandi alls konar verkefni. Við
erum í raun þjónustufyrirtæki á vakt
hér og það er feikilega mikið að gera.“
Trésmiðjan Stígandi tekur að
sér allt sem við kemur byggingum
og mannvirkjagerð. Á tæknivæddu
verkstæði smíða starfsmenn fyrir
tækisins nánast hvað sem er, allt
eftir óskum viðskiptavina. Lögð er
áhersla á vönduð vinnubrögð og
persónulega þjónustu.
Innréttingar, tréstigar
og sumarhús
Á heimasíðu Stíganda, stigandihf.is,
má finna fróðlegar upplýsingar um
ýmsar vörur fyrirtækisins. Áður eru
líkkisturnar nefndar en auk þeirra
framleiðir Stígandi til dæmis mikið
af fallegum og vönduðum innrétting
um af ýmsu tagi. Þrautreyndir starfs
menn eru viðskiptavinum til ráðgjaf
ar varðandi efnisval og út færslu, en
möguleikarnir eru endalausir.
Þá smíðar Stígandi tréstiga af öllum
stærðum og gerðum þar sem nýtt er í
senn nýjasta tækni og dýrmæt reynsla
iðnmeistara fyrirtækisins af gömlu
handbragði.
Enn fremur framleiðir Stígandi
sumarhús og smáhýsi til flutnings
hvert á land sem er. Meðal annars eru
í boði svokölluð hraðhús, sem eru 55
fermetra, byggð úr tveimur einingum
sem eru smíðaðar á starfssvæði Stíg
anda og fluttar á byggingarstaðinn
ásamt forsteyptum undirstöðum.
Auðvelt er að bæta þriðju einingunni
við hvenær sem er og stækka húsið
þar með upp í 82 fermetra. n
Trésmiðjan Stígandi
Húnabraut 29, Blönduósi
Sími: 452-4123.
Netfang: gummi@stigandihf.is
Heimasíða: www.stigandihf.is
Vandaðar líkkistur
á hagstæðu verði