Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.2016, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.2016, Blaðsíða 2
Helgarblað 11.–14. nóvember 20162 Fréttir Karamella og perur Súkkulaði og ferskjur Vanilla og kókos Bragðgóð grísk jógúrt að vestan Fjárfesta í skyrútrás MS í Bandaríkjunum MS og einkafjárfestar eru hluthafar í skyrsölufyrirtækinu Icelandic Provisions í Bandaríkjunum M jólkursamsalan (MS) og innlendir einkafjár- festar eru í hluthafahópi bandaríska fyrirtækis- ins Icelandic Provisions Inc. sem hóf síðasta vetur að selja ís- lenskt skyr vestanhafs. Skyrið kemur frá afurðastöð MS á Selfossi en fram- leiðsla Icelandic Provisions í Banda- ríkjunum á að hefjast á fyrri hluta næsta árs. Skrifstofur fyrirtækisins eru í fjármálahverfi New York-borg- ar en fjárfestingarsjóðurinn Polar- is Founders Capital í Boston kom ásamt MS að stofnun þess. Einar Sig- urðsson, fyrrverandi forstjóri MS, er stjórnarformaður sölufyrirtækisins og hlutafjársöfnun þess, upp á um 11 milljónir dala eða 1,2 milljarða króna, stendur nú yfir. Á 18 prósenta hlut MS á 18 prósenta hlut í Icelandic Provisions sem er með einkaleyfi á sölu á skyri íslenska samvinnufé- lagsins í Bandaríkjunum. Einar Sig- urðsson hefur sagt við fjölmiðla þar í landi að vörurnar séu seldar í yfir 900 verslunum á austurströnd Banda- ríkjanna. Um er að ræða skyr með sjö mismunandi bragðtegundum og í markaðssetningu fyrirtækisins eru saga íslenska skyrsins og MS mjög áberandi. Icelandic Provisions rekur starfsemi sína frá 19. hæð skýjakljúfs við Broadway í fjármálahverfi Man- hattan. „Við vorum búnir að vera inni á bandaríska markaðnum en fórum svo inn í þetta fyrirkomulag. Við ætl- um okkur á fyrri hluta næsta árs að framleiða skyr í Bandaríkjunum í samstarfi við aðila þar. Það er mjög erfitt að ætla sér að þjónusta mark- aðinn þarna með flugi frá Íslandi. Við höfum aldrei selt jafn mikið skyr til Banda- ríkjanna og á yfir standandi ári og salan verður tvöföld miðað við árið í fyrra,“ segir Egill Sigurðsson, bóndi á Berustöðum í Ásahreppi og stjórnar formaður samvinnufé- lagsins Auðhumlu sem á 90 prósent í MS. Hin tíu prósentin eru í eigu Kaupfélags Skagfirðinga. Eigendur Icelandic Provisions hafa sótt um einkaleyfi á skyrdósum fyrirtækisins, sem eru tígullaga, og ýmsum slagorðum. Umsóknirnar eru einnig lagðar fram af bandaríska félaginu SkyrCo Inc. sem Egill segir hafa haldið utan um sölu á vörum MS í Bandaríkjunum áður en nýja félagið var stofnað. „Við erum að reyna að aðgreina okkur á markaðnum og búa til vörumerki. Bæði innlend- ir og erlendir fjár- festar sjá verðmæti í tengingu við MS og söguna. Upphaflega var hönnunin með það markmið að dósirnar röðuðust betur á vörubrett- um. Það er ákaflega dýrt að flytja þetta út með flugi og líka ótryggt því fraktin er alltaf víkjandi í öllu flugi,“ segir Egill. Þynnist ekki út Verðbréfafyrirtækið Virðing hefur verið ráðgjafi MS og Polaris Found- ers Capital við fjármögnun verkefn- isins hér á landi. Hannes Frímann Hrólfsson, forstjóri Virðingar, segir að hlutafjársöfnuninni sé ekki lok- ið og stefnt sé að eiginfjárframlagi frá innlendum og erlendum fjár- festum upp tæpar 11 milljónir dala. Aðspurður vill hann ekki svara því hvaða innlendu fjárfestar hafa nú þegar skuldbundið sig verkefninu. „Þeir hafa verið að bæta í hluta- féð en það er allt gert með þynningu á hinum 82 prósentunum sem MS á ekki. Hlutur okkar þynnist ekki út og okkar prósentutala verður föst fyrstu þrjú árin. Við höfum ekki lagt neina peninga í þetta heldur þekkingu, uppskriftir, tækniaðstoð og fleira