Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.2016, Side 55
Helgarblað 28.–31. október 2016 Fólk 47
Léttur, leikrænn
og skemmtilegur flutningur
á klassískri tónlist við allra hæfi
Upplifið þær saman, það verður bara gaman.
Ef flutningur að kvöldi hentar betur,
þá komum við bara um kvöldið.
í fyrirtækjum
Klassískir
hádegistónleikar
Klassískur söngur í návígi er allt önnur upplifun
en á stóra sviðinu. Elsa Waage söngkona og Antonía Hevesi
píanóleikari hafa sett saman dagskrá sem byggist á þekktri
klassískri tónlist í léttari og skemmtilegri kantinum,
sem hreyfir við öllum.
Elsa Waage er ein af okkar þekktari ó söngkonum
og hefur komið víða við í ó heiminum á löngum
og farsælum ferli.
Antonía Hevesi er listrænn stjórnandi og píanóleikari
hádegistónleikaraðar Hafnarborgar s.l. 14 ár. Á undanförnum
árum hefur hún tekið þátt í uppfærslum á rúmlega 30 ó
með Norðurópi, Litla Ó kompaníinu, ÓP-hópnum
og hjá Íslensku Ó .
Dagskráin tekur um 20 mínútur og hljómborð fylgir
ef vinnustaðurinn er undirspilslaus.
Nánari upplýsingar:
Elsa gsm 823 0314
elsa.waage@gmail.com
É
g var mjög stressaður að setja
þetta í loftið,“ segir tónlistar-
maðurinn Friðrik Dór Frið-
riksson sem á heiðurinn af
einu mest spilaða laginu á
Íslandi um þessar mundir. Lagið
samdi Frikki Dór þegar hann var
18 ára en textinn er fenginn að láni
úr laginu Fröken Reykjavík sem er
einn ástkærasti dægurlagasmellur
íslenskrar tónlistarsögu.
Hafði aldrei heyrt lagið
Ólíkt flestum Íslendingum hafði
Frikki Dór enga hugmynd um
hvaða lag Fröken Reykjavík var
þegar hann heillaðist fyrst af text-
anum fyrir 10 árum.
„Heima hjá mömmu og pabba
var til söngvabók með klassískum
íslenskum lögum og textum. Það
voru hljómar við lögin en ég er
álíka læs á nótur og fimm ára barn
sem er að læra að lesa.“
Frikki Dór byrjaði eftir að hann
las textann yfir að dunda sér á gít-
arinn og samdi sína eigin útgáfu
af lagi við textann. „Ég hafði aldrei
heyrt upprunalega lagið áður en ég
samdi mitt eigið.“
Þá viðurkennir Frikki Dór fús-
lega að það hafi tekið mjög á
taugarnar að setja lagið, sem er el-
ektróskotin poppballaða, í loftið,
því hann skynjaði alls ekki hvernig
viðbrögð hann fengi.
„Ég er auðvitað búinn að eiga
lagið í tíu ár. Mamma var búin að
þrýsta á mig frá upphafi að taka það
upp og gefa út. Hún þekkir auð-
vitað upprunalega lagið en hafði
einnig alltaf þótt textinn henta
laginu mínu vel.“
Þakklátur að hafa fengið leyfi
Frikki Dór hafði samband við fjöl-
skyldu Jónasar Árnasonar sem á
textann í upprunalega laginu sem
gaf honum leyfi til að gefa lagið út
við textann hans. „Það er alls ekki
sjálfsagt og ég er mjög þakklátur
fyrir að hafa fengið þetta leyfi.“
Hann segist í þakklætisskyni, og
af virðingu fyrir upprunalegu útgáf-
una, reyna að halda því eins mikið
á lofti og hann getur að textinn sé
eftir Jónas og vill að sagan í textan-
um fái að njóta sín.
Frikki Dór segist aldrei áður
hafa upplifað jafn sterk viðbrögð
við lagi sem hann hefur sent frá
sér. „Margir hafa stoppað mig úti
á götu og sagt að þetta sé vel gert.
Ég átti allt eins von á að þetta gæti
brugðið til beggja vona. Auðvitað
líkar ekkert öllum við þetta og vilja
að hlutirnir séu látnir í friði, ég virði
þær skoðanir líka fullkomlega.“ n
Sat á laginu Fröken
Reykjavík í 10 ár
Kristín Clausen
kristin@dv.is
„Ég hafði aldrei
heyrt upprunalega
lagið áður en ég samdi
mitt eigið.
Friðrik Dór Óttaðist viðbrögð almennings við laginu. mynD sKjásKot Rúv