Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.2016, Side 33
Helgarblað 28.–31. október 2016 Fólk Viðtal 25
Einu eggin á neytendamarkaði
með löggilda vottun
Lífrænu hænurnar
hjá Nesbúeggjum
• Fá lífrænt fóður
• Fá mikið pláss
• Njóta útiveru
nesbu.is
NESBÚ
EGG
É
g er alveg sannfærður um að
það eru geimverur þarna úti,“
segir Sævar Helgi Bragason
vísindamiðlari sem hefur frá
unga aldri verið hugfanginn
af himingeimnum og öllu því sem
hann hefur upp á að bjóða.
Sævar, sem í vikunni mælti sér
mót við blaðamann á notalegum
veitingastað, tók sérstaklega fram að
ástæðan fyrir staðarvalinu væri sú
að fiskurinn þar væri fyrsta flokks.
Á slaginu tólf, þegar viðtalið hefði
formlega átt að hefjast, sendi hann
skilaboð um að sér seinkaði um
nokkrar mínútur.
Þegar Sævar mætti stuttu síð-
ar á umræddan stað, rennblautur
eftir ískalda vetrarrigninguna, afsak-
aði hann sig með því að sýna mynd
af stjörnuskoðunartjaldi sem hann
ferðast með á milli grunnskóla á
höfuðborgarsvæðinu og sagði að
kennslustund morgunsins hefði tek-
ið örlítið lengri tíma en hann hefði
áætlað.
Stoltið leyndi sér ekki en Sævar,
sem hefur einstaklega þægilega nær-
veru, virðist eiga mjög auðvelt með
að ná til barna og miðla þekkingu
sinni á vísindum á tungumáli sem
allir skilja.
Þá kom ástæðan fyrir staðar-
valinu fljótlega í ljós eftir að við tók-
um tal en Sævar er mikill áhugamað-
ur um mat. Hann dreymir um að
ferðast um heiminn í þeim tilgangi
að borða með öllum skilningarvitun-
um á sem flestum Michelin-veitinga-
stöðum. Þá kveðst hann vera algjör
klaufi þegar kemur að hinu kyninu.
Með mörg járn í eldinum
Sævar gerði ástríðuna, sem eru vís-
indi, að ævistarfi sínu og starfar nú
á ýmsum sviðum sem eiga það sam-
eiginlegt að sólkerfi okkar kemur þar
við sögu.
Þrátt fyrir að njóta mikillar vel-
gengni í starfi glímir Sævar við
vandamál sem stór hópur Íslendinga
af þúsaldarkynslóðinni svoköll-
uðu þekkir. Sævar neyðist til að búa
í foreldrahúsum þar sem sparnað-
arreikningurinn hans heldur ekki í
við þá gríðarlegu hækkun sem orðið
hefur á fasteignaverði síðustu ár.
Hann kveðst oft hafa íhugað að
flytja af landi brott en heldur í vonina
um að Íslandi verði, áður en langt
um líður, ákjósanlegri staður til að
búa á.
Flestir muna eflaust eftir Sævari
sem varð, nánast á einni nóttu, hálf-
gerð almenningseign og andlit sól-
myrkvans árið 2015. Hann er maður-
inn sem kom því í verk að þúsundir
íslenskra grunn- og leikskólabarna
fengu tækifæri til að fylgjast með
þessum merkilega náttúruviðburði.
Hann uppskar mikið skítkast fyrir
og var meðal annars sakaður um
mannréttindabrot.
Sævar er formaður Stjörnu-
skoðunarfélags Seltjarnarness. Hann
kennir stjörnufræði í MR og er höf-
undur bókarinnar Stjörnuskoðun
fyrir alla fjölskylduna sem kemur út
í næsta mánuði. Sævar verður með
innslög í Stundinni okkar í vetur um
vísindi auk þess sem hann er reglu-
legur gestur í Morgunútvarpi Rás-
ar 2. Að auki heldur Sævar reglulega
fyrirlestra úti um allar trissur, tek-
ur þátt í alþjóðasamstarfi og fræð-
ir ferðamenn um norður ljós þegar
veður leyfir. Sævari er mikið í mun
að fræða börn um mikilvægi vís-
inda, vekja þau til umhugsunar um
stjörnufræði og hvetja þau áfram.