og aðrir koma svo að því að fjármagna þetta með okkur,“ segir Egill. Ekki náðist í Einar Sigurðsson við vinnslu fréttarinnar. n Stjórnarformaður Auðhumlu Egill Sigurðsson segir áform MS gera ráð fyrir að framleiðsla á skyri Icelandic Provisions í Bandaríkj- unum hefjist á fyrri hluta 2017. Siggi Skyr líka í New York Sigurður Kjartan Hilmarsson stofnaði bandaríska fyrirtækið The Icelandic Milk and Skyr Corporation árið 2006 en það framleið- ir skyr og aðrar mjólkurvörur undir nafninu Siggi's. Skyrið er byggt á íslenskri uppskrift og var í árslok 2014 selt í yfir fjögur þúsund verslunum í Bandaríkjunum. Höfuðstöðvar Siggi's eru einnig í New York. Þá stofnaði ljósmyndarinn Smári Ásmundsson fyrirtæk- ið Smári-Organics í Kaliforníu á vesturströnd Bandaríkjanna árið 2010. Smári framleiðir jógúrt eftir íslenskri uppskrift. Haraldur Guðmundsson haraldur@dv.is Bíða niðurstöðu kennslanefndar „Það er beðið niðurstöðu kennslanefndar til að staðfesta að hinn látni sé sá sem saknað var. Væntanlega verður aldrei upp- lýst nákvæmlega hvað kom fyrir um borð eða hver ferill skútunn- ar var um Atlantshafið áður en hún endaði hér við land,“ segir Jóhannes Jensson, aðstoðaryfir- lögregluþjónn hjá lögreglunni á Suðurnesjum. Þann 26. október síðast- liðinn fann Landhelgisgæslan neyðarsendi suðvestur af Grindavík sem tilheyrði frönsku seglskútunni Red Heol. Síðar þann sama dag fannst brak sem talið er vera úr skútunni sem og líkamsleifar sem taldar eru til- heyra hinum 63 ára Joseph Le Goff sem sigldi skútunni. Joseph hugðist sigla frá Portú- gal til Azoreyja og lagði hann af stað í siglinguna í sumar, þann 7. júlí. Áætlað var að siglingin tæki viku en Joseph skilaði sér aldrei til Azoreyja. Hæstiréttur úrskurðaði í síð- ustu viku að lögreglu skyldi veitt heimild til að framkvæma réttar- krufningu á líkinu sem fannst. Í kröfu lögreglustjórans kom fram að ekki hefði verið unnt að útiloka að dauðsfall umrædds manns mætti rekja til refsiverðrar háttsemi. Aðspurður segir Jóhannes að ekkert bendi til þess að neitt sak- næmt hafi átt sér stað. „Það er hins vegar tilgangur réttarkrufn- ingar að leiða í ljós hvort svo hafi verið eða ekki og staðfesta and- látsorsök.“ Joseph var vanur siglingum og smíðaði hann umrædda skútu, sem var ellefu metrar á lengd, að mestu sjálfur. Bróðir hans, Jean- Yves Le Goff, sagði í viðtali við franska fjölmiðla í sumar, þegar leit að skútunni stóð yfir, að bróð- ir hans hefði stundað siglingar í fjórtán ár og áður siglt einn til Azoreyja. Fékk dóm fyrir að misþyrma barni í Noregi K aj Anton Arnarsson, sem var í júní síðastliðnum dæmdur í 26 mánaða fangelsi í Noregi fyrir að misþyrma tveggja ára gömlu barni, afplánar nú eftirstöðvar dómsins í fangelsinu á Litla-Hrauni. Samkvæmt heimildum DV hóf hann afplánun þar fyrir rúmri viku. Fjölmiðillinn Stundin greindi á miðvikudag frá því að Kaj Anton væri laus úr haldi og kominn til Íslands. Hann var í október 2015 ákærður fyrir að misþyrma barni sem honum hafði verið treyst fyrir og voru áverk- arnir slíkir að læknir brast í grát þegar hann lýsti þeim í vitnastúku áður en dómurinn féll í Stafangri í Noregi. Kaj hafði þá setið í fangelsi í átta mánuði. Barnið hlaut handleggsbrot, áverka á höfði, mar á hrygg, hnjám og rist en Kaj Anton hélt því fram að drengur- inn hefði dottið oftar en einu sinni á meðan hann var að passa hann. n ritstjorn@dv.is Kaj Anton á Litla- Hrauni Á Litla- Hrauni Kaj Anton var síðast dæmd- ur til refsingar hér á landi í lok árs 2012 fyrir líkamsárás. Mynd FAcebook
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.