Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.2016, Page 42
Helgarblað 28.–31. október 201634 Menning
Rosalegustu bíómyndirnar
sem aldrei voru gerðar
n Sum verkefnin reyndust of stór, önnur of ofbeldisfull og enn önnur of súrrealísk
F
yrir hverja bíómynd sem nær
á hvíta tjaldið eru tugir, jafn-
vel hundruð, mynda sem
deyja strax á fyrstu stigum.
Stundum fá hugmyndasmið-
irnir í Hollywood svo brjálæðis-
legar hugmyndir að ómögulegt er að
hrinda þeim í framkvæmd, þótt slík-
um dæmum hafi fækkað samhliða
hinum ýmsu tækninýjungum.
Vefritið Business Insider tók á
dögunum saman lista yfir bíómyndir
sem aldrei litu dagsins ljós. Þær eiga
það sameiginlegt að hafa verið mikil
hugmyndafræðileg stórvirki. n
Einar Þór Sigurðsson
einar@dv.is
Napoleon eftir
Stanley Kubrick
Um hvað átti myndin að vera? Af
mörgum stórvirkjum Stanley Kubrick átti
Napoleon að verða það stærsta. Hann
varði áratugum, með hléum vitanlega, í
undirbúning myndarinnar sem átti að segja
frá ævintýrum Napóleóns Bonaparte.
Hvað gerðist? Myndin Waterloo eftir
Rod Steiger kom í kvikmyndahús árið 1970.
Myndin sagði einmitt frá ævi og örlögum
Napóleóns en þar sem myndin floppaði voru
stóru kvikmyndaverin ekki reiðubúin til að
taka áhættu með stórvirki Kubricks. Kubrick
lést síðan eins og kunnugt er árið 1999, 70
ára að aldri.
Er líklegt að hún verði framleidd? Já,
en ekki eins og Kubrick sá verkefnið fyrir sér.
Steven Spielberg hefur látið hafa eftir sér
að hann vilji gera Napoleon-verkefnið að
veruleika, en þá í formi þáttaseríu fyrir sjón-
varp en ekki sem kvikmynd. David Leland
vinnur að því að endurskrifa handritið og
hafa margir leikstjórar verið orðaðir við
seríuna, þar á meðal Ang Lee, Ridley Scott,
Rupert Sanders og Baz Luhrmann. Þess má
geta að hægt er að lesa handrit Kubrick að
Napoleon á veraldarvefnum.
Justice League:
Mortal eftir
George Miller
Um hvað átti myndin að vera? George
Miller átti að leikstýra þessu risavaxna ver-
kefni Warner Bros. Hugmyndavinna hófst
árið 2007 en þess skal getið að nýja myndin,
Justice League, sem kvikmynduð var að
hluta til hér á landi er ekki sú sama og þessi.
Myndin átti að segja frá ævintýrum Bat-
man, Superman og The Flash svo dæmi séu
tekin og átti D.J. Cotrona að leika Superman
og Armie Hammher átti að leika Batman.
Hvað gerðist? Tímasetning myndarinnar
þótti óhentug. Verkfall handritshöfunda
hafði áhrif og þá voru framleiðendur að von-
ast til þess að taka myndina upp í Ástralíu.
Skattamál þar í landi settu einnig strik í
reikninginn.
Er líklegt að hún verði framleidd? Zack
Snyder, en ekki George Miller, var fenginn
til að leikstýra DC-myndum Warner Bros
og á sama tíma hefur Miller einbeitt sér
að öðrum verkefnum, til dæmis Mad Max-
myndunum með góðum árangri. Justice
League: Mortal heyrir því sögunni til, að
sinni allavega.
Gladiator 2 eftir Ridley Scott
Um hvað átti myndin að vera? Myndin átti, eins og nafnið gefur til kynna, að vera framhald af myndinni Gladiator með Russell Crowe frá
árinu 2000. Óhætt er að segja að handritshöfundurinn, hinn goðsagnakenndi tónlistarmaður Nick Cave, hafi haft háleitar hugmyndir um
myndina. Persóna Crowe, skylmingaþrællinn Maximus, deyr í lok Gladiator en í Gladiator 2 átti hann að vakna til lífsins og verða sjálfum Jesú
að bana. Vinnuheiti myndarinnar var einmitt Christ Killer.
Hvað gerðist? Hugmyndin þótti of sturluð fyrir nokkurt kvikmyndaver. Er líklegt að hún verði framleidd? Nei, það er afar ólíklegt.
Blood Meridian
Um hvað átti myndin að vera? Myndin átti að byggja á samnefndri skáldsögu Pulitzer-verð-
launahöfundarins Cormacs McCarthy. Bókin, sem er talin ein sú besta af mörgum góðum eftir
McCarthy, segir frá blóðbaði sem átti sér stað í Bandaríkjunum um miðja nítjándu öld þegar
indjánar voru ofsóttir og drepnir í hundraðatali.
Hvað gerðist? Fyrir það fyrsta er bókin afar ofbeldisfull. Nokkrir leikstjórar og leikarar hafa
reynt að koma mynd á koppinn en enn sem komið er hafa þær tilraunir ekki borið ávöxt. Tommy
Lee Jones reyndi það um miðjan tíunda áratuginn en kvikmyndaverin vildu stilla ofbeldinu í hóf.
Ridley Scott reyndi nokkrum árum síðar en bitbeinið var handritið sem þótti of ofbeldisfullt, að
mati Paramount. James Franco hefur undanfarin misseri unnið að undirbúningi myndarinnar
og er hann sagður hafa sannfært Russell Crowe um að taka að sér hlutverk. Síðar kom í ljós að
Franco hafði aldrei öðlast útgáfuréttinn að myndinni.
Er líklegt að hún verði framleidd? Það er ekki ósennilegt. Franco, sem er aðeins 38 ára,
hefur reynt ýmislegt til að koma sögunni á hvíta tjaldið og ekki þykir ólíklegt að það takist.
Reynsluleysi Franco í leikstjórastólnum og dræmar viðtökur við þeim myndum sem hann hefur
leikstýrt hafa þó valdið kvikmyndaáhugamönnum ákveðnum áhyggjum. George Miller