Ákvað snemma að
verða vísindamaður
Áhuginn á vísindum kviknaði
snemma hjá Sævari sem kveðst
hafa horft meira upp í himininn
en fram fyrir sig þegar hann var
lítill. „Stjörnurnar voru svo heill-
andi og um leið og ég var orðin læs
vildi ég ekki lesa neitt annað en
vísindabækur, þá helst bækur um
stjörnurnar,“ segir Sævar sem var átta
ára þegar hann horfði fyrst í gegnum
sjónauka hjá frænda sínum. „Þá sá
ég Satúrnus í fyrsta skiptið og eftir
það var ekki aftur snúið.“
Eftir grunnskóla fór Sævar í
Flensborg og í framhaldinu kláraði
hann jarðfræði í Háskóla Íslands.
„Ég ætlaði alltaf að fara í master í
reikistjörnujarðfræði en svo kom
lífið inn í og plönin breyttust hægt og
rólega.“
Vonar að sonurinn verði nörd
Sævar, sem er 32 ára, og þáverandi
sambýliskona hans, Inga Rún Helga-
dóttir, eiga soninn Arnór Braga sem
er sex ára. Fyrst eftir að upp úr slitn-
aði árið 2013 og þar til í sumar skipt-
ust þau vikulega á að vera með
drenginn. Eftir að Arnór Bragi byrj-
aði í skóla í haust hefur þó dregið
úr umgengninni þar sem Sævar býr
í Hafnarfirði en sonur hans í Mos-
fellsbæ.
„Það er brjálað að gera hjá hon-
um við að leika vini sína og svoleið-
is. Á meðan ég get ekki búið nær þá
fylgist ég með af hliðarlínunni og fæ
að njóta hans um helgar.“
Aðspurður hvort sonurinn deili
sama áhugamáli og faðir hans svarar
Sævar: „Arnór Bragi er stórkostlegur
karakter. Forvitinn, mikill Star Wars-
aðdáandi og tölvuleikjakall. Ég vona
að hann verði nörd því þá bíður hans
björt framtíð.“
Feiminn gagnvart konum
Þegar talið berst nánar að ástinni, og
hann er inntur svara við persónu-
legri spurningum, fer Sævar í al-
gjöran hnút. Hann segist vera lokuð
týpa og viðurkennir að sér þyki mjög
erfitt að tala um sambandsmál þar
sem hann fari sjálfur alveg í kerfi
þegar eitthvað slíkt er í gangi. „Ég get
auðveldlega talað uppi á sviði fyrir
þúsund manns en þegar kemur að
því að nálgast hitt kynið er ég alveg
út úr korti.“
Þá segir Sævar að sökum þessa sé
hann ekki mikið að „deita“: „Ég er svo
afskaplega lélegur í þessu. Kannski
vantar mig bara góðan vængmann.“
Sævar og barnsmóðir hans eru
góðir vinir en þegar blaðamaður
segir að hann geti nú varla verið al-
veg vonlaus þar sem hann eigi sjö
ára samband að baki þá segir hann
einfaldlega: „Hún náði í mig.“
Síðan segir hann frá því hvernig
hann kynntist Ingu Rún. Árið 2006,
mánuði eftir að hann byrjaði fyrst að
kenna í MR, byrjuðu þau að hittast
en hún var nemandi hans.
„Hún var á lokaárinu og ég var 22
ára svo aldursmunurinn á okkur var
bara þrjú ár. Það vissu allir af þessu
en enginn skipti sér neitt sérstaklega
af því. Það eina sem breyttist var að
ég fékk annan kennara til að fara yfir
verkefnin hennar.“
Sævar segist alltaf bjóða
nemendum sínum í stjörnuskoðun
en þar upphófst ástarævintýrið.
