Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.2016, Síða 40
Helgarblað 28.–31. október 201632 Skrýtið
36 á annarri
32 á hinni
IP Dreifing | www.hrefna.is | hrefna@hrefna.is | sími: 577-3408
Farðu nýjar leiðir og prófaðu gómsætar
hrefnulundir á grillið eða á pönnuna
snöggsteiktar að hætti meistarakokka
Frosið hrefnukjöt
komið í verslanir
LOL jarðsettur í
breskum kirkjugarði
n Ættingjar áttuðu sig ekki á merkingu viðurnefnisins fyrr en eftir að maðurinn lést
F
lestir ættu að kannast við
slangurorðið og skammstöf
unina LOL sem hefur fest
sig í sessi í rafrænum sam
skiptum um allan heim.
Orðið er kemur yfirleitt upp þegar
fyndnum eða hnyttnum ummæl
um er svarað. Á íslensku þýðir LOL
að hlæja upphátt en um er að ræða
skammstöfun enska orðasam
bandsins „laughing ut loud.“
Því kom það fólki, sem átti leið
um ónefndan kirkjugarð á Bret
landi, töluvert á óvart þegar þau sáu
orðið LOL áletrað á legstein karl
manns sem lést árið 2004.
Dag einn brá kirkjugarðsgestur
á það ráð að taka mynd af legstein
inum, sem rataði svo á samfélags
miðilinn Twitter. Mörgum þótti
ljósmyndin af legsteininum í senn
óviðeigandi og sprenghlægileg.
Hún varð því vinsæl á samfélags
miðlum og var deilt viða. Í kjölfarið
sá fjölskyldan mannsins sig knúna
til að stíga fram og skýra sína hlið
mála.
Mikill húmoristi
Fjölskyldan greindi frá því að mað
urinn, sem hét Lawrence, hefði í
daglegu tali vina og ættingja verið
kallaður LOL. Hann sjálfur hefði
skrifað nafn sitt svona, enda mikill
húmoristi í lifandi lífi.
Þá játuðu þau að tengingin væri
óheppileg en þau hefðu fyrst gert
sér grein hvað skammstöfunin
þýddi, í daglegu tali, eftir að
hann lést.
Þá gerði fjölskyldan
sérstaklega grein
fyrir því að hún hefði
með engu móti látið
áletra stafina á leg
steininn í þeim til
gangi að sverta
minningu hans á
nokkurn hátt.
Fleiri LOL-arar stíga fram
Líkt og áður segir fór myndin á fleygi
ferð um Twitter. Ummælin voru því
af ýmsum toga. Meðal annars stigu
fram uppi
standarar
sem
gerðu
óspart
grín að
legsteinin
um sem og fólk sem á
það sameiginlegt með
Lawrence að ganga
undir gælunafninu
LOL.
Líkt og alvöru Twitter
notendum sæmir þá var spaugið
ekki tekið of alvarlega. Eftir stend
ur álitaefnið hvort Lawrence, eða
LOL, hlæi að handan upphátt að
fárinu sem viðurnefni hans hefur
skapað. n
Kristín Clausen
kristin@dv.is
Myndin vakti mikla kátínu á samfélagsmiðlum í vikunni LOL var að sögn
ættingja mikill húmoristi. Mynd SKjáSKOt aF twitter