Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.2016, Síða 37
Helgarblað 28.–31. október 2016 Sport 29
20% þakklætisafsláttur
af slökun út október
Þökkum þær
frábæru viðtökur
sem SLÖKUN hefur
fengið á Íslandi.
Mamma veit best, Heilsuhúsin, Lyfja, Apótek Hafnarfjarðar, Apótek Mos, Apótek Ólafsvíkur, Árbæjarapótek, Borgar Apótek, Heilsutorg
Blómaval, Farmasía, Fjarðakaup, Garðsapótek, Heilsuver, Lyfjaval, Lyfsala Vopnarfirði, Lyfsala Hólmavík, Lyfsalinn Glæsibæ, Siglufjarðar Apótek,
Hraunbergsapótek, Rima Apótek, Reykjavíkur Apótek, Apótek Vesturlands, Apótek Garðabæjar, Lyf og heilsa, Apótekarinn og Apótekið.
Aðeins fjórir enn í lAndsliðinu
n Kynslóðaskipti hafa orðið í landsliðinu n Tíminn líður og tveir eru á fimmtugsaldri n Tveir hættir í október og nokkrir silfurdrengir eru enn að spila en eru ekki valdir
Alexander Petersson
Staða: Skytta Aldur: 36 ára
Hættur með landsliðinu en spilar með
Füsche Berlin í Þýskalandi.
Þjálfararnir þrír
Guðmundur Guðmundsson
Auk leikmannanna fjórtán
eru þrír þjálfarar á myndinni,
að undanskildum læknum og
sjúkraþjálfurum. Guðmund-
ur Guðmundsson var aðal-
þjálfari liðsins í Peking. Hann
hætti að þjálfa landsliðið eftir
Ólympíuleikana 2012. Þá var ís-
lenska liðið feiknarlega sterkt
en tapaði eftir framlengdan
spennuleik við Ungverja, þar
sem liðið náði sér aldrei fylli-
lega á strik. Hann tók við danska
landsliðinu sumarið 2013 og
þjálfar enn.
Gunnar Magnússon
Við hlið Guðmundar á myndinni
er Gunnar Magnússon, sem þá
aðstoðaði Guðmund. Gunnar
er í dag þjálfari Íslandsmeist-
ara Hauka og hefur raunar ný-
lega samið við einn leikmann á
myndinni, Björgvin Pál Gústavs-
son, sem er óvænt á leið heim úr
atvinnumennsku.
Óskar Bjarni Óskarsson
Þriðji þjálfarinn á myndinni er
Óskar Bjarni Óskarsson, sem
situr við hlið Guðjóns Vals. Hann
er nú á ný kominn inn í þjálfara-
teymi landsliðsins og mun að-
stoða Geir Sveinsson á næstunni.
Óskar Bjarni er auk þess þjálfari
bikarmeistara Vals.
Björgvin Páll
Gústavsson
Staða: Markvörður Aldur: 31 árs
Enn í landsliðinu og hefur spilað
lengi í Þýskalandi. Kom á óvart
í vikunni með því að semja við
Hauka í Olís-deildinni.
Arnór Atlason
Staða: Skytta Aldur: 32 ára
Spilar með Álaborg í Danmörku og
er enn lykilmaður í landsliðinu.
Guðjón Valur Sigurðsson
Staða: Hornamaður Aldur: 37 ára
Neitar að eldast og spilar enn á hæsta stigi.
Leikur með Rhein-Neckar Löwen í Þýskalandi.
Enn lykilmaður í landsliðinu.
Logi Geirsson
Staða: Skytta Aldur: 34 ára
Hættur handboltaiðkun og rekur eig-
ið einkaþjálfunarfyrirtæki, Fjarform.
Sverre Jakobsson
Staða: Varnarmaður Aldur: 39 ára
Hættur að spila handbolta en þjálfar
karlalið Akureyrar í Olís-deildinni.