„Hún bað um far með mér í stjörnu-
skoðunina. Ég spáði ekkert frekar í
það og sótti hana. Eitt leiddi af öðru
og það tók ekki nema nokkra daga
fyrir okkur að smella saman.“
Líkt og áður segir slitnaði upp úr
sambandinu en Sævar kveðst þakk-
látur fyrir þann tíma sem þau áttu
saman og soninn sem skiptir þau
meira máli en allt annað í lífinu.
Michelin-stjörnu ferðamaður
Þá viðurkennir Sævar að hann
myndi ekki slá hendinni á móti því
að kynnast skemmtilegri konu. Að
sama skapi er hann lítið að stressa
sig á því þar sem hann hefur í nægu
að snúast varðandi vinnu og barna-
uppeldið.
„Ég er nú ekkert að falla á tíma
en auðvitað væri notalegt að hafa
einhvern til að slaka á með og fara í
ferðalög. Ég viðurkenni það alveg.“
Helstu áhugamál Sævars, fyrir
utan vinnuna, eru ferðalög en að
auki kveðst hann vera mikill mat-
arsnobbari. Þá myndi hann ekki
slá hendinni á móti því að gerast
Michelin-stjörnu ferðamaður. Sævar
hefur ferðast á marga framandi staði,
á borð við Indónesíu og til Suður-
Ameríku. Þess á milli nýtur hann
þess að sökkva sér í fjölþjóðamenn-
ingu evrópskra stórborga.
„Ég á fjölda vina frá öllum heims-
hornum og er löngu búinn að kom-
ast að því hvað við erum öll svipuð,
það er varðandi húmor og drauma,
þrátt fyrir að eiga ólíkan bakgrunn.“
Sævar er líka sannfærður um að
í framtíðinni muni ferðalangar fara í
geimferðir í stað flugferða. Til dæmis
fljúga einn til tvo hringi umhverfis
jörðina, áður en geimflaugin lendir
að lokum á áfangastað, annars stað-
ar á jörðinni eða einhvers staðar í
geimnum.
Stórkostlegasta uppgötvun
sögunnar
Líkt og áður segir er Sævar hand-
viss um að við séum ekki ein í al-
heiminum. „Heimurinn er svo stór
að það getur eiginlega ekki verið. Ég
vona að þarna úti séu vitsmunaver-
ur sem við getum haft samband við,
lært af og þær kennt okkur. En hvort
sú er raunin er önnur og erfiðari
spurning.“
Þá segir Sævar að ein stórkost-
legasta uppgötvun sögunnar yrði að
fá staðfestingu á að örverur væri að
finna á Mars. „Þá fengjum við loks-
ins staðfestingu á að við erum ekki
ein. Ef það eru tveir hnettir í okkar
sólkerfi þar sem líf finnst, þá er ansi
mikill möguleiki á fjölbreyttu lífi í
alheiminum. Og þá get ég dáið sæll
og glaður.“
Hægfara útrýming
lífs á jörðinni
Sævar óttast ekki yfirvofandi
heimsendi af völdum áreksturs
smástirnis eða halastjörnu við
Jörðina. „Við höfum sem betur fer
búnaðinn og tæknina til að finna
þessa hnetti og koma þannig í veg
fyrir yfirvofandi hamfarir, ef við
finnum eitthvað, því það er alltaf
verið að leita.“
Ef svo yrði gerir Sævar ráð fyrir
að þjóðir heimsins tækju höndum
saman og leystu vandamálið í sam-
einingu. „Kannski verður það fyrsta
friðsamlega samvinna allra þjóða
að koma í veg fyrir útrýmingu lífs á
jörðinni?“
Hins vegar hefur Sævar töluvert
meiri áhyggjur af því hvernig mann-
kynið hefur farið með Jörðina. „Þessi
hægfara útrýming lífs á jörðinni er
skelfileg. Eins og staðan er í dag þá
erum við að fara illa með auðlindir
jarðarinnar. Við þurfum að velta því
rækilega fyrir okkur og bregðast við
áður en það verður of seint.“
„Ég er alveg sann-
færður um að það
eru geimverur þarna úti
Gerði ástríðuna að
ævistarfi sínu Hefur
mikla ánægju af því að
miðla þekkingu til barna.
Kristín Clausen
kristin@dv